Ólafur Ragnar ætlar að beita sér í stjórnarskrármálinu

Ólafur Ragnar telur gild­andi stjórn­ar­skrá hafa reynst vel eftir hrun og seg­ist hafa ýmis­legt „per­sónu­lega“ fram að færa í umræðum um stjórn­ar­skrána. Fullyrt er að hann sé full­trúi „gamla Íslands“ og að stjórn­ar­skránni verði „ekki breytt á hans vakt“.

Ólafur Ragnar Grímsson for­seti Íslands, sem til­kynnti í dag að hann hygð­ist sækj­ast eftir áfram­hald­andi setu á for­seta­stóli, ætlar að beita sér og taka áfram þátt í umræðum um stjórn­ar­skrár­málið og mögu­legar stjórn­laga­breyt­ingar. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi for­seta á Bessa­stöðum í dag og sagð­ist hann hafa ýmis­legt „per­sónu­lega“ fram að færa í stjórn­ar­skrár­mál­inu. 

„Í minni for­seta­tíð hef ég tekið þátt í umræðu um stjórn­ar­skrána,“ sagði Ólafur Ragnar og bætti því við að stjórn­ar­skrár­málið væri per­sónu­legt áhuga­mál sitt. Sem kunn­ugt er gegndi hann um ára­bil stöðu pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði við háskól­ann. 

„Ég kenndi þessi fræði við Háskóla Íslands árum saman, og lagði mikla vinnu í rann­sóknir og kennslu í þeim efnum, þannig ef ég má segja það sjálfur þá held ég að ég hafi líka per­sónu­lega svona ýmis­legt fram að færa ásamt auð­vitað ýmsum öðrum fræði­mönnum í land­inu í þess­ari umræðu til við­bótar við reynslu for­set­ans,“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

FréttirStjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að við­kvæmum málum“

Þor­steinn Pálm­ars­son, eig­andi Allt-af ehf, fyr­ir­tæk­is­ins sem fjar­lægði vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ seg­ist oft upp­lifa sig á milli steins og sleggju í deilu­málum milli þeirra sem mála á veggi og þeirra sem biðja um að verkin verði fjar­lægð. Hann vann við að hreinsa til eftir mót­mæli í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár