Unglingsstúlkur íslamska ríkisins

Þær koma úr venju­legum milli­stétt­ar­fjöl­skyldum, hanga í tölv­unni og hafa mán­uðum saman rabbað við hátt­setta menn íslamska rík­is­ins. Þetta er saga af fimm stúlkum; tvær þeirra eru þá þegar komnar til Sýrlands.

Hvað fær franskar ung­lings­stúlkur til þess að flýja til Sýrlands og fara berj­ast fyrir íslamska ríkið? Undirbúa hryðju­verka­árásir í eigin landi? Dag­blaðið Le Monde birti nýlega athygl­is­verða blaða­grein um þetta mál sem byggir á lög­reglu­rann­sókn á nokkrum ung­lings­stúlkum sem eru ýmist á leið til Sýrlands eða ný komnar þaðan.

Slík rann­sókn hefur aldrei þekkst áður í Frakka­landi. Hún bein­ist að frönskum börnum, ósköp venju­legum, ráð­viltum ung­lings­stúlkum á aldr­inum fjórtán til nítján ára sem hættu­legir menn hafa ruglað í og heila­þvegið. Stúlkur á gelgju­skeið­inu, í vand­ræðum með sjálfs­mynd­ina, fram­tíð­ina, aðstæður sínar og þrá ann­ars­konar líf – í þessu til­felli íslamska öfga­stefnu og fá að drepa í nafni Allah.

Þær koma úr venju­legum milli­stétt­ar­fjöl­skyldum, hanga í tölv­unni og hafa mán­uðum saman rabbað við hátt­setta menn íslamska rík­is­ins. Þetta er saga af fimm stúlkum; tvær þeirra eru þá þegar komnar til Sýrlands, hinar þrjár hafa heitið þess að fremja hryðju­verk í Frakk­landi.

Strokubarnið Léa

Léa er fjórtán ára gömul stúlka sem býr í París. Fyr­ir­mynd­ar­nem­andi en við­kvæm og á erfitt með tjá sig, grætur oft að ástæðu­lausu. Hún kemur úr múslima­fjöl­skyldu, faðir hennar er ætt­aður frá Alsír en er trú­laus. Móðir hennar ber ekki slæðu. Þetta er frjáls­lynd, venju­leg, frönsk fjöl­skyla. En allt í einu fyrir tveimur árum síðan fær Léa skyndi­lega mik­inn áhuga á Islam og fer að hylja and­lit sitt með slæðu, sem vekur dræmar und­ir­tektir á heim­il­inu.

Þann 18. júní 2014 lætur stúlkan sig hverfa. Á þeim tíma þegar bekkj­ar­fé­lagar hennar í gagn­fræða­skól­anum eru að mæta á mötu­neytið er hún á leið­inni með 12:25 lest­inni til Amster­dam. Klukkan 18:15 sendir hún pabba sínum síma­skila­boð, í síð­asta sinn, og stígur um borð í flug­vél á leið til Istanbúl. Síðan tekur við tíu tíma ferða­lag í rútu og þá er hún komin að landa­mærum Tyrk­lands og Sýrlands. Þar er tekið á móti henni og hún keyrð til Rakka í Norður-Sýrlandi. Á einum degi hefur líf hennar gjör­breyst – hún er orðin rík­is­þegn „Caliphate“ – þáttak­andi í bylt­ingu íslamska rík­is­ins og hún er sam­stundis kynnt fyrir til­von­andi eig­in­manni sínum, sem er átta árum eldri en hún.

Hún skildi eftir lítið kveðju­bréf heima hjá sér, setti það undir dýn­una í rúm­inu sínu:

„Þið eruð vafa­laust upp­full af áhyggjum, en eftir tíu klukku­tíma verð ég orð­inn með­limur ríkis þar sem ég get stundað trú mína eðli­lega og af fullri reisn. Ég er komin til hinnar heilögu borgar Cham í Sýrlandi; komin til fyr­ir­heitna lands­ins, dögun hins nýja heims er í nánd. Ég yfir­gaf ykkur vegna þess að ham­ingja mín er í húfi, ég vil fá að lifa í trúnni. Pabbi afneitar djil­beb og mamma, þú leyfir mér ekki að hætta í skól­anum“

Léa, ókunnug um skil­grein­ingu Cham eða al-Sham, sem sögu­lega vísar til stórs svæðis á Mið­aust­ur­löndum en ekki borgar, lætur þess ekki getið hvar hún hyggst fara eða hvað bein­línis bíði hennar. Hún veit það ekki sjálf á þess­ari stundu. Franska lög­reglan og leyni­þjón­ustan kemst fljót­lega að því að hún hefur und­an­farið verið í sam­skiptum á Facebook við Abu Saad Al Maghrebi, víga­mann íslamska rík­is­ins, sem er franskur rík­is­borg­ari, fæddur í Nimes.

Þeir sem rann­saka málið kom­ast síðan að því að rétt áður en hún yfir­gaf heim­ili sitt var hún sömu­leiðis í sam­bandi við aðrar ungar stúlkur í Frakk­landi. Meðal ann­ars Camille, fimmtán ára gömul, búsett í Suður-Frakk­landi. Þótt hún komi frá algjör­lega trú­lausu heim­ili, faðir hennar ætt­aður frá Alsír og móðir hennar kemur frá kaþ­ólsku heim­ili, þá hefur hún algjör­lega frels­ast; er til­búin að fórna lífi sínu, flýja til Sýrlands og berj­ast þar fyrir íslamska ríkið. Allt eftir að hafa lesið greinar á net­inu og verið þar í sam­skiptum við öfga­fólk. Léa og Camille ræða saman um stríðið, trúnna og fram­tíð­ina.

Léa er líka í sam­skiptum við Juliette sem býr í Norður-Frakk­landi og hefur snú­ist til íslamskrar trúar á aðeins einu ári, hylur and­lit sitt og fer reglu­lega í mosk­una.

Camille og Juliette eru kall­aðar til yfir­heyrslu hjá lög­regl­unni, tveimur dögum eftir hvarf Léu. Þær við­ur­kenna að hafa verið í sam­bandi við hana en neita að hafa tekið þátt í brott­hvarfi hennar. Camille seg­ist samt skilja þessa ákvörðun og segir við lög­regl­una:

„For­eldrar mínir eru trú­leys­ingar. Ég er Salafi. Ég vil til­heyra íslamska rík­inu. Fyrir mér er það Sann­leik­ur­inn“

Lög­reglu­menn trúa vart því sem þeir sjá og heyra. Venjuleg, frönsk ung­lings­stúlka upp­full af trú­ar­hita og í víga­hug sem vill drepa í nafni Allah.

Þann 14. ágúst spjallar Camille við vin­konu sína á Netinu; Fatimu sem er sautján ára gömul. Þær eru hund­fúlar yfir því að geta ekki kom­ist til Sýrlands til þess að berj­ast.

Þær tala um sprengju­árás í Frakk­landi sem önnur frönsk stelpa, Vanessa, nítján ára gömul hefur hvatt þær til þess að taka þátt í. Vanessa er alin upp í krist­inni trú, en er orðin múslimi og nýgengin til liðs við öfga­sveitir í Sýrlandi, mán­uði á undan Léu.

„Hvað er þetta kamikaze?“

Það er lyg­inni lík­ast að fylg­ast með sam­skiptum þess­ara ung­lings­stúlkna á net­inu. Orða­skiptin lýsa reiði, von­brigðum, gyð­inga­hatri, leið­indum, sjálfs­morðs­hug­leið­ingum og ofbeldi:

Camille: -Ef ég get ekki farið til Sýrlands ætla ég að taka þátt í kamikaze In Sha Allah.

Fatima: - Kamikaze hvað?

Camille: - Þú bara sprengir spengju.

Fatima: - Hvar? Ég ætla að reyna vera með!

Camille: - Við ætlum að ráð­ast á rík­is­stjórn­ina! Helst við Eiffel-turn­inn.

Fatima: - Já, en þar gætu verið múslimar.

Camille: - En, við reynum líka að ráð­ast á gyð­inga­hverfin.

Fatima: - Já! Það er líka gyð­inga­hverfi í Lyon.

Þessi hryðju­verka­árás stúlkn­anna er langt frá því að vera þaul­skipu­lögð en Camille hefur samt lýst því að hún ætli að stela skot­vopnum frá föður sínum. Sam­ræð­urnar og sam­skipti þeirra eru upp­full af andúð á gyð­ingum. Camille er aftur kölluð til yfir­heyrslu og segir þar:

„Ég er ekk­ert endi­lega öfga­mann­eskja. Að drepa í nafni Allah eða deyja í sjálfs­morðsárás – þetta er eðli­legur hluti þess að trúa og lifa í trú“

„Þú ættir að sjá hann – hann er ógeðslega sætur“

Umræð­urnar snú­ast um líf og dauða, borg­ara­styrj­öld en líka gelgju­legt rabb um her­menn íslamska rík­is­ins, hug­rekki þeirra og dáðir, og hversu flottum skóm þeir klæð­ast.

Camille: Og í gær, þú veist, þetta var á Facebook, ég sá mynd af bróður, þú veist, uh ... þetta var svona Abu Guitone dæmi, þú skilur?

Fatima - Abu hvað?

Camille: - Og, alveg rosa­legt. Hann fórn­aði sér! Algjör­lega machallah (Guðs vilji), ég meina. Þú hefði átt að sjá þetta. (hlær)

Fatima: - Já?

Camille: - Þú ættir að sjá hann, hann er í ógeðs­lega kúl her­manna­fötum og í Air Max skóm.

Fatima: - Er hægt að fá Air Max í Cham?

Camille: - Já, þeir eru með Air Max. Þegar þeir fórna sér, fá þeir að velja sér föt, þeir eru allir í Air Max. Þú veist Air Max – tenni­stýpan.

Þessar ung­lings­stúlkur sem hafa heill­ast af íslamska rík­inu, sjálfs­morðsárásum og styrj­öldum er ekk­ert eins­dæmi. 867 til­felli hafa verið til­kynnt til franska inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, öfga­fullir franskir ung­lingar sem lík­legir eru til þess að fremja hryðju­verk. Sífellt fleiri franskar konur ganga til liðs við íslamska ríkið: Þær voru um 12% (218 konur) af öllum þeim Frökkum sem fóru til Sýrlands til þess að berj­ast, nú eru þær um 35% (593). Þriðj­ungur þeirra hefur snú­ist til íslamskrar trúar á síð­ast­liðnum árum. Þær virð­ast, af ein­hverjum ástæðum vera rót­tæk­ari en aðrar konur í þessum sam­tökum. Þessar ungu stúlkur vekja mikla eft­ir­tekt hjá her­mönnum íslamska rík­is­ins, sem reyna gjarnan að kom­ast í sam­band við þær og lokka þær til sín.

Camille segir frá þessu í spjalli við vin­konu sína:

„Já, og margir bræður fóru að biðja mig um að gift­ast sér og allt! Eftir að við urðum vinir á Facebook. Þeir eru mjög vin­gjarn­legir og hjálp­legir. Gefa manni góð ráð eins og: „Ekki fara í mosku í Frakk­landi, það er ekki kennt rétt Islam þar, hið rétta Islam er í Cham, við munum kenna þér allt, treystu okkur kæra systir“ – Ég er búinn að fá fullt af bón­orðum, ég á eftir að enda með 50 eig­in­menn þarna.“

Abu Saad Al Maghreb, 22 ára gam­all víga­maður, ætt­aður frá Frakk­landi, sem lokk­aði hina 14 ára gömlu Léu til Sýrlands hefur sent öllum þremur, Léu, Camille og Juliette bón­orð. Hann var fyrsti Frakkinn til þess að birt­ast opin­ber­lega og segj­ast berj­ast fyrir íslamska ríkið. Nýlega sást hann í mynd­bandi á net­inu þar sem hann fagn­aði árás­unum í París 13. nóv­em­ber 2015.

Al Magreb hefur lengi elsts við stelpur á net­inu sem sýna íslamskra rík­inu áhuga, rætt við þær og veitt þeim ýmis­konar ráð­legg­ingar. Hann þykir beita miklum þrýst­ingi og hvetur þær til þess að koma til Sýrlands hið fyrsta áður en landa­mærum þar verði lokað.

Dómskerfið og frönsk viðurlög

Hvernig bregð­ast dóm­stólar við þessum stúlkum? Teljast þær hættu­legar í heima­landi sínu? Eða eru þær ef til vill hættu­leg­astar sjálfum sér? Þrjár konur sem hafa snúið aftur frá Sýrlandi sitja nú í frönsku fang­elsi. Það er frekar litið á þessar konur sem fórn­ar­lömb en stríðs­menn. Ungar konur sem ganga til liðs við íslamska ríkið hafa þurft að þola hópnauðg­anir, pynt­ingar og ýmis­konar við­bjóð og snúa gjarnan til baka, til síns heima­lands, nið­ur­brotnar og örvinglaðar. Þetta er í flestum til­fellum ráð­villt, ungt og hvat­víst fólk sem hefur enga hug­mynd um hvað raun­veru­lega bíður þeirra.

Samkvæmt hug­mynda­fræði íslamska rík­is­ins eiga konur ekki að taka þátt í átökum – þær eiga að sjá um hús­verkin, ala upp börn og þjóna karl­mann­inum, en margir hryðju­verka­sér­fræð­ingar telja engu að síður að þær séu oft mun öfga­fyllri en þeir karl­menn sem ganga til liðs við íslamska ríkið.

Mál þess­ara frönsku stúlkna, sem hér hafa verið rakin, eru til með­ferðar hjá frönskum dóm­stólum. Vanessa er ein þeirra kvenna sem hafa snúið aftur til Frakk­lands. Hún yfir­gaf Sýrland og eig­in­mann sinn í júlí 2015 og situr nú í frönsku fang­elsi. Eftir sjálfs­morð­stil­raunir í fang­els­inu hefur verið reynt að flýta máli hennar.

Dóm­stólar og lög­reglu­yf­ir­völd eiga í vand­ræðum með að afgreiða og rann­saka þessi flóknu og við­kvæmu mál. Frakkar eru opin­ber­lega í stríði við íslamska ríkið, lög­reglan hefur fengið víð­tækar heim­ildir til að koma böndum á hryðju­verka­menn og neyð­ar­lögin gilda enn í Frakk­landi.

Hvernig ber að taka á málum þess­ara ungu stúlkna, sem sumar hverjar eru enn ólög­ráða börn? Camille situr í sér­stöku barnafang­lesi. Hún hefur fengið að hitta fjöl­skyldur barna sem hafa flúið til Sýrlands til þess að berj­ast. Þegar hún kom fram fyrir dóm­stóla í sept­em­ber 2014 reyndi hún að draga í landi með öfga­skoð­anir og sagði að hún hefði verið heila­þvegin og ekki með sjálfri sér. Lög­reglan telur þó að hún sé úlfur í sauða­gæru, hættu­legur víga­maður íslamska rík­is­ins sem þrái ekk­ert heit­ara en að berj­ast áfram í Sýrlandi. Í jan­úar síð­ast liðnum var feng­els­is­dómur hennar fram­lengdur.

Greinin er laus­lega þýdd úr Le Monde. Upp­runa­legu grein­ina má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár