Fjórfalt fleiri kaþólikkar og tólf sinnum fleiri múslimar

Á sama tíma og erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað mjög hratt á Íslandi hefur fjölda þeirra sem eru skráðir í Kaþólsku kirkj­una hér­lendis marg­fald­ast. Í byrjun árs voru þeir tæp­lega 13 þús­und. Múslimum hefur líka fjölgað mjög á síð­ustu ára­tugum.

Fjöldi þeirra sem skráðir eru í Kaþólsku kirkj­una á Íslandi hefur næstum fjór­fald­ast frá ald­ar­mótum. Þá voru 3.857 manns skráðir í kirkj­una en um síð­ustu ára­mót voru þeir orðnir 12.901. Frá byrjun árs 2010 hefur kaþ­ólikkum á Íslandi fjölgað um yfir þrjú þús­und. Þetta má sjá úr tölum Hag­stofu Íslands og Þjóð­skrár um breyt­ingar á trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild.

[links]Þeim sem skráðir eru í trú­fé­lög múslima á Íslandi hefur einnig fjölgað mjög á und­an­förnum árum. Árið 1998 voru 78 manns skráðir í Félag múslima á Íslandi. Árið 2017 voru þeir orðnir 542 tals­ins en frá 2010 hafa verið tvö trú­fé­lög múslima hér­lendis. Hitt, Menn­ing­ar­setur múslima, var með 406 með­limi skráða í byrjun árs í fyrra. Fjöldi múslima sem skráðir eru í trú­fé­lög hér­lendis hefur því rúm­lega tólf­fald­ast á 19 árum.

Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað gíf­ur­lega á Íslandi á und­an­förnum árum. Sú aukn­ing hefur verið sér­stak­lega mikil í ár. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins jókst fjöldi þeirra um 6.310. Það er aukn­ing á fjölda erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi um 21 pró­sent frá því sem var um síð­ustu ára­mót. Frá 2010 til sept­em­ber­loka 2017 hafði erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 9.318 í 36.585, eða um 74 pró­sent. Bein fylgni er á milli fjölg­unar erlendra rík­is­borg­ara sem flytja hingað til lands og fjölg­unar í ofan­greindum trú­fé­lögum. 

Meðlimum í Siðmennt og Zúistum fjölgaði mikið

Skráð trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög fá greidd sókn­ar­gjöld með hverjum skráða sókn­ar­fé­laga. Vegna árs­ins 2016 voru sókn­ar­gjöld sem greidd voru til trú- og líf­skoð­un­ar­fé­laga um 2,4 millj­arðar króna. Þar af fóru rúmir tveir millj­arðar króna til íslensku þjóð­kirkj­unnar.

Áratugum saman var skipu­lag mála hér lendis þannig að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­­­­fé­lag móð­­­­ur. Það þurfti því sér­­­­stak­­­­lega að skrá sig úr trú­­­­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það. Þessu var breytt árið 2013 og nú þurfa báðir for­eldrar að til­­heyra sama trú- og lífs­­skoð­un­­ar­­fé­lagi til að barnið sé skráð í félag, ann­­ars skrá­ist barnið utan­ ­trú­­fé­laga. Á sama tíma var ramm­inn utan um hvers kyns félög mættu skrá sig sem trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lög og þiggja sókn­ar­gjöld rýmk­aður.

[adspot]Siðmennt hefur til að mynda verið skráð lífs­skoð­un­ar­fé­lag frá árinu 2013. Félagið er það eina sem berst bein­línis gegn sókn­ar­gjöldum og fyrir algjöru trú­frelsi. Meðlimir í Siðmennt voru í upp­hafi árs 2017 1.789 tals­ins.

Zúistum hefur líka fjölgað mikið á örfáum árum. Þeir voru tveir árið 2014 en fjöldi þeirra rauk upp í rúm­lega þrjú þús­und í byrjun árs 2016, eftir að hópur manna taldi sig hafa tekið yfir félagið og ætl­aði að end­ur­greiða fólki þau sókn­ar­gjöld sem inn­heimt yrði vegna þeirra. Síðan stóð yfir ára­löng bar­átta milli þess hóps og þeirra aðila sem áður höfðu farið með yfir­ráð í félags­skapnum. Sú bar­átta end­aði með sigri hinna síð­ar­nefndu. Zúistar fengu 32 millj­ónir króna greiddar úr rík­is­sjóð vega sókn­ar­gjalda á árinu 2016.

Fjöldi utan trúfélaga hefur tvöfaldast frá 2010

Fjöldi þeirra íbúa á Íslandi sem skráðir eru utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá því í byrjun árs 2010. Þá voru þeir sem voru skráðir utan slíkra félaga 10.336 tals­ins. Um síð­ustu ára­mót var sú tala komin upp í 20.500 og á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2017 bætt­ust 1.021 manns við sem stóðu utan trú- og líf­skoð­un­ar­fé­laga. Heild­ar­fjöldi þeirra í dag er því orð­inn 21.521. Alls eru 111.042 íbúar utan þjóð­kirkj­unn­ar, eða 32 pró­sent allra lands­manna.

111 þúsund standa utan þjóðkirkjunnar

Frá árinu 2009 hefur fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­unni dreg­ist saman á hverju ein­asta ári. Um síð­ustu ára­mót voru þeir 236.481 tals­ins, sem þýddi að undir 70 pró­sent þjóð­ar­innar væri í kirkj­unni.

Það sem af er árinu 2017 hafa 1.261 gengið úr þjóð­kirkj­unni en 488 verið skráðir í hana. Þeim sem í kirkj­unni eru hefur því fækkað um 773 á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í ár, og eru skráðir með­limir því 235.708 tals­ins. Í lok sept­em­ber bjuggu 346.750 manns á Íslandi. Það þýðir því að 111.042 lands­menn standi utan þjóð­kirkj­unn­ar, eða 32 pró­sent þeirra. Um síð­ustu ald­ar­mót var fjöldi þeirra sem stóðu utan þjóð­kirkj­unnar 30.700. Þeim hefur því fjölgað um 80.342 síðan þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár