Hvað er „the queen's speech“ og hvers vegna eru allir að tala um það?

Theresa May er sögð ætla að fresta stefnu­ræðu stjórn­valda. Stefnu­mót­unin með norð­ur­írska sam­bands­flokknum gengur ver en búist var við.

Elísabet II Englandsdrottning flytur vanalega stefnuræðu stjórnvalda í upphafi hvers þings. Hún hefur tvisvar þurft að fá staðgengil þegar hún var ólétt af börnum sínum.
Elísabet II Eng­lands­drottn­ing flytur vana­lega stefnu­ræðu stjórn­valda í upp­hafi hvers þings. Hún hefur tvisvar þurft að fá stað­gengil þegar hún var ólétt af börnum sínum. Mynd: EPA

Það kemst fátt annað að í breskum fjöl­miðlum í dag annað en orðrómur um að for­sæt­is­ráðu­neytið breska ætli að fresta drottn­ing­ar­ræð­unni, „the queen's speech“, um óákveð­inn tima. Ráðgert hafði verið að halda drottn­ing­ar­ræð­una eftir rétta viku, mánu­dag­inn 19. júní en það verður æ ólík­legra eftir því sem nær dregur.

En hvað er drottn­ing­ar­ræðan og hvers vegna er hún mik­il­væg? Á vef breska rík­is­út­varps­ins má lesa eft­ir­far­andi um ræð­una.

Drottningin flytur ræðu

Drottn­ing­ar­ræðan er ekk­ert annað en stefnuræða rík­is­stjórn­ar­innar sem vana­lega er flutt í upp­hafi hvers nýs þings í Westminster í London. Á Alþingi Íslend­inga flytja ráða­menn einnig slíka stefnu­ræðu, en þá er það æðsti maður rík­is­stjórn­ar­innar sem flytur ræð­una. Nú síð­ast var það Bjarni Bene­dikts­son sem flutti slíka ræðu sem for­sæt­is­ráð­herra.

[links]Í Bret­landi er hins vegar hefð fyrir því að drottn­ingin – eða eftir atvikum kóng­ur­inn – flytji þessa ræðu. Um er að ræða ofboðs­lega form­fastan við­burð þar sem hver tákn­ræna athöfnin rekur aðra. Hefðina fyrir því að þjóð­höfð­ing­inn kynni stefnu stjórn­valda í upp­hafi þings er hægt að rekja aftur til sext­ándu aldar.

Allt heila gillið hefst á því að drottn­ingin fær stefnu­ræð­una senda til stað­fest­ingar. Ræðan er oftar en ekki stutt, aðeins um 10 mín­útna löng. Drottn­ing­unni er svo ekið í fylgd ridd­ara­liðs­sveita úr hirð drottn­ing­ar­innar úr Buckingham-höll í þing­húsið í Westminster. Gríð­ar­legur fjöldi almenn­ings fylgist vana­lega með skrúð­göng­unni úr höll­inni.

Þegar drottn­ingin hefur gengið inn um sér­stakan lands­herra­inn­gang þing­húss­ins, klædd skikkju og með kór­ónu á höfði, gengur hún sér­staka leið í þing­sal efri deild­ar­innar.

Áður en full­trúum úr lávarða­deild breska þings­ins er hleypt í þing­sal neðri deild­ar­innar er hurð­unum skellt á trýnið á þeim. Það er tákn­ræn athöfn sem á að und­ir­strika sjálf­stæði neðri deild­ar­innar. Lávörð­unum er svo hleypt inn þar sem þeir boða þing­menn til fundar í sölum efri deild­ar­innar.

Um hvað er ræðan?

Ræðan er vana­lega í grunn­inn upp­taln­ing á þeim lögum og mál­efnum sem stjórn­völd hyggj­ast koma til leiðar á nýju þingi. Ræðan hefur yfir­leitt meira vægi eftir að ný rík­is­stjórn hefur tekið við völdum, enda eru þar sett fram helstu stefnu­mál nýrra stjórn­valda.

Það er ekki þar með sagt að allt sem lofað er í stefnu­ræð­unni verði að veru­leika. Það þekk­ist í Bret­landi eins og á Íslandi að stjórn­mála­menn lofa yfir­leitt meira en þeir geta á end­anum efnt.

Ræðan sem Elísabet II Eng­lands­drottn­ing mun flytja fyrir nýja rík­is­stjórn Theresu May verður mjög áhuga­verð fyrir magar sakir. Þar verða áherslu­mál minni­hluta­stjórn­ar­innar lögð fram. Þar verða einnig vís­bend­ingar um hversu mik­inn þrýst­ing norð­ur­írski flokkur lýð­ræð­is­legra sam­bands­sinna hefur sett á íhalds­flokk Theresu May í sam­starfsvið­ræðum í kjöl­far kosn­ing­anna.

Hvers vegna er ræðunni frestað?

Það geta sjálf­sagt verið margar skýr­ingar á því hvers vegna drottn­ing­ar­ræð­unni verður frestað. Ástæða þess að næsti mánu­dagur var val­inn fyrir ræð­una er til marks um hversu von­góð Theresa May hefur verið um að við­ræð­urnar við norð­ur­írska flokk­inn myndu ganga vel.

Nú er hins vegar sterkur orðrómur um að við­ræð­urnar gangi ekki nógu vel og að lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn setji strang­ari skil­yrði fyrir stuðn­ingi sínum við minni­hluta­stjórn íhalds­manna en gefið hafði verið í skyn.

Fregnir hafa borist af því að íhalds­menn í Bret­landi kvíði jafn­vel fyrir því að vinna með íhalds­sam­ara stjórn­mála­afli í breskum stjórn­málum en þeir sjálfir. Í sam­starfi lýð­ræð­is­lega sam­bands­flokks­ins og íhalds­flokks­ins eru þeir síð­ar­nefndu klár­lega frjáls­lynd­ara afl.

May gæti þess vegna þurft að gefa mun meira eftir af stefnu­málum íhalds­flokks­ins en hún hafði vonað. Það mun að öllum lík­indum gera stöðu hennar sem leið­togi flokks­ins erf­ið­ari. Nú þegar hafa áhrifa­menn innan íhalds­ins talað opin­ber­lega um veika stöðu for­sæt­is­ráð­herr­ans og telja hana ekki geta setið lengur, í það minnsta ekki mikið lengur.

[adspot]

Hvað gerist eftir ræðuna?

Ef Theresu May tekst að kom­ast að end­an­legu sam­komu­lagi við norð­ur­írska flokk­inn þá er aðeins hálfur sigur unn­inn. Eftir að drottn­ingin flytur stefnu­ræðu stjórn­valda er yfir­leitt gert þing­hlé þar til þing­menn snúa aftur í þingsal­inn og takast á um nýja stefnu stjórn­valda. Sú rök­ræða tekur yfir­leitt fimm daga og lýkur með tákn­rænni atkvæða­greiðslu.

Ef May tekst að koma minni­hluta­stjórn sinni klakk­laust í gegnum þessi próf á hún eflaust mögu­leika á að sitja áfram, jafn­vel þó póli­tískir and­stæð­ingar haldi áfram að benda á tak­mark­aðan þing­styrk hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár