May fórnar kosningamálum í stefnu minnihlutastjórnar

Heimsókn Trump til Bret­lands hefur verið frestað. Drottn­ingin flutti stefnu­ræðu rík­is­stjórnar Theresu May í breska þing­inu. Brexit vegur þungt í stefnu stjórn­valda og stór kosn­inga­mál íhalds­manna kom­ast ekki að.

Elísabet II Englandsdrottning flutti stefnuræðu stjórnvalda í upphafi nýs þings. Karl Bretaprins sat með henni við upphaf þingsins, því eiginmaður hennar Filipus prins var lagður inn á sjúkrahús í gærkvöldi.
Elísabet II Eng­lands­drottn­ing flutti stefnu­ræðu stjórn­valda í upp­hafi nýs þings. Karl Breta­prins sat með henni við upp­haf þings­ins, því eig­in­maður hennar Filipus prins var lagður inn á sjúkra­hús í gær­kvöldi.

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra og leið­togi minni­hluta­stjórnar Íhalds­flokks­ins í Bret­landi, hefur þurft að fórna stórum kosn­inga­málum í stefnu­skrá nýrrar rík­is­stjórnar sinnar. Elísabet II Eng­lands­drottn­ing flutti stefnu­ræðu minni­hluta­stjórn­ar­innar í breska þing­inu í Westminster í dag.

May leiðir minni­hluta­stjórn Íhalds­flokks­ins sem mynduð var í kjöl­far þing­kosn­inga í Bret­landi fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Minni­hlut­inn mun halda velli í krafti sam­komu­lags milli íhalds­manna og Lýð­ræð­is­lega sam­bands­flokks­ins í Norður-Írlandi, sem mun verja minni­hlut­ann og kjósa með mik­il­vægum málum. Í stað­inn fá stefnu­mál norð­ur­írska flokks­ins aukið vægi í þing­inu.

Átta flókin Brexit-frumvörp

Í stefnu­ræð­unni segir af áætlun rík­is­stjórn­ar­innar í Brexit-málum að sam­tals átta frum­vörp verði lögð fram til þess að afnema Evr­ópu­reglur og inn­leiða breskar reglur í stað­inn.

Frum­vörpin munu meðal ann­ars inni­halda lög sem gera breskum stjórn­völdum kleift að skil­greina eigin inn­flytj­enda­stefnu, leggja eigin tolla og áætla við­skipta­kjör og -samn­inga, óháð evr­ópsku reglu­verki sem sam­þykkt er í Brussel.

Stefnuræðan fjallar hins vegar ekki um frek­ari útfærslu á nýrri inn­flytj­enda­lög­gjöf eða við­skipta­samn­ingum.

[adspot]

Brexit-málin munu eflaust verða hita­mál þings­ins, enda snú­ast þau í grunn­inn um að Evr­ópu­lög­gjöfin sem inn­leidd var árið 1972 verði afskrifuð og ný bresk lög sam­þykkt í stað­inn. Þarna skap­ast ofboðs­leg tæki­færi fyrir stjórn Theresu May að hafa áhrif á breskt sam­fé­lag, en um leið verður það flókið verk­efni að lenda málum þannig að þing­heimur geti rætt málin án of mik­illa tafa.

For­sæt­is­ráð­herr­ann May von­ast til þess að geta afgreitt stefnu­mál sín á næstu tveimur árum. Verkefni hennar varð mun flókn­ara í kjöl­far kosn­ing­anna í byrjun mán­að­ar­ins þegar flokkur hennar tap­aði þing­meiri­hluta. Í kjöl­farið hefur hún þurft að verj­ast inn­an­flokksandúð og þurft að leggja meira á sig til að sann­færa flokks­menn um ágæti sitt.

Meðal þeirra inn­an­rík­is­mála sem ný rík­is­stjórn May hygg­ist ætla að leggja fram eru miklar breyt­ingar á tækni­námi í Bret­landi og stofnun nýrrar nefndar gegn öfga­hyggju.

Fyrir utan stofnun nýrrar nefndar er ekki rætt frekar um aðgerðir gegn hryðju­verkum í stefnu­ræð­unni. Þess í stað fjallar ræðan um end­ur­skoðun hryðju­verka­laga í kjöl­far nýlegra árása á breska borg­ara.

[links]May lagði mikla áherslu á end­ur­bætur á mennta­kerf­inu í kosn­inga­bar­átt­unni en í stefnu­ræð­unni er hvergi gengið jafn langt og May hefur lofað.

Fær Trump ekki að koma í heimsókn?

Að venju taldi drottn­ingin upp þær opin­beru heim­sóknir sem eru á döf­inni hjá breskum stjórn­völdum. Á þeim lista var nafn Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, ekki. Drottn­ingin sagð­ist samt ætla að taka á móti öðrum þjóð­höfð­ingjum sem hafa fengið heim­boð til Bret­lands, eins og kon­ungs­hjónin frá Spáni sem koma í júlí.

Þegar May var í opin­berri heim­sókn í Washington bauð hún Trump í opin­bera heim­sókn til Bret­lands, eins og for­sæt­is­ráð­herrum og for­setum Bret­lands og Banda­ríkj­anna er tamt að gera.

Und­an­farið hefur Donald Trump haft sífellt meira að segja um bresk mál­efni og hefur for­set­inn skipt sér opin­ber­lega af breskum inn­an­rík­is­málum. Það hefur farið fyrir brjóstið á breskum stjórn­mála­mönnum og almenn­ingi sem hefa hvatt May til þess að draga heim­boðið til baka.

Trump hefur sjálfur sagst ekki vilja koma til Bret­lands ef við­búið sé að fjölda­mót­mæli verði skipu­lögð gegn honum.

Það er hins vegar óljóst hver staða heim­sókn­ar­innar er. Breskir fjöl­miðar virð­ast hins vegar túlka orð drottn­ing­ar­innar sem stað­fest­ingu á því að heim­sókn­inni hafi verið frestað um óákveð­inn tíma.

Áhuga­samir um form­festu og breskt lýð­ræði hafa eflaust gaman af því að fylgj­ast með athöfn­inni frá upp­hafi til enda. Kjarninn fjall­aði um hefð­irnar á dög­unum þar sem finna má lýs­ingu á helstu atriðum athafn­ar­innar.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár