Varaþingmaður Sjálfstæðisflokks gerir ráð fyrir klofningi flokksins

Vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir „óhjá­kvæmi­legt“ að nýr stjórn­mála­flokkur til hægri við flokk­inn verði til, ef þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins haldi áfram stuðn­ingi við frum­varp vara­for­manns flokks­ins um bókun 35 og standi ekki vörð um grunn­stefnu sína. Arnar Þór Jónsson segir skýr skila­boð um þetta hafa komið fram á fundi Félags sjálf­stæð­is­manna um full­veld­is­mál sem fram fór í Valhöll í gær.

Bókun 35
Bókun 35 Arnar Þór Jónsson fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari er vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en hefur gagn­rýnt for­ystu flokks­ins harð­lega upp á síðkastið vegna ýmissa mála.

Arnar Þór Jónsson, fyrsti vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, gerir að því skóna að ef þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins haldi áfram stuðn­ingi sínum við frum­varp utan­rík­is­ráð­herra um svo­kall­aða bókun 35 myndi flokk­ur­inn „hrekja frá sér sína dygg­ustu stuðn­ings­menn“ og stuðla að klofn­ingi flokks­ins.

Í blogg­færslu sem vara­þing­mað­ur­inn birti í morgun, undir fyr­ir­sögn­inni „Sjálfs­morðs­leið­angur Sjálf­stæð­is­flokks­ins?“ segir hann frá því að í gær hafi farið fram fjöl­mennur fundur Félags sjálf­stæð­is­manna um full­veld­is­mál, þar sem ein­hugur hafi verið um að „forða verði Sjálf­stæð­is­flokknum frá skip­broti“, koma honum „út úr þeirri haf­villu sem hann hefur ratað í“ og „afstýra því að hann verði í stöðugri til­vist­ar­kreppu og þreyt­andi eft­ir­sókn eftir stunda­vin­sældum“.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf að standa undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar: Hér þarf aukið aðhald í rík­is­fjár­málum. Koma þarf stjórn á inn­flytj­enda­málin áður en þau sliga hér inn­viði, þ.m.t. heil­brigð­is­kerfi, mennta­kerfi, hús­næð­is­mál og lög­gæslu. Standa ber vörð um okkar kristna menn­ing­ar­arf og íslenska …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Ja Sjalfstæðisflokkurinn er afl hin Illa og stendur vörð um Græðgi og mismunar folki td Eldri Borgurum Öryrkjum og Jaðarsettu folki. Græðgi er þar a fullu. Þennan Flokk þarf að kvila og þott fyr hefði verið. EU Aðild mun bæta kjör þeirra sem vest standa. Matur mun lækka Kronan mun kverfa og svo margt. Flokkurinn var við völd i Reykjavik svo lengi sem elstu menn muna. Svo var honum ytt til hliðar. Borgin BLOMSTRAR NU.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Réttast væri að leggja niður Sjálfstæðisflokkinn, helstu glæpasamtök Íslands.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár