Vaðlaheiðargöng 1,5 milljarða fram úr áætlun

Kostn­aður vegna gerðar Vaðla­heið­ar­ganga er tal­inn fara 1.500 millj­ónir fram úr áætlun. Þetta er mat stjórnar Vaðla­heið­ar­ganga í svari við fyr­ir­spurn fjár­laga­nefndar Alþingis, en það kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Ríkið lán­aði Vaðla­heið­ar­göngum 8.700 millj­ónir króna á 3,7 pró­senta verð­tryggðum vöxtum, og það fé átti að duga fyrir stofn­kostn­aði. Umfram­kostn­að­ur­inn er orð­inn 900 millj­ónum hærri en allt eigið fé félags­ins og ef fer sem horfir mun lánið ekki duga.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­maður fjár­laga­nefndar, segir að kostn­að­ur­inn fari lík­lega 14 pró­sent fram úr áætlun og þá þurfi aukið fé til að klára. „Stjórn fyr­ir­tæk­is­ins á þó eftir að fara betur yfir málin og mun skila end­ur­bættri rekstr­ar­á­ætlun í haust og þá mun staðan skýr­ast betur,“ segir Guð­laugur Þór við Morg­un­blaðið.

Hann segir alveg ljóst að ekki hafi verið vandað til verka við und­ir­bún­ing gangn­anna af hálfu stjórn­valda. Gagnrýni hafi komið fram en ekki hafið verið hlustað. Nú sé komið í ljós að gagn­rýnin hafi verið rétt­mæt.

Þessi aukni kostn­aður er kom­inn til vegna vatnsleka í báðum endum gang­anna, Eyja­fjarðar- og Fnjóska­dals­megin. Vinna hófst á ný í lok maí eftir langt stopp vegna vatnsleka og erfitt er að segja til um verk­lok að sögn stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár