Ákvörðun kjararáðs verður líklega ekki snúið

Ákvörðun kjara­ráðs um hækk­anir á launum alþing­is­manna, ráð­herra og opin­berra starfs­manna verður „að ölluml íkindum“ ekki snúið.

Benedikt Jóhannesson er formaður efnhags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Benedikt Jóhann­es­son er for­maður efn­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Launa­hækk­unum alþing­is­manna, ráð­herra, for­seta og ann­arra opin­berra starfs­manna verður að öllum lík­indum ekki snúið af Alþingi. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, seg­ist ekki búast við breyt­ingum, í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag.

„Ég býst ekki við því að hróflað verði við úrskurði kjara­ráðs, þrátt fyrir óánægju,“ er haft eftir Benedikt í frétt Morg­un­blaðs­ins í dag. Hann bendir á að með ákvörð­unum kjara­ráðs 29. októ­ber síð­ast­lið­inn sé verið að leið­rétta alls konar inn­grip und­an­far­inna ára.

Formenn allra stjórn­mála­flokka á Alþingi hafa hins vegar sent for­sætis­nefnd bréf þar sem nefnd­inni er bent á að fjalla um starfstengdar greiðslur til þing­manna. Fjallað var um málið í for­sætis­nefnd á mið­viku­dag og deilt um hvaða lausnir ættu að vera gerðar, sam­kvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnti laga­frum­varp í sumar þar sem hlut­verki kjara­ráðs verður umbylt verði það sam­þykkt. Frum­varpið er nú til umfjöll­unar í efna­hags- og við­skipta­nefnd þings­ins. Í frum­varp­inu fel­ast miklar breyt­ingar á hlut­verki kjara­ráðs og mörg hund­ruð emb­ætt­is­menn og opin­berir starfs­menn verða færðir undan ákvörð­unum ráðs­ins og veittur samn­ings­réttur.

Kjarninn hefur sagt frá því að prestar séu meðal þeirra sem vilji áfram heyra undir ákvarð­anir kjara­ráðs. Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur ákveðið að taka ekki til­lit til óska presta. Þetta kom fram í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð sem þing­menn allra flokka sem sæti eiga á þingi nema Pírata skrifa und­ir.

Sam­kvæmt frum­varp­inu munu kjör bisk­ups, vígslu­bisk­ups, pró­fasta og presta þjóð­kirkj­unnar ráð­ast af samn­ingum innan kirkj­unnar í fram­tíð­inni en þar til að sam­komu­lag hefur náðst við þjóð­kirkj­una um nýtt launa­fyr­ir­komu­lag mun nýtt ákvæði til bráða­birgða vera í lögum tryggja að launa þeirra verða áfram ákvörðuð af kjara­ráð­i.

Mikil umræða fór fram um laun emb­ætt­is­manna og þing­manna í aðdrag­anda kosn­ing­anna í haust. Launa­hækk­anir til þing­manna og ráð­herra tóku gildi á nýju kjör­tíma­bili. Laun Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjóra í Reykja­vík, voru meðal þeirra sem hefðu hækkað en borgin hefur tekið ákvörðun um að hækka ekki laun borg­ar­stjóra og borg­ar­full­trúa í takt við laun ráð­herra. Enn á þó eftir að ákveða með hvaða hætti laun borg­ar­full­trúa og -stjóra verði ákvörðuð. Dagur er einn þeirra sem hefur gagn­rýnt hækk­anir laun­anna. Hann sagði frá­leitt að laun topp­anna í sam­fé­lag­inu hækk­uðu langt umfram þær línur sem sömu toppar hafi lagt varð­andi kjara­þróun í land­inu í nafni stöð­ug­leika. „Þetta er órétt­látt og rangt og má ekki standa,“ sagði hann um ákvörðun kjara­ráðs.

Kjarninn sagði einnig frá því í sumar að í úttekt viku­rits­ins Vís­bend­ingu komi fram að laun Alþing­is­manna og ráð­herra hafi breyst lítið árið 2015 miðað við laun þerra árið 2008. Laun þeirra hafi dreg­ist aftur úr og launa­skrið þess­ara starf­stétta er ekki jafn hratt og meðal for­stjóra, banka­manna og næst­ráð­enda, þe. þeirra sem að jafn­aði eru með hæstu launin.

Uppfært kl. 13:16 27. des­em­ber 2016 – Ekki var sagt frá bréfi for­manna flokk­anna í þess­ari frétt í morgun. Því hefur nú verið bætt við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár