Aldís kærir aðstoðarlögreglustjóra fyrir brot á þagnarskyldu

Aldís Schram segir aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra hafa brotið gegn þagn­ar­skyldu, mögu­lega í ávinn­ings­skyni, með því að afhenda Jóni Baldvini Hanni­bals­syni vott­orð um afskipti lög­reglu af henni.

Aldís Schram, dóttir Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, hefur kært Hörð Jóhann­es­son, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til hér­aðs­sak­sókn­ara. Ástæðan er vott­orð sem Hörður afhenti Jóni Baldvini og fjallar um afskipti lög­reglu af Aldísi.

Telur Aldís að með því að leggja fram vott­orðið hafi Hörður brotið gegn þagn­ar­skyldu, mögu­lega í ávinn­ings­skyni. Í vott­orð­inu sagði að lög­reglan hefði nokkrum sinnum á und­an­förnum árum haft afskipti af Aldísi eða sinnt verk­efnum vegna hennar. For­eldrar hennar, Jón Baldvin og Bryndís Schram, hafi hins vegar aldrei kallað til lög­reglu vegna hennar. Jón Baldvin birti úrdrátt úr vott­orð­inu opin­ber­lega, bæði í Silfrinu á RÚV og í Morg­un­blað­inu.

Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og sakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­legra áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og halda frá­sagnir áfram að ber­ast í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook. Jón Baldvin hefur ítrekað sagt að sög­urnar eigi allar rætur að rekja til veik­inda dóttur sinnar.

Aldísi hefur sex sinnum verið nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild Land­spít­al­ans. Hefur hún borið föður sinn þeim sökum að hafa farið fram á vist­un­ina í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi. Hann hefur hafnað því. Fjórar beiðnir um nauð­ung­ar­vistun bár­ust frá honum á meðan hann var erlendis að störfum sem sendi­herra. 

Í grein í Morg­un­blað­inu 7. febr­úar birti Jón Baldvin upp­lýs­ingar um vott­orðið. „Sjálfur á ég í fórum mínum eft­ir­far­andi vott­orð frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett 5. jan­úar 2012: „Lög­reglan hefur nokkrum sinnum á und­an­förnum árum haft afskipti af Aldísi Bald­vins­dóttur [...] eða sinnt verk­efnum vegna hennar. Að gefnu til­efni skal tekið fram, að for­eldrar hennar, Bryndís Schram og Jón Baldvin Hanni­bals­son, hafa aldrei kallað á lög­reglu eða beðið lög­reglu um aðstoð af neinu tagi hennar vegna. Þetta stað­fest­ist hér með.“ (Und­ir­skrift: Hörður Jóhann­es­son aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri.)“

Aldís birti bréf sitt til hér­aðs­sak­sókn­ara á Facebook síðu sinni í dag. Telur hún útgáfu vott­orðs­ins brjóta gegn þagn­ar­skyldu­á­kvæði lög­reglu­laga og mögu­lega almennum hegn­ing­ar­lögum einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár