Vilja stofna nýtt embætti umboðsmanns fatlaðra og langveikra

Formaður Öryrkja­banda­lags­ins fund­aði með for­sæt­is­ráð­herra.

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, hefur lagt til við Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, að stofnað verði nýtt emb­ætti Umboðs­manns fatl­aðs og lang­veiks fólks. Þuríður Harpa afhenti Katrínu skrif­lega og rök­studda til­lögu um þetta á fund­inum.

Formleg til­laga um þetta var lögð fram á fundi for­manna ÖBÍ, Þroska­hjálpar og for­sæt­is­ráð­herra.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Öryrkja­banda­lag­inu, en fjallað er um fund Þuríðar Hörpu með Katrínu á vef banda­lags­ins.

Samkvæmt til­lög­unni yrði hlut­verk umboðs­manns fatl­aðs og lang­veiks fólks að taka við erindum frá ein­stak­lingum og fella úrskurði út frá gild­andi lögum, sem væru til grund­vallar skaða­bóta­mála ef ekki er brugð­ist við. Þá hefði emb­ættið það hlut­verk að benda stjórn­völdum á gloppur í íslenskri lög­gjöf um mann­rétt­indi út frá skuld­bind­ingum alþjóða­sátt­mála.

„Grund­vall­ar­mark­mið í Samningi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks (SRFF) er við­ur­kenn­ing á rétti fatl­aðs fólks til að njóta sömu mann­rétt­inda og aðrir sam­fé­lags­þegnar og skyldu aðild­ar­ríkj­anna til að tryggja þau. Embætti umboðs­manns fatl­aðs fólks og sjúk­linga væri liður í inn­leið­ingu og lög­fest­ingu SRFF,“ segir á vef Öryrkja­banda­lags Íslands.

Fram kemur í til­lögu ÖBÍ að sams konar emb­ætti eru starf­rækt ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Mik­il­vægt sé að svona emb­ætti verði sett á stofn hér­lendis sem fyrst enda hljóti það að vera vilji stjórn­valda að tryggja rétt­indi þessa hóps og standa þar með jafn­fætis þeim löndum sem Íslend­ingar bera sig saman við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár