Vinnumálastofnun mun ekki afhenda lista yfir þau fyrirtæki sem nýta hlutabótaleiðina

Vinnu­mála­stofnun telur sig hvorki hafa heim­ild til að afhenda né birta lista yfir þau fyr­ir­tæki sem gert hafa sam­komu­lag við starfs­menn sína um minnkað starfs­hlut­fall.

Vinnu­mála­stofnun vill koma því á fram­færi að hún telur sig hvorki hafa heim­ild til að afhenda né birta lista yfir þau fyr­ir­tæki sem gert hafa sam­komu­lag við starfs­menn sína um minnkað starfs­hlut­fall. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

„Þessi afstaða stofn­un­ar­innar byggir á lögum um per­sónu­vernd því það liggur fyrir að ef birtur er listi fyr­ir­tækj­anna þá er auð­veld leið að finna út nöfn þeirra sem fengið hafa greiddar atvinnu­leys­is­bætur í minnk­uðu starfs­hlut­falli.

Það er óum­deilt, að rík skylda hvílir á stofn­un­inni að gæta þess að engin leið sé að nálg­ast upp­lýs­ingar um það, hvaða ein­stak­lingar fái greiðslur frá henni, hvort sem um er að ræða atvinnu­leys­is­bætur, fæð­ing­ar­or­lof, greiðslur úr Ábyrgða­sjóði launa og svo fram­vegis,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Um greiðslur til ein­stak­linga í minnk­uðu starfs­hlut­falli gildi sömu lög og reglur.

Til að taka af allan vafa mun Vinnu­mála­stofnun leita álits Per­sónu­verndar hið fyrsta og óska eftir flýti­með­ferð á erindi sínu, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár