Stríðsrekstur gegn blaðamönnum, skortur á samstöðu, þöggun og það að skammast sín

Árið 2020 bauð upp á allskyns álita­mál sem ollu deilum í sam­fé­lag­inu. Á þeim flestum var tekið í leið­ara­skrifum í Kjarn­anum á árinu sem er nú að líða. Hér eru mest lesnu leið­arar árs­ins.

5. Stöðu hverra þarf raunverulega að „leiðrétta“? (birtist 21. febrúar 2020) e. Þórð Snæ Júlíusson

„Það er flókið við­fangs­efni að við­halda stöð­ug­leika, takast á við efna­hags­legar áskor­anir vegna áfalla síð­ustu ára og reyna að verja kaup­mátt­ar­aukn­ingu launa á sama tíma. Það skilja all­ir.

En það gengur ein­fald­lega ekki upp að fara í allskyns sér­tækar aðgerðir til að gefa þeim sem ekki þurfa á því að halda pen­inga úr rík­is­sjóði, að leið­rétta laun hálauna­fólks umfram alla eðli­lega launa­þróun og færa fjár­magns­eig­endum hvert tæki­færið á fætur öðru til að auka auð sinn og ítök í sam­fé­lag­inu en ætla svo alltaf að láta þá sem verst standa í sam­fé­lag­inu standa eina eftir „óleið­rétta“.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

4. Að hafa ranga skoðun á Íslandi (birtist 13. júní 2020) e. Þórð Snæ Júlíusson

„Þeir sem reyna að stuðla að heil­brigðri lýð­ræð­is­legri umræðu og veita eðli­legt aðhald, t.d. flestir fjöl­miðlar lands­ins, eru smætt­aðir af ráða­mönnum og við­hlæj­endum þeirra fyrir það. Sér­stök lenska er að ráð­ast gegn nafn­greindu fólki sem starfar í fjöl­miðlum og ásaka það um óheil­indi. Kerf­is­bundið er þrengt að rekstr­ar­um­hverfi þeirra með and­vara­leysi og þegar það nægir ekki eru þeir ásak­aðir um rang­færslur án raka. Sagðir ekki alvöru. „Fake news“.

Harka­leg við­brögð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á fimmtu­dag slógu enda kór­réttan tón inn í kjarna­fylg­is­hóp hans. Þar er að finna ansi marga pils­fald­ar­kap­ít­alista sem gengur illa að skapa sér tæki­færi með eigin verð­leik­um, og treysta því á flokks­holl­ustu sem mat­ar­holu. Í stað­inn, klæddir í hug­mynda­fræði­lega grímu­bún­inga frels­is, taka þeir að sér hlut­verk tudd­ans á skóla­lóð­inni. Taka við gaslamp­anum og lýsa með honum á sam­fé­lags­miðl­anna, sam­hliða því að hlæja dátt að fárán­leika þeirra sem skilja ekki hvernig hlut­irnir virka á Íslandi. Hér skiptir miklu meira máli hver þú ert en hvað þú get­ur.

[adspot]Þess vegna þegir háskóla­fólk­ið. Það er hrætt um að hafa ranga skoð­un. Og að stjórn­mála­menn láti þau gjalda fyrir það.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

3. Við erum augljóslega ekki öll í þessu saman (birtist 15. apríl 2020) e. Þórð Snæ Júlíusson

„Við þessar aðstæður reyndu hags­muna­gæslu­sam­tök útgerð­anna að losna við greiðslu veiði­gjalda, að losna við gjöld á fisk­eldi og að láta draum sinn um að losna við stimp­il­gjald af fiski­skipum verða hluta af neyð­ar­að­gerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Ofan á það bæt­ist að ofur­ríkar stór­út­gerðir eru að láta skatt­greið­endur greiða laun starfs­fólks­ins í land­vinnslu til að verja eigið fé hlut­hafa sinna og sjö útgerðir vilja að skatt­greið­endur borgi þeim skaða­bætur vegna þess að þær fengu ekki nægi­lega mikið af mak­ríl gef­ins.

Hér er um stétt að ræða þar sem örfáir ein­stak­lingar ráða öllu sem þeir vilja. Frekir og fyr­ir­ferða­miklir ein­stak­lingar sem hafa van­ist því að geta gengið um íslenskt sam­fé­lag eins og þjóðin sé til fyrir útgerð­ina, en ekki öfugt. Stétt sem á mörg hund­ruð millj­arða króna í eigið fé. Sem á fjöl­miðla. Sem hefur teygt anga sinna inn á fjöl­mörg önnur svið íslensks atvinnu­lífs og styrkt þannig tang­ar­hald sitt á sam­fé­lag­in­u.

Þessi ofur­stétt ætlar sér ekki að vera saman í þessu öllu með okkur hin­um. Hún er í þessu fyrir sig sjálfa, ekki okkur hin.

Það þarf að segja hátt og skýrt við hana að nú sé komið nóg. Og beita öllum til­tækum tólum til að koma þeim skila­boðum til skila.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

2. Stríðsrekstur fyrirtækis gegn nafngreindu fólki og gagnrýnum fjölmiðlum (birtist 11. ágúst 2020) e. Þórð Snæ Júlíusson

„Það trúir því enda varla nokkur með sæmi­lega með­vit­und að hrein rætni og illska drífi marg­verð­laun­aða rann­sókn­ar­blaða­menn áfram, frekar en metn­aður til að upp­lýsa almenn­ing og segja satt og rétt frá. Sam­herji ætti eig­in­lega að krefja þessa spuna­meist­ara sína um end­ur­greiðslu á útlögðum kostn­aði, þar sem illa hann­aðar árásir þeirra vinna fyr­ir­tæk­inu mun meira skaða en gagn. Árásir sem alþjóð­legt stór­fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi með tug­millj­arða króna veltu á ári birtir á heima­síðu sinni. Þeirri sömu og notuð er í dag­legum við­skiptum þess.

Til­gang­ur­inn er ein­ungis sá að reyna að vega að æru frétta­manns og fjöl­mið­ils sem dirfð­ust að opin­bera Sam­herja. Og hræða aðra frá því að fjalla um fyr­ir­tækið eða eig­endur þess. Und­ir­liggj­andi skila­boðin eru: „Þið gætuð verið næst, sleppið þessu bara“.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

1. Skammist ykkar (birtist 28. mars 2020) e. Þórð Snæ Júlíusson

„Fólki er tíð­rætt um það um þessar mundir að við séum öll saman í þessu. Að sam­stöðu þurfi til svo að hægt sé að sigla í gegnum þetta ótrú­lega ástand. Sú sam­staða vex út úr því að veiran skæða fer ekki í mann­grein­ar­á­lit. Hún getur lagst á alla, óháð því hversu mikla pen­inga þeir eiga, hvort þeir séu lang­skóla­gengnir eða með grunn­mennt­un, hvort þeir eigi ein­býl­is­hús með heitum potti í garð­inum eða leigi litla blokkar­í­búð í úthverfi og hvort þeir vinni í vel borg­aðri vinnu í einka­geir­anum eða hjá hinu opin­ber­a.

Meiri­hluti þjóð­ar­innar virð­ist vera hluti af þeirri sam­stöðu. En það virð­ist nú ljóst að sumir ætli greini­lega að kjósa sér aðra leið við þessar aðstæð­ur. Þeir ætla að bjóða upp á rugl og ætla að sýna algjöran skort á auð­mýkt gagn­vart aðstæð­un­um. Þeir ætla jafn­vel að nýta sér glund­roð­ann.

Þeir ættu að skamm­ast sín.“

Lesið leiðar­ann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár