Skorar á stjórnmálaflokkana að tryggja að á Íslandi fái þrifist óháðir fjölmiðlar

BÍ hvetur stjórn­mála­flokka til að setja sér stefnu um hlut­fall aug­lýs­inga­fjár­magns sem veitt er til erlendra miðla og að birta að kosn­ingum loknum sund­ur­liðun á því hve miklu fjár­magni var varið til erlendra miðla ann­ars vegar og íslenskra hins vegar.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ.
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður BÍ. Mynd: Aðsend

Blaða­manna­fé­lag Íslands (BÍ) hefur sent áskorun til stjórn­mála­flokk­ana um að gera það að stefnu­máli sínu að tryggja að á Íslandi fái þrif­ist frjálsir, sjálf­stæðir og óháðir fjöl­miðlar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Auk þess skorar Blaða­manna­fé­lagið á stjórn­mála­flokka að hafa í huga sam­fé­lags­lega ábyrgð sína og mik­il­vægi fjöl­miðla fyrir lýð­ræð­is­lega umræðu í sam­fé­lag­inu þegar ákvörðun er tekin um birt­ingu aug­lýs­inga.

BÍ hvetur stjórn­mála­flokka til að setja sér stefnu, sem birt er opin­ber­lega, um hlut­fall aug­lýs­inga­fjár­magns sem veitt er til erlendra miðla, og jafn­framt að birta að kosn­ingum loknum sund­ur­liðun á því hve miklu fjár­magni var varið til erlendra miðla ann­ars vegar og íslenskra hins vegar.

Staða fjölmiðla ekki einkamál fjölmiðlanna sjálfra

„Fjöl­miðlar eru grund­völlur lýð­ræð­is­legrar umræðu og lýð­ræð­is­legra sam­fé­laga, um það er ekki deilt. Það er einnig óum­deilt að rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur versnað mikið á und­an­förnum árum. Ástæðan er fyrst og fremst stór­felldar breyt­ingar á fjöl­miðla­mark­aði með til­komu erlendra efn­isveitna, sam­fé­lags­miðla og tæknirisa á borð við Facebook og Google sem soga til sín æ stærri hluta af aug­lýs­ingafé. Þá hefur sú þróun orðið að færri eru til­búnir til að greiða fyrir fréttir eða frétta­tengt efni vegna þess mikla fram­boðs sem er af fríu frétta­efni á net­inu.

Staða fjöl­miðla er ekki einka­mál fjöl­miðl­anna sjálfra heldur varðar hún sam­fé­lagið allt. Sterkir, öfl­ugir fjöl­miðlar eru for­sendur þess að hægt sé að veita stjórn­völdum og stór­fyr­ir­tækjum nauð­syn­legt aðhald. Það ætti að vera mark­mið hvers lýð­ræð­is­sam­fé­lags, hverrar rík­is­stjórnar, hvers lög­gjaf­ar­þings, að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja öfl­uga, frjálsa og sjálf­stæða fjöl­miðla­starf­semi í land­inu. Því skorar Blaða­manna­fé­lag Íslands á þá flokka sem bjóða fram í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum að taka upp til­lögur að nauð­syn­legum breyt­ingum sem félagið telur stuðla að því að for­sendur fyrir rekstri fjöl­miðla gjör­breyt­ist,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

BÍ kemur með átta til­lögur til efl­ingar rekstr­ar­um­hverfis íslenskra fjöl­miðla sem finna má hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár