Hnífaburður er algjört bull

Mik­il­væg­ast af öllu er að vera góður við náung­ann segir Jóhann Ingvi Hjalta­son. Hann biður ung­menni sem finna sig knúin til að ganga með hnífa að staldra við og hugsa sig tvisvar um.

Félagslyndur
Félags­lyndur Jóhann Ingvi Hjalta­son fór í Kvennó fyrir félags­lífið. „Ég er alltaf til í að kynn­ast nýju fólki og hafa gaman. Það er mik­il­vægt að vera góður við náungan, númer eitt, tvö og þrjú.“ Mynd: Heimildin

„Ég fór aðal­lega í Kvennó út af félags­líf­inu og svo bara, æi, ég veit það ekki, skemmti­legt fólk. Það hefur ekki verið neitt verk­fall hjá okkur, þetta hefur ekk­ert mikil áhrif á okkur. Ég er lítið að pæla í þessu. 

Þegar ég var tíu ára þá flutti ég til Wales, ég held að það hafi haft áhrif á mig hvernig ég upp­lifi öðru­vísi menn­ingu, aðal­lega í skól­anum. Í Wales þurfti ég að vera í ein­kenn­is­bún­ingi í skól­anum og ávarpa kenn­ara: Sir, mister og miss. Ég er ekki mikið að gera það í Kvennó. 

Ég er á félags­fræði­braut og myndi segja að ég sé félags­lyndur, ég er alltaf til í að kynn­ast nýju fólki og hafa gaman. Það er mik­il­vægt að vera góður við náung­ann, númer eitt, tvö og þrjú. Ég hef alveg tekið eftir þess­ari umræðu um ungt fólk og ofbeldi. Mér finnst algjört bull að vera með ein­hvern hnífa­burð, þetta er svo steikt.

„Við þá sem finnst þeir þurfa að ganga um með hnífa segi ég bara: Pælið í sjálfum ykkur“

Í kringum mig, eins og hér í skól­anum, hef ég ekki tekið mikið eftir ein­hverju svona. Ég veit ekki hvaðan þetta kemur. Við þá sem finnst þeir þurfa að ganga um með hnífa segi ég bara: Pælið í sjálfum ykkur, hugs­aðu: Hvað ertu eig­in­lega að pæla?“

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár