Fólk búsett hér fari í sóttkví eftir komu til landsins

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir vill að fólk búsett hér sem kemur til lands­ins fari áfram í sýna­töku við landa­mærin en fari svo í sótt­kví. Því verði svo boðið upp á aðra sýna­töku eftir 4-5 daga. Hann mun leggja þetta vinnu­lag til við ráð­herra.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Í ljósi þess að tvö virk smit hafa greinst hjá Íslend­ingum nokkrum dögum eftir að þeir komu til lands­ins, eftir að hafa fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu úr landamæra­skimun, ætlar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir að leggja það til að Íslend­ingar og aðrir sem búsettir eru hér fari í sótt­kví í nokkra daga við kom­una. Áfram fari þeir í skimun við landa­mærin. Verði hún jákvæð fer við­kom­andi í ein­angrun en verði hún nei­kvæð þarf við­kom­andi að fara í sótt­kví og er svo boðið að fara í aðra sýna­töku að fjórum til fimm dögum liðnum.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag sagði Þórólfur frá því að Íslend­ingur hefði greinst með smit í gær eftir að hafa fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu við kom­una til lands­ins 20. júní. Sá var að koma frá Albaníu og telur Þórólfur lík­legt, þó enn eigi eftir að rað­greina veiruna, að smitið sé upp­runnið þar í landi.

Fjögur smit greindust í land­inu í gær. Þrír greindust í landamæra­skimun og reynd­ust tvö smitin gömul og fólkið því ekki smit­andi. Nið­ur­stöðum úr mótefna­mæl­ingu á þriðja ferða­mann­inum er að vænta síðar í dag. Eitt smit greind­ist hjá veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans eins og að ofan er rakið.

„Það sem við höfum gert núna er rétt,“ sagði Þórólfur spurður um hvort það hefðu verið mis­tök að opna landa­mærin og bjóða upp á skimun. Hann sagði að alltaf hafi verið ljóst að nið­ur­stöður úr þeirri skimun yrði ekki óyggj­andi og að í reglum sem ferða­menn fá sé þeim upp­álagt að fara gæti­lega, vera nán­ast í sótt­kví, í tvær vikur eftir kom­una. Fyr­ir­komu­lagið með skimun lág­marki áhætt­una en komi aldrei alveg í veg fyrir að veiran komi hingað. „Það er það sem málið snýst um.“

[links]Að opna landa­mærin eftir sex mán­uði hefði aðeins þýtt seinkun á því að veiran komi aftur til lands­ins. „Hún kæmi samt sem áður,“ sagði Þórólfur. „Þó að við hefðum beðið hefðum við verið í akkúrat sömu sporum þá.“

Það að láta Íslend­inga og aðra sem búsettir eru hér fara í sótt­kví en ekki aðra útlend­inga byggir á því að það hefur oft­sinnis sýnt sig að tengsla­netið sem fólk á hér á landi skiptir höf­uð­máli. Fólk sem býr hér er með miklu meira tengsla­net sem gerir það að verkum að miklu lík­legra er að veiran smit­ist frá þeim en útlend­ingum sem hafa hér lítil eða engin tengsl. „Það sáum við í far­aldr­inum í mars og það sjáum við núna.“

Þórólfur segir að útfærsla á nýja fyr­ir­komu­lag­inu, sem sé svipað því og var hér við lýði í vetur, liggi ekki fyrir að fullu en að mik­il­vægt sé að það kom­ist til fram­kvæmda sem fyrst. Þó væri ljóst, sam­kvæmt reglu­gerð um greiðslu fyrir skimun við landa­mæri, að fólk þurfi ekki að borga fyrir próf númer tvö sé farið í það innan 30 daga.

1.100 komið til landsins með einkaflugi

Frá 15. júní hafa rúm­lega 20 þús­und manns komið til lands­ins. Rúmlega 18 þús­und hafa komið í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl, um 800 með skipum og bátum og 1.100 með einka­flugi.

Af þessum fjölda hafa sýni verið tekin frá rúm­lega 15 þús­und ein­stak­lingum. Sex virk smit hafa greinst frá því að landamæra­skimunin hófst.

Á þessum tveimur vikum hafa fjögur inn­an­lands­smit, þ.e. smit sem fólk að utan hefur borið í aðra, greinst. Þau hafa öll komið frá Íslend­ingum.

Hann vildi ekki meina að með hinu nýja fyr­ir­komu­lagi væri verið að stíga skref til baka í aflétt­ingu tak­mark­ana. „Þessi reynsla sýnir að þessi vinna og þessi nálgun með smitrakn­ingu og rað­grein­ingu er að gefa okkur mjög gagn­legar upp­lýs­ingar sem nýt­ast í áfram­hald­andi skipu­lagn­ingu,“ sagði Þórólfur. „Við munum reyna að vinna þetta áfram vís­inda­lega og á þekk­ingu og vit­neskju sem mun gagn­ast okkur til fram­tíðar.“

Spurður um hversu lengi Íslend­ingar gætu þurft að búa við tak­mark­anir á ferða­lögum svar­aði Þórólfur: „Veiran á nægi­legt fóður hér. Við þurfum að búa við ein­hvers konar tak­mark­anir í marga mán­uði, mörg ár eða jafn­vel lengur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár