Annað andlát tengt COVID-19 á Bergi í Bolungarvík

Kona á níræð­is­aldri sem smit­að­ist af COVID-19 á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík lést í gær, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða. Tíu hafa nú lát­ist hér á landi eftir að hafa smit­ast af COVID-19.

Kona á níræð­is­aldri sem var til heim­ilis á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík lést í gær, eftir að hafa smit­ast af COVID-19.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða, en um er að ræða annað and­látið á hjúkr­un­ar­heim­il­inu sem tengt er far­sótt­inni.

Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða vottar aðstand­endum samúð, óskar starfs­mönnum og heim­il­is­fólki skjóts bata og þakkar sam­fé­lag­inu þökkum aðstoð og vel­vilja.

Fram kemur í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar að heim­ilið sé enn að lang­mestu leyti rekið af fólki úr bak­varða­sveitum, en hópsmit kom upp á hjúkr­un­ar­heim­il­inu í upp­hafi mán­aðar og voru allir sem þar búa settir í sótt­kví, auk þorra starfs­manna.

Þónokkur smit hafa síðan greinst á meðal íbúa og starfs­manna hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins. Karl­maður á níræð­is­aldri sem bjó á Bergi lést 5. apríl.

Alls hafa nú tíu manns látið lífið eftir að hafa smit­ast af COVID-19 hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár