Ríkisendurskoðun gagnrýnir verklag við veitingu ríkisábyrgðar ÍE og lán Vaðlaheiðarganga

Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýnir verk­lag við veit­ingu rík­is­á­byrgðar á skulda­bréfi við fjár­mögn­unar á starf­semi Íslenskrar erfða­grein­ingar (ÍE) árið 2002 og þegar fjár­mála­ráð­herra fékk heim­ild til að fjár­magna gerð Vaðla­heið­ar­göng árið 2012. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar þar sem fjallað er um rík­is­á­byrgðir og end­ur­lán rík­is­sjóðs. Skýrslan var birt í dag.

Í skýrsl­unni varar Rík­is­end­ur­skoðun við því að ákvæðum laga um rík­is­á­byrgðir sé vikið til hliðar þegar slíkar ábyrgðir eru veittar eða þegar rík­is­sjóður veitir end­ur­lán. Ofan­greind dæmi eru sér­stak­lega nefnd og sagt að í þeim hafi aðkoma Rík­is­á­byrgð­ar­sjóðs, sem hafi skýrt hlut­verk í lögum, verið skert með sam­þykkt sér­laga. „Rík­is­end­ur­skoðun geldur var­hug við þessu verk­lagi,“ segir í skýrsl­unni. Þar segir einnig að Rík­is­á­byrgð­ar­sjóður hafi með form­legum erindum bent fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á vand­kvæði sem tengj­ast fram­kvæmd laga um rík­is­á­byrgðir. Það var meðal ann­ars tví­vegis gert árið 2014. „Í júlí 2015 hafði ráðu­neytið hvorki brugð­ist við ábend­ingum Rík­is­á­byrgða­sjóðs með form­legum hætti né tekið skýra afstöðu til þeirra. Rík­is­end­ur­skoðun telur brýnt að ráðu­neytið geri það og stuðli jafn­framt mark­visst að því að Rík­is­á­byrgða­sjóður geti sinnt hlut­verki sínu í sam­ræmi við lög og reglur“.

Ríkisábyrgðir hafa sexfaldast frá árinu 1997


Rík­is­end­ur­skoðun segir að í árs­lok 2014 hafi rík­is­á­byrgðir numið 1.213 millj­örðum króna. Til við­bótar hafi end­ur­lán rík­is­sjóðs verið um 102 millj­arðar króna. Rík­is­á­byrgðir hafa sexfald­ast frá því að lög um rík­is­á­byrgðir voru sett árið 1997 á sama tíma og vísi­tala neyslu­verðs hefur 2,4 fald­ast.

Í skýrsl­unni segir að þessa þróun megi, að mati Rík­is­á­byrgða­sjóðs, meðal ann­ars rekja til kerf­is­breyt­inga íbúða­lána árið 2004. Þá var útgáfu hús­bréfa hætt og íbúða­bréf komu í stað­inn. Samhliða var láns­hlut­fall lána Íbúða­lána­sjóðs hækkað úr 65 pró­sentum í 90 pró­sent.Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis var fjallað sér­stak­lega um þessa kerf­is­breyt­ingu og sagt að hún hafi endað „illa og varð þjóð­inni dýr­keypt“. Upphaf áforma um 90 pró­sent-lánin má rekja til kosn­inga­lof­orðs Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2003. Hærra veð­hlut­fall var í fram­hald­inu sett í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að þessi breyt­ing hafi leitt til harð­ari sam­keppni Íbúða­lána­sjóðs við fjár­mála­stofn­anir um veit­ingu hús­næð­is­lána. „Þá hafði hrun fjár­mála­kerf­is­ins haustið 2008 einnig mikil áhrif vegna geng­is­lækk­unar krón­unnar og vax­andi verð­bólgu. Frá setn­ingu laga um rík­is­á­byrgðir og fram til árs­loka 2014 námu gjald­fallnar rík­is­á­byrgðir um 33 ma.kr. Stærstan hluta þeirra má rekja til hruns fjár­mála­kerf­is­ins og þá einkum ábyrgða sem tengd­ust Lána­sjóði land­bún­að­ar­ins. Ekki hefur verið mikið um afskriftir þar fyrir utan“.

Íbúðalánasjóður þyngsta ábyrgðin


Allt í allt voru skuldir með rík­is­á­byrgð 45 pró­sent af heild­ar­skuld­bind­ingum rík­is­sjóðs í árs­lok 2014. Stærstu aðil­arnir sem ríkið ábyrgist lán fyrir eru Íbúða­lána­sjóður með 73 pró­sent heild­ar­fjár­hæðar rík­is­á­byrgða og Lands­virkjun með 25 pró­sent. Í skýrsl­unni segir að frá árinu 2012 hafa aðeins tveir aðilar fengið end­ur­lán frá rík­is­sjóði. Þeir eru Lána­sjóður íslenskra náms­manna og fyr­ir­tækið Vaðla­heið­ar­göng hf. Langstærstur hluti af heild­ar­end­ur­lánum rík­is­sjóðs er vegna Lána­sjóðs­ins en í árs­lok 2014 námu lán hans um 91 millj­örðum króna.

Í júní var greint frá því að kostn­aður vegna Vaðla­heið­ar­ganga fari 1,5 millj­arð króna fram úr áætlun, sam­kvæmt mati stjórnar Vaðla­heið­ar­ganga hf. Ríkið lán­aði Vaðla­heið­ar­göngum 8.700 millj­ónir króna á 3,7 pró­senta verð­tryggðum vöxtum, og það fé átti að duga fyrir stofn­kostn­aði. Umfram­kostn­að­ur­inn er þegar orð­inn 900 millj­ónum hærri en allt eigið fé félags­ins og ef fer sem horfir mun lánið ekki duga.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Stærsti aðil­inn sem ríkið ábyrgist lán fyrir er Íbúða­lána­sjóður með 73 pró­sent heild­ar­fjár­hæðar rík­is­á­byrgða.[/caption]

Samkvæmt lögum um rík­is­á­byrgðir frá árinu 1997 er hlut­verk Rík­is­á­byrgð­ar­sjóðs mjög skýrt. Umsögn sjóðs­ins um til­tekna þætti sem til dæmis varða áhættu rík­is­sjóðs af ábyrgðar- og lán­veit­ingu, liggja fyrir í laga­frum­vörpum um veit­ingu þeirra.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að það hafi því verið ætlun lög­gjafans „að álit Rík­is­á­byrgða­sjóðs lægi til grund­vallar slíkum ákvörð­unum. Lög­bundin umsögn sjóðs­ins er þó ekki bind­andi að öðru leyti en því að ef ábyrgð­ar­þegi leggur ekki fram við­eig­andi trygg­ingar að mati sjóðs­ins þá er rík­is­sjóði óheim­ilt að ábyrgj­ast skuld­bind­ingar hans. Rík­is­á­byrgða­sjóði er jafn­framt ætlað að fylgj­ast með rekstri allra aðila sem njóta rík­is­á­byrgða á lánum sínum eða fá end­ur­lán frá rík­is­sjóði, auk þess að sjá um inn­lausn krafna sem falla á rík­is­sjóð vegna slíkra skuld­bind­inga og inn­heimtu þeirra.“

Samþykkt sérlaga skerti aðkomu


Þrátt fyrir að hlut­verk Rík­is­á­byrgða­sjóðs sé skýrt í lögum um rík­is­á­byrgðir eru dæmi um að aðkoma sjóðs­ins að ábyrgðar- eða lán­veit­ingum hafi verið skert með sam­þykkt sér­laga. Þetta var til dæmis gert árið 2002 þegar Alþingi sam­þykkti að veita þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Geir H. Haarde, heim­ild til að ábyrgj­ast skulda­bréf vegna fjár­mögn­unar nýrrar starf­semi Íslenskrar erfða­grein­ingar. Og það var gert aftur árið 2012 þegar sam­þykkt var heim­ild til Oddnýjar Harð­ar­dóttur, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, til að fjár­magna gerð Vaðla­heið­ar­ganga.

Í nið­ur­stöðukafla skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir: „ Í fyrra til­vik­inu var lögum um rík­is­á­byrgðir nán­ast í heild sinni vikið til hliðar með sér­lögum en í því síð­ara var vikið frá ákvæðum sem eiga að tak­marka áhættu rík­is­sjóðs af ábyrgðar- eða lán­veit­ingu. Að auki var hlut­verk Rík­is­á­byrgða­sjóðs við að meta trygg­ingar vegna láns­ins að engu haft með laga­setn­ing­unni. Rík­is­end­ur­skoðun geldur var­hug við þessu verk­lagi. Mik­il­vægt er að ekki sé vikið frá mark­miðum rík­is­á­byrgða­laga þegar veittar eru rík­is­á­byrgðir eða end­ur­lán. Meg­in­til­gangur lag­anna er að lág­marka áhættu rík­is­sjóðs og því telur Rík­is­end­ur­skoð-un brýnt að grunn­reglur þeirra séu ávallt hafðar í heiðri við laga­setn­ingu á þessu sviði“.

Ráðuneytið hefur ekki brugðist við


Rík­is­á­byrgð­ar­sjóður hefur með form­legum erindum bent fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á vand­kvæði sem tengj­ast fram­kvæmd laga um rík­is­á­byrgðir. Það var meðal ann­ars tví­vegis gert árið 2014.

Ábend­ing­arnar eru eft­ir­far­andi:


  1. Mik­il­vægt er að halda mark­mið laga um rík­is­á­byrgðir í heiðri


Rík­is­end­ur­skoðun hvetur fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti til að hafa til­gang og mark­mið laga um rík­is­á­byrgðir ávallt að leið­ar­ljósi þegar það leggur fram til­lögur um veit­ingu rík­is­á­byrgða eða end­ur­lán rík­is­sjóðs. Stofn­unin telur var­huga­vert að lögum um rík­is­á­byrgðir eða ein­stökum ákvæðum þeirra sé vikið til hliðar í þeim til­gangi að greiða fyrir sam­þykkt slíkra skuld­bind­inga. Það geti leitt til auk­innar áhættu fyrir rík­is­sjóð og orðið til þess að laga­setn­ing gangi gegn meg­in­mark­miðum rík­is­á­byrgða­laga.

  1. Efla þarf stjórn­tæki Rík­is­á­byrgða­sjóðs


Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyti þarf að styðja mark­visst við starf Rík­is­á­byrgða­sjóðs svo að hann geti sinnt hlut­verki sínu með árang­urs­ríkum hætti. Í því sam­bandi þarf ráðu­neytið m.a. að veita sjóðnum nauð­syn­legar upp­lýs­ingar og beita sér fyrir því að hann hafi þau stjórn­tæki sem hann þarf til að sinna eft­ir­liti sínu. Þá þarf að gæta þess að lög­bund­inni umsagn­ar­skyldu sjóðs­ins sé ekki vikið til hliðar í aðdrag­anda laga­setn­ingar.

  1. Taka þarf form­lega afstöðu til til­lagna Rík­is­á­byrgða­sjóðs um úrbætur


Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyti er hvatt til að taka sem fyrst form­lega afstöðu til ábend­inga Rík­is­á­byrgða­sjóðs um atriði sem þarf að end­ur­skoða í lögum um ríkis- ábyrgðir og beita sér fyrir úrbótum þar að lút­andi. Þau atriði sem einkum krefj­ast úrlausna snúa að öflun nauð­syn­legra upp­lýs­inga og gagna, kostn­aði við mats­gerðir og lág­marks­fresti til að vinna þær, virkni laga­á­kvæðis um afskrift­ar­reikn­ing og sam­ræm­ingu gjalda vegna rík­is­á­byrgða. Þá er mik­il­vægt að sjóð­ur­inn hafi l

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir: „Í júlí 2015 hafði ráðu­neytið hvorki brugð­ist við ábend­ingum Rík­is­á­byrgða­sjóðs með form­legum hætti né tekið skýra afstöðu til þeirra. Rík­is­end­ur­skoðun telur brýnt að ráðu­neytið geri það og stuðli jafn­framt mark­visst að því að Rík­is­á­byrgða­sjóður geti sinnt hlut­verki sínu í sam­ræmi við lög og reglur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár