Íslensk lög koma í veg fyrir að einstaklingar geti höfðað skaðabótamál gegn ríkinu

Eft­ir­lits­stofnun EFTA telur íslenska ríkið geta orðið skaða­bóta­skylt þegar dómar brjóta gegn EES-rétti. Lög koma hins vegar í veg fyrir að ein­stak­lingar geti höfðað skaða­bóta­mál.

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að lög á Íslandi komi í veg fyrir að ein­stak­lingar geti höfðað skaða­bóta­mál gegn rík­inu þegar dóm­stólar fara ekki að EES-rétti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá EFTA sem birt var í dag. Stofn­unin telur að íslenska ríkið gæti því orðið skaða­bóta­skylt þegar dómar brjóta gegn EES-rétti.

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að ESA hafi kom­ist að þess­ari nið­ur­stöðu eftir rann­sókn í til­efni kvört­unar frá aðila sem taldi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna rangrar túlk­unar Hæsta­réttar á EES-rétti.

Í rök­studdu áliti sem Eft­ir­lits­stofnun EFTA gaf út í í dag er þess kraf­ist að Ísland fylgi meg­in­regl­unni um skaða­bóta­á­byrgð ríkis vegna brota á reglum EES-réttar, en sú meg­in­regla tekur einnig til brota dóm­stóla. Sjálf­stæði dóm­stóla er þó ekki dregið í efa, né heldur að dóm­arnir séu end­an­legir.

Meg­in­reglan um skaða­bóta­á­byrgð ríkis krefst þess að bætur séu greiddar en ekki end­ur­skoð­unar á nið­ur­stöðu dóms­ins. Rökstutt álit er annað skrefið í með­ferð samn­ings­brota­máls. Hafi íslensk stjórn­völd ekki brugð­ist við rök­studda álit­inu með nauð­syn­legum aðgerðum innan tveggja mán­aða getur ESA vísað mál­inu til EFTA-dóm­stóls­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár