Veik staða Theresu May eftir afleita útkomu í kosningum

Yfirlýst mark­mið Theresu May þegar hún boð­aði til þing­kosn­inga í Bret­landi, með skömmum fyr­ir­vara, var að fá sterkara umboð til að semja við ESB um Brexit. Óhætt er að segja að það hafi henni ekki tek­ist.

Theresa May.
Theresa May. Mynd: EPA

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og leið­togi Íhalds­flokks­ins, er með afar veika stöðu eftir þing­kosn­ing­arnar í Bret­landi þar sem Íhalds­flokk­ur­inn missti meiri­hluta á meðan Verka­manna­flokk­ur­inn, með James Corbyn í broddi fylk­ingar, styrkti stöðu sína og bætti við sig þing­sætum.

Þegar staða 643 sæta af 650 liggur fyrir, þá er Íhalds­flokk­ur­inn stærstur með 313 þing­sæti en tapar 12 sætum á meðan Verka­manna­flokk­ur­inn er með 260 og bætir við sig 29, sam­kvæmt breska rík­is­út­varp­inu BBC.

Skoski þjóð­ar­flokk­­ur­inn (SNP) mis­s­ir 21 þing­­sæti og fær 35 menn kjörna, sam­­kvæmt stöð­unni eins og hún er miðað við 643 þing­sæti.

Frjáls­­lynd­ir demó­krat­ar fá þá 12 þing­­menn og fjölg­ar sæt­um þeirra á þing­inu um fjögur.

Erfitt er að segja til um hvernig mál munu þró­ast og hvernig rík­is­stjórn verður mynduð, en James Corbyn hefur þegar kallað eftir því að May segi af sér, og rými fyrir mögu­leika á myndun rík­is­stjórnar sem þjóðin getur sætt sig við.

Til þess að ná sigri í kosn­ingum og mynda meiri­hluta þarf 326 þing­sæti, og því bendir allt til þess að sam­steypu­stjórn verði mynduð.

May boð­aði til þing­kosn­ing­anna með skömmum fyr­ir­vara í vor, og sagð­ist meðal ann­ars vilja fá skýr­ara umboð til þess að leiða Bretland í samn­inga­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið vegna útgöngu lands­ins úr sam­band­inu. Ljóst er að þetta mark­mið náð­ist ekki, og erfitt að segja til í hvaða far­veg Brexit málið fer nú.

Pundið féll umtals­vert þegar fyrstu tölur birt­ust, sem bentu til taps Íhalds­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár