Hefur gagnrýnt konungsveldið í 30 ár

Dennis Skinner hefur verið þing­maður í Bret­landi síðan 1970. Í nærri þrjá ára­tugi hefur hann gagn­rýnt kon­ungs­veldið í Bret­landi og hefð­irnar sem fylgja. Gagnrýni Skinners er á góðri leið með að verða jafn mikil hefð.

Dennis Skinner er harður í horn að taka. Hann er ósammála því að stjórnmál eigi að vera siðuð og róleg umræða. „Ég var ekki alinn þannig upp“, segir hann.
Dennis Skinner er harður í horn að taka. Hann er ósam­mála því að stjórn­mál eigi að vera siðuð og róleg umræða. „Ég var ekki alinn þannig upp“, segir hann.

Þegar gagn­rýni á hefð­irnar verður hluti af hefð­inni, tín­ist merk­ing gagn­rýn­innar með öllum hinum gleymdu merk­ingum hefð­anna.

Kjarninn greindi frá athöfn­inni í Westminster í lið­inni viku þegar Elísabet II Eng­lands­drottn­ing hóf þing­hald eftir kosn­ing­arnar í Bret­landi fyrr í þessum mán­uði. Drottn­ingin las þá upp stefnu­skrá nýrrar rík­is­stjórnar, eins og hefð er fyrir.

Athöfnin er hlaðin hefðum og form­reglum sem nær allar eiga að und­ir­strika sjálf­stæði breska þings­ins – og almenn­ings – frá breska kon­ungs­veld­inu; Drottn­ingin ríkir í umboði almenn­ings en ekki öfugt.

[links]Bretland hefur verið þing­bundið kon­ungs­ríki mörg hund­ruð ár og í gegnum tíð­ina hafa skap­ast hefðir. Breska lög­gjaf­ar­valdið er form­lega séð skipt í þrjár deildir. Krúnan, kon­ungs­valdið, skipar einn arm sem gegnir hlut­verki ráð­gjafa og sam­þykkir lög sem hinar deild­irnar ganga frá.

Drottn­ingin skipar lávarða­deild breska þings­ins eftir til­lögum for­sæt­is­ráð­herr­ans. Lávarða­deildin er skipuð aðal­mönnum og hefð­ar­klerkum og er þess vegna full­trúa­ráð æðri mátt­ar­valda.

Full­trúar almenn­ings sitja í neðri deild þings­ins. Í þessa deild er yfir­leitt kosið á fimm ára fresti, nema þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann telur mik­il­vægt að kjósa fyrr. Eins og Theresa May gerði í vor.

[adspot]

Skellt í lás

Við upp­haf hvers nýs þings í Bret­landi er það drottn­ingin sem flytur stefnu­ræðu nýrrar rík­is­stjórnar. Drottn­ingin flytur þessa ræðu í þing­sal lávarða­deild­ar­innar, enda er henni ekki leyfi­legt að koma í sal almenn­ings. Umsjón­ar­manni lávarða­deild­ar­innar, kall­aður „Black rod“, er þess vegna skipað að kalla þing­menn neðri deild­ar­innar saman í hinum þingsalnum.

Áður en „Black rod“ er hins vegar hleypt inn í þingsal­inn skella þing­verð­irnir í lás, þannig að sendi­maður drottn­ingar þarf að banka þrisvar áður en honum er hleypt inn.

Prinsinn má opna kebab-stað

Dennis Skinner, þing­maður Verka­manna­flokks­ins í Bolsover í norð­an­verðu Englandi, er yfir­lýstur and­stæð­ingur kon­ungs­veld­is­ins í Bret­landi. „Það er ekki hægt að vera kon­ung­legur og alþýðu­maður á sama tíma,“ hefur hann látið hafa eftir sér um kon­ungs­fjöl­skyld­una sem hann segir hafa grafið undan rétt­mæti sínu á und­an­förnum ára­tugum.

Hann hefur lýst þeirri skoðun sinni að Bretar eigi að segja kon­ungs­fjöl­skyld­unni upp störfum og finna þeim önnur störf: Drottn­ingin má sjá um hrossa­rækt krún­unnar, enda er það hennar ástríða, og eig­in­maður hennar, Filipus prins, getur opnað kebab-stað í Norður-London.

Sjálfur hefur Skinner aldrei beðið lægri hlut í kosn­ingum í kjör­dæmi sínu síðan hann bauð sig fyrst fram árið 1970. Eftir að hafa lokið grunn­skóla­prófi á fjórða ára­tugnum gerð­ist hann kola­námu­maður áður en hann gerð­ist opin­ber fígúra og fór að láta til sín taka á sviði stjórn­mál­anna. Síðan hefur hann verið kall­aður „The Beast of Bolsover“, sem ekki verður með góðu móti þýtt á íslensku.

Árið 2014 lýsti Skinner því í við­tali að hann hefði aldrei á ævinni sent tölvu­póst. „Ég vil að póst­burð­ar­fólkið haldi vinn­unni sinni,“ sagði hann. Skinner heldur ekki með neinn Twitter-reikn­ing, jafn­vel þó fjöl­margir reikn­ingar séu í hans nafni.

Skinner hefur notað tæki­færið við upp­haf nær allra nýrra þinga í Bret­landi síðan um miðjan níunda ára­tug­inn til að hrópa háðsk orð, hvort sem það er að sendi­boða drottn­ing­ar­innar eða til þing­heims­ins.

Það er kannski kald­hæðn­is­legt að köll Skinners séu orðin að hefð, eins og þeim sem hann gagn­rýnir svo reglu­lega.

Í ár kall­aði hann „Get your skates on, first race is half past two!“ og vís­aði þar í veð­hlaupa­keppn­ina sem drottn­ingin ætl­aði að mæta á þann dag­inn.

Venju­lega upp­sker Skinner hlátur fyrir en stundum hefur hann hlotið ákúrur fyrir frá þing­mönn­unum hinu megin í salnum.

En yfir­leitt eru glós­urnar fyndnar. Eins og þegar hann spurði hvort Helen Mirren, sem hafði farið með hlut­verk drottn­ing­ar­innar í kvik­mynd­inni The Queen sama ár, væri til­búin til að hlaupa í skarðið.

Stundum notar hann tæki­færið til þess að koma skoð­unum sínum á póli­tískum málum líð­andi stundar á fram­færi. Í fyrra var mikil umræða um stöðu breska rík­is­út­varps­ins og Skinner kall­aði:

Kastað úr þingsalnum

Skinner lætur ekki sitt eftir liggja í stjórn­ar­and­stöð­unni í Bret­landi og er kraft­mik­ill þing­maður. Hann gengur stundum of langt og hefur marg­sinnis verið vísað úr þingsalnum fyrir rudda­legt orð­bragð og móðg­anir.

David Cameron, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íhalds­flokks­ins í Bret­landi, fékk til dæmis við­ur­nefnið „Dodgy Dave“ frá Skinner eftir að ráð­herr­ann varð upp­vís af skattaund­anskotum. Þrátt fyrir að hafa fengið tæki­færi til að draga ummæli sín til baka lét þing­mað­ur­inn sér ekki segj­ast:

George Osborne, fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Davids Cameron, fékk einnig að heyra það frá Skinner. Gula pressan í Bret­landi hafði þá fjallað um meinta kóka­ínn­eyslu Osborne á yngri árum. Skinner tók það óstinnt upp... og var kastað út fyrir vikið.

Skinner var fæddur árið 1932 og man vel eftir hörm­ungum seinni heims­styrj­ald­ar­innar. Í upp­hafi árs­ins 2017, eftir að Donald Trump var kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna, bauð breska rík­is­stjórnin Trump í opin­bera heim­sókn til London. Skinner var ekki sáttur og líkti Trump við Hitler og Moussolini.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár