May myndar ríkisstjórn með Norður-Írum

Theresa May fer til fundar við drottn­ing­una í dag til þess að óska eftir umboði til að mynda rík­is­stjórn byggða á þing­meiri­hluta með sam­steypu íhalds­flokks­ins og norður-írskra sam­bands­sinna.

Theresa May er forsætisráðherra Bretlands. Kosningarnar áttu að styrkja stöðu Íhaldsflokksins en hafa veikt stöðu flokksins á þingi.
Theresa May er for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Kosn­ing­arnar áttu að styrkja stöðu Íhalds­flokks­ins en hafa veikt stöðu flokks­ins á þingi. Mynd: EPA

Theresa May, leið­togi Íhalds­manna í Bret­landi, hefur náð sam­komu­lagi við norður-írska sam­bands­flokk­inn um rík­is­stjórn­ar­sam­starf.

Íhalds­flokk­ur­inn náði ekki meiri­hluta á þing­inu í kosn­ing­unum haldnar voru í Bret­landi í gær og þurfa þess vegna að mynda minni­hluta­stjórn eða sam­steypu­stjórn.

Frá þessu er greint á vef breska dag­blaðs­ins The Guardian.

Theresa May er sögð hafa óskað eftir fundi með Elísa­betu drottn­ingu í dag þar sem hún mun óska eftir umboði til þess að mynda nýja rík­is­stjórn íhalds­flokks­ins með stuðn­ingi lýð­ræð­is­lega sam­bands­flokks­ins í Norður-Írlandi. May, for­sæt­is­ráð­herra í meiri­hluta­stjórn Íhalds­manna fyrir kosn­ing­arnar, mun þess vegna leiða minni­hluta­stjórn eftir kosn­ing­arnar.

[adspot]

Þegar kunn­gjört hefur verið um 649 af 650 sætum í breska þing­inu þá hefur Íhalds­flokk­ur­inn 318 sæti (326 sæti þarf til að mynda hreinan meiri­hluta), Verkama­manna­flokk­ur­inn 261 sæti. Sam­bands­flokkur Norður-Írlands hefur 10 sæti.

[links]Samtal um sam­starfið hófst, sam­kvæmt heim­ildum The Guardian, seint í nótt. „Við viljum að það sé rík­is­stjórn. Við höfum unnið vel með May. Hinn kost­ur­inn er óþol­andi,“ er haft eftir heim­ild­ar­manni innan írska sam­bands­flokks­ins.

Samstarf Íhalds­manna og sam­bands­sinna í Norður-Írlandi mun setja samn­inga­við­ræður um útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu í annað ljós. Sam­bands­sinnar hafa gert þá kröfu að Norður-Írland fái ekki „sér­staka stöðu“ innan Bret­lands eftir að hafa sagt skilið við ESB.

Sam­sbands­sinnar hafa áhyggjur af því að ef Norður-Írland fái „sér­staka stöðu“ innan Bret­lands eftir Brexit þá muni það á end­anum kljúfa Norður-Írland enn frekar frá Bret­landi. Sinn Féin, þjóð­ar­flokkur Norður-Írlands, hefur gert það að sínu helsta umfjöll­un­ar­efni að Norður-Írar fái sér­staka stöðu innan breska sam­bands­ins eftir Brexit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár