Fimm spurningar í kjölfar bresku þingkosninganna

Theresu May mistókst að auka við meiri­hluta íhalds­manna á breska þing­inu. Kosn­inga­úr­slitin breyta stöð­unni í breskum stjórn­málum í aðdrag­anda Brexit-við­ræðn­anna.

Það verða engin vistaskipti í bústað forsætisráðherra Bretlands við Downingstræti 10 í kjölfar kosninganna. Theresa May stýrir búinu áfram en er þó búin að gera leikinn örlítið flóknari fyrir sig og stuðningsmenn sína.
Það verða engin vista­skipti í bústað for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands við Downingstræti 10 í kjöl­far kosn­ing­anna. Theresa May stýrir búinu áfram en er þó búin að gera leik­inn örlítið flókn­ari fyrir sig og stuðn­ings­menn sína. Mynd: EPA

Breski íhalds­flokk­ur­inn tap­aði meiri­hluta sínum á þingi í þing­kosn­ing­unum í Bret­landi í gær. Það var þvert á vænt­ingar Theresu May, for­manns flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sem hafði boðað til kosn­ing­anna til þess að styrkja umboð sitt og rík­is­stjórnar íhalds­flokks­ins fyrir Brexit-við­ræð­urnar sem hefj­ast síðar í þessum mán­uði.

May boð­aði til kosn­ing­anna 19. apríl síð­ast­lið­inn. Í til­tölu­lega stuttri kosn­inga­bar­áttu hugð­ist May og hennar teymi láta kosn­ing­arnar snú­ast um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu og þannig treysta umboð rík­is­stjórnar sinnar í breska þing­inu vegna þeirra fjöl­mörgu laga­breyt­inga sem þurfa að fara fyrir þingið í kjöl­far Brexit.

Þá taldi hún að sterk­ari staða sín heima í Bret­landi myndi nýt­ast sem vopn í við­ræð­unum við Evr­ópu­sam­bandið (ESB) þar sem samið verður um skil­mála og fram­hald sam­starfs Bret­lands og ESB.

En það fór allt í vaskinn.

[adspot]

Hvað klikkaði?

Strax á fyrstu metrum kosn­inga­bar­átt­unnar varð ljóst að Brexit yrði aldrei það kjöl­festu­mál kosn­ing­anna sem ákveðið hafði verið að láta kosn­inga­bar­áttu „Camp May“ snú­ast um. Auk þess var May sjálfri helst teflt fram og atkvæði með íhalds­flokknum áttu að þýða atkvæði með Theresu May.

Verka­manna­flokknum, undir stjórn Jeremy Corbyn, tókst að snúa kosn­inga­bar­áttu May á haus. Stefnu­yf­ir­lýs­ing verka­manna­flokks­ins varð aðal­málið í kosn­inga­bar­átt­unni og verka­manna­flokk­ur­inn sótti á í skoð­ana­könn­unum.

Tvær mann­skæðar hryðju­verka­árásir í Bret­landi breyttu einnig gangi kosn­inga­bar­átt­unnar sem fjall­aði á síð­ustu metr­unum helst um örygg­is­mál og hvernig hægt væri að koma í veg fyrir slík ódæð­is­verk. May-liðar áttu erfitt með að svara fyrir nið­ur­skurð til lög­gæslu­mála sem varð þegar Theresa May var inn­an­rík­is­ráð­herra.

Nið­ur­staða kosn­ing­anna varð sú að eng­inn flokkur hlaut hreinan meiri­hluta atkvæða. Í Bret­landi er það kallað „hung parli­ament“, þe. kosn­ing­arnar skil­uðu engum sig­ur­veg­ara og nið­ur­staðan „hangir í lausu lofti“.

[box]

Hver verða næstu skref?

Theresa May hefur þegar fundað með Elísa­betu II Eng­lands­drottn­ingu og óskað eftir umboði til þess að mynda nýja minni­hluta­stjórn íhalds­flokks­ins. Lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn í Norður-Írlandi hefur sam­þykkt að ræða sam­starf við íhalds­menn um að verja minni­hluta­stjórn­ina falli og kjósa með lyk­il­málum svo þau fái fram­gang.

Ekki verður um eig­in­lega sam­steypu­stjórn að ræða (eins og þegar David Cameron og Nick Clegg mynd­uðu stjórn saman árið 2010) heldur hafa norður-írskir sam­band­sinnar sam­þykkt að standa með May í erf­iðum málum.

Sam­an­lagður þing­manna­fjöldi þess­ara flokka dugar til þess að mynda meiri­hluta á þingi, en það munar bara tveimur þing­sætum. Verkefni Theresu May í Brexit-við­ræð­unum heima fyrir er þess vegna orðið mun flókn­ara en það var áður en hún boð­aði til kosn­ing­anna.

Hvað þýðir niðurstaðan fyrir Brexit?

Bretland mun ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu þrátt fyrir þennan kosn­inga­ó­sigur sitj­andi rík­is­stjórnar. Allt bendir til þess að Theresa May verði áfram for­sæt­is­ráð­herra í minni­hluta­stjórn og hefur þess vegna enn umboð til þess að leiða útgöngu­við­ræð­urnar.

Í kosn­inga­bar­átt­unni var aðeins einn flokkur sem bauð fram á lands­vísu sem lof­aði að efna til nýrrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Brexit. Það voru frjáls­lyndir demókratar sem hlutu aðeins 12 sæti á þing­inu. Jeremy Corbyn, leið­togi Verka­manna­flokks­ins næst stærsta flokks­ins á breska þing­inu eftir kosn­ing­arnar, hafði lýst því yfir að hann mundi virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar í fyrra og leiða við­ræður um útgöngu úr ESB hlyti hann til þess umboð.

[links]May boð­aði til þess­ara kosn­inga til þess að efla meiri­hluta sinn á þing­inu og tryggja þannig umboð sitt til þess að leiða við­ræð­urnar um útgöngu úr ESB. Það þótti mik­il­vægt enda þarf að greiða atkvæði um fjöl­margar, og veiga­miklar, laga­breyt­ingar í tengslum við Brexit. Jafn­framt átti stærri meiri­hluti á þingi að nýt­ast sem vopn í samn­inga­við­ræð­unum við ráða­menn í Brussel.

Ljóst er að nið­ur­staða kosn­ing­anna flækir útgöngu­ferlið nokkuð og setur áætl­anir Theresu May í nokkuð upp­nám. Í ræðu sinni fyrir utan Downingstræti 10 í hádeg­inu í dag, að loknum fundi sínum með drottn­ing­unni, lagði May áherslu á að í krafti flestra þing­sæta allra flokka væri íhalds­flokk­ur­inn eini stjórn­tæki flokk­ur­inn í Bret­landi.

Hvað þýðir niðurstaðan fyrir sjálfstæði Skotlands?

Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn tap­aði 21 þing­sæti á breska þing­inu í kosn­ing­unum í gær og eru nú með 35. Flokk­ur­inn fékk sína lang­bestu kosn­ingu í kosn­ing­unum 2015; Hlaut þá 56 sæti. Í sögu­legu sam­hengi er kosn­ing flokks­ins í kosn­ing­unum í gær nokkuð góð. En þegar litið er á stöð­una nánar eru nið­ur­stöð­urnar nokkur von­brigði.

Á und­an­förnum árum hefur Skotum gengið vel að koma sjálf­stæði sínu á dag­skrá stjórn­valda í London. Árið 2014 sam­þykkti David Cameron, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í Skotlandi um sjálf­stæði. Skotar völdu hins vegar að vera áfram í sam­bands­rík­inu Bret­landi. Í kjöl­far Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar fyrir um ári síðan komst krafan um sjálf­stæði á nýjan leik í umræð­una, enda hafði meiri­hluti Skota valið að vera áfram í Evr­ópu­sam­band­inu.

Þrýst­ing­ur­inn á stjórn Theresu May var orð­inn mik­ill í vetur. Viðbúið er að slag­kraftur sjálf­stæð­is­bar­átt­unnar verði minni nú, þegar þjóð­ar­flokkur Skota hefur færri þing­menn í London.

Ástæður þess eru marg­þættar. Fyrir það fyrsta þá tap­aði skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn flestum þing­sætum sínum til íhalds­manna í Skotlandi. Meðal þeirra sem töp­uðu sætum sínum til íhalds­ins voru þeir Angus Robert­son og Alex Salmond. Robert­son hafði verið leið­togi þing­flokks­ins á breska þing­inu og Salmond er fyrr­ver­andi for­maður þjóð­ar­flokks­ins.

Nicola Sturgeon, leið­togi skoska þjóð­ar­flokks­ins, var ekki í kjöri í þing­kosn­ing­unum. Hún var hins vegar von­svikin eftir að talið hafði verið úr kjör­köss­unum. Hún sagð­ist ætla að íhuga stöð­una vand­lega og kynna næstu skref á næst­unni.

Hvernig er breska kosningakerfið frábrugðið því íslenska?

Til breska þings­ins er kosið í svoköll­uðum ein­menn­ings­kjör­dæmum. Kjör­dæmin eru jafn­mörg og þing­sætin, 650, og í hverju kjör­dæmi er aðeins einn þing­maður kjör­inn.

Sá fram­bjóð­andi nær kjöri sem fær flest atkvæði. Ekki þarf að ná meiri­hluta atkvæða heldur aðeins fleiri atkvæði en aðrir ein­stakir fram­bjóð­endur.

Í þessu kerfi getur farið svo að þing­manna­fjöldi flokka sé ekki í neinu sam­ræmi við hlut­falls­legan stuðn­ing við flokka. Eins og sést á nið­ur­stöðum kosn­ing­anna í gær þá hlutu íhalds­menn um 49 pró­sent þing­sæta en aðeins 42 pró­sent atkvæða.

Á Íslandi eru 63 þing­menn valdir í sex kjör­dæmum og mis­margir þing­menn koma úr mis­mun­andi kjör­dæmum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár