Fjármálaráðherra Breta tekur U-beygju í afstöðu sinni til hvalrekaskatts

Rishi Sunak áætlar að hval­reka­skattur sem leggst á hagnað breskra olíu- og gas­fyr­ir­tækja muni skila fimm millj­örðum punda í rík­is­kass­ann næsta árið. Þeir pen­ingar munu fjár­magna stuðn­ings­að­gerðir við breskan almenn­ing að hluta til.

Fjármálaráðherra Bretlands Rishi Sunak var ekki sannfærður um hvalrekaskatt í fyrstu en líst nú vel á skynsamlega skattlagningu á gróða orkufyrirtækja.
Fjár­mála­ráð­herra Bret­lands Rishi Sunak var ekki sann­færður um hval­reka­skatt í fyrstu en líst nú vel á skyn­sam­lega skatt­lagn­ingu á gróða orku­fyr­ir­tækja. Mynd: EPA

Kúvend­ing hefur orðið á við­horfi bresku rík­is­stjórn­ar­innar til hval­reka­skatts (e. windfall tax). Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar voru áður mót­fallnir hug­myndum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna um að leggja á sér­stakan hval­reka­skatt á orku­fyr­ir­tæki en nú hefur Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Breta, til­kynnt að slíkur skattur verði lagður á. Sunak gerir ráð fyrir að skatt­ur­inn muni skila fimm millj­örðum punda í rík­is­kass­ann næsta árið, eða sem nemur rúmum 800 millj­örðum króna. Sá pen­ingur verður nýttur til að greiða hluta kostn­aðar við fyr­ir­hug­aðan aðgerð­ar­pakka sem ætlað er að styðja við breskar fjöl­skyldur.

Pakkinn felur í sér 400 punda nið­ur­greiðslu, um 65 þús­und krónur, á orku­kostn­aði allra heim­ila í Bret­landi en talið er að árleg útgjöld breskra heim­ila fyrir hita og raf­magn muni hækka um 800 pund í ár. Sú upp­hæð sam­svarar um 130 þús­und krónum, hækk­unin nemur því rúmum tíu þús­und krónum á mán­uði að með­al­tali. Að auki munu þau sem búa við lak­ari kjör fá styrk frá rík­inu sem nemur 650 pundum, rúmum 105 þús­und krónum, í tveimur greiðslum til að standa straum af hækk­andi fram­færslu­kostn­aði. Alls munu um átta milljón fjöl­skyldur í Bret­landi fá slíkan styrk.

Mesta verðbólga í 40 ár

Líkt og áður segir voru stjórn­ar­liðar í fyrstu and­snúnir hug­myndum stjórn­ar­and­stöðu um hval­reka­skatt. Haft er eftir Rishi Sunak í umfjöllun BBC að hans útfærsla á skatt­inum myndi „skatt­leggja óvæntan hagnað skyn­sam­lega og hvetja til fjár­fest­inga.“ Skatt­ur­inn myndi nýt­ast til að styðja breskan almenn­ing í bar­áttu sinni við hækk­andi verð­lag án þess að auka við skulda­byrði rík­is­ins. Verð­bólga í Bret­landi hefur ekki mælst hærri í 40 ár en í apríl var hún níu pró­sent og hefur mat­væla-, elds­neytis- og orku­verð hækkað umtals­vert á nýliðnum mán­uðum. Á sama tíma skila þar­lend olíu- og gas­fyr­ir­tæki met­hagn­aði.

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra hafði í upp­hafi sínar efa­semdir um hval­reka­skatt, líkt og Sunak, og sagði að slíkur skattur gæti hindrað fjár­fest­ingu fyr­ir­tækja. Sunak hefur nú lagt til að 25 pró­senta skattur legg­ist tíma­bundið á hagnað olíu- og gas­fram­leið­enda. Aftur á móti stæði til að koma á ríf­legum skatta­af­slætti vegna fjár­fest­inga. Fyr­ir­tæki myndu því fá 90 pró­sent end­ur­greiðslu af fjár­fest­ingum sínum, sam­kvæmt til­lögum fjár­mála­ráð­herr­ans.

Skiptar skoðanir meðal bæði stjórnar- og stjórnarandstöðuþingmanna

„Olíu- og gas­iðn­að­ur­inn hagn­ast nú óvenju­lega mikið, ekki vegna nýlegra breyt­inga í áhættu­sækni eða nýsköpun eða skil­virkni, heldur vegna hækk­unar á hrá­vöru­verði sem er drifin áfram af inn­rás Rússa að stórum hluta og því er ég fylgj­andi því að koma á skyn­sam­legri skatt­lagn­ingu á þennan óvenju­lega hagnað,“ sagði Sunak í þing­inu undir háværum frammíköllum þing­manna sem hafa skiptar skoð­anir á mál­inu.

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn gagn­rýna Sunak fyrir að ganga ekki lengra, sér­stak­lega þegar kemur að stuðn­ingi við tekju­lága. Sam­flokks­menn Sunaks eru einnig sumir hverjir efins, segja það ekki í anda Íhalds­flokks­ins að auka skatt­byrði fyr­ir­tækja. Sumir hafa gengið svo langt að kalla hval­reka­skatt­inn sví­virði­legan. Fyrrum for­maður flokks­ins, Sir Iain Duncan Smith, hefur aftur á móti tekið vel í hug­myndir Sunaks og sagt að meira þurfi að gera fyrir tekju­lága þar í landi.

Fordæmi til staðar í Evrópu

Nú þegar hafa nokkur ríki Evrópu ákveðið að fara svip­aða leið. Segja má að stjórn­völd á Spáni hafi tekið af skarið í sept­em­ber í fyrra þegar skattur var felldur niður af orku­reikn­ingum heim­ila vegna hækk­andi orku­verðs. Sú aðgerð hefur í för með sér mikið tekju­fall fyrir spænska ríkið en því er mætt með hval­reka­skatti sem lagður er á orku­fyr­ir­tæki sem hagn­ast á sífellt hækk­andi orku­verði.

Svipaða sögu er að segja frá Ítalíu en for­sæt­is­ráð­herr­ann Mario Draghi hefur kynnt 14 millj­arða evra, eða um 2000 millj­arða króna, stuðn­ing­s­pakka til handa ítölskum fjöl­skyldum sem verður fjár­magn­aður með hækkun skatt­lagn­ingar á hagnað orku­fyr­ir­tækja. Í öðrum löndum álf­unnar á borð við Frakk­land, Þýska­land, Holland, Pólland, Noreg og Svíþjóð hafa stjórn­völd reynt að koma til móts við fjöl­skyldur vegna hækk­andi orku­verðs og verð­bólgu.

Hvalrekaskattur komið til tals hér á landi

Ekki hefur verið talin þörf á því að komið sé til móts við íslensk heim­ili vegna hækk­andi orku­verðs, enda hefur alþjóð­leg hækkun orku­verðs minni áhrif á íslensk heim­ili en þau í öðrum Evr­ópu­löndum, sam­kvæmt minn­is­blaði sem unnið var í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Það skýrist einkum af því að kynd­ing hér á landi er almennt ekki háð olíu og gasi.

Engu að síður hafa hug­myndir um hval­reka­skatt komið til tals hér á landi. Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem jafn­framt á sæti í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál, sagði í febr­úar að hún vildi mögu­lega láta leggja hval­reka­skatt á ofur­hagnað í sjáv­ar­út­vegi og í banka­kerf­inu. „Ég tel óá­­­byrgt að rík­­­is­­­sjóður borgi all­an reikn­ing­inn fyr­ir far­ald­­­ur­inn og tel að bank­­­arn­ir eigi að styðja við þau heim­ili og fyr­ir­tæki, sér í lagi í ferða­­þjón­ustu, sem koma einna verst út úr far­aldr­in­­­um,“ sagði Lilja í sam­tali við Morg­un­blaðið í febr­úar.

Nokkrum dögum síðar nefndi hún á Sprengisandi á Bylgj­unni að hún vildi mögu­lega láta leggja á hval­reka­skatt. „Ef það er ofsa­gróði eða ofur­hagn­aður hjá ein­hverjum aðil­um, þá eigum við að gera það. Ég er líka á þeirri skoðun að þetta ætti að eiga sér stað varð­andi sjá­v­­­ar­út­­­veg­inn. Þar sem við sáum ofur­hagnað í ein­hverjum greinum þá á að skatt­­leggja það,“ sagði Lilja í þætt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár