Frumvarp Páls breytir litlu um samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur lagt fram frum­varp tak­mark­anir á úthlut­aðri afla­hlut­deild. Það gengur mun skemur en aðrar til­lögur sem lagðar hafa verið fram til að draga úr sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi.

Frumvarp Páls Magn­ús­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, um frek­ari tak­mark­anir á úthlut­aðri afla­hlut­deild til hverrar útgerð­ar­blokkar, mun ekki breyta miklu fyrir þær útgerðir sem halda á kvóta í dag. Eina blokkin sem virð­ist verða fyrir áhrifum af frum­varp­inu, verði það sam­þykkt, er Samherji og eru þau áhrif lít­ils­háttar. Auk þess mun Sam­herja­blokkin fá til árs­ins 2026 til að verða við breyt­ing­unum sem lagðar eru til, verði frum­varpið sam­þykkt.

Samkvæmt frum­varp­inu á að gera þá breyt­ingu á lögum um stjórn fisk­veiða hlut­falls­leg eign útgerðar í öðrum sem halda á kvóta telur þegar reikn­aður er út sá kvóti sem blokkin heldur á. Samkvæmt lögum má hver blokk halda á 12 pró­sent af úthlut­uðum kvóta en í gild­andi lögum má eiga allt upp að helm­ingi í annarri útgerð án þess að kvóti sem hún heldur á telj­ist með. Þessi lög eiga að koma í veg fyrir mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­ar­inn­ar. Það mark­mið hefur ekki náðst enda halda þrjár stórar útgerða­blokkir, beint og óbeint, á 44 til 46 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, eftir því hverjir eru taldir til þeirra.

Í grein­ar­gerð með frum­varpi Páls, sem hann er einn skrif­aður á og var lagt fram fyrir helgi, segir að mark­miðið með því sé „að kveða afdrátt­ar­laust á um að þegar ein­stakur aðili kaupir hlut í öðru útgerð­ar­fyr­ir­tæki sem á fiski­skip með afla­hlut­deild, hvort sem keyptur er minni hluti eða meiri hluti, leggst hið nýja hlut­fall afla­heim­ildar við það sem fyrir var í eigu kaup­anda.“

Þar er nefnt eft­ir­far­andi dæmi: Ef eig­andi útgerð­ar­fyr­ir­tækis A sem á fyrir fimm pró­sent afla­hlut­deild kaupir 49 pró­sent í útgerð­ar­fyr­ir­tæki B sem á alls sex pró­sent afla­hlut­deild verður heild­ar­afla­hlut­deild útgerð­ar­fyr­ir­tækis A sam­tals þau fimm pró­sent sem fyrir voru að við­bættum 49 pró­sent af sex pró­sent afla­hlut­deild selj­anda, eða tæp þrjú pró­sent, og alls tæp átta pró­sent. Þeirri breyt­ingu sem lögð er til með frum­varp­inu er því ætlað að koma í veg fyrir að allt að helm­ingur allra afla­heim­ilda geti safn­ast á hendur eins aðila.“

Þorri alls ávinnings situr eftir hjá útgerðunum

Ástæðan fyrir frum­varp­inu er að mikil sam­þjöppun hefur átt sér stað í sjáv­ar­út­vegi á und­an­förnum ára­tugum, eftir að fram­sal kvóta var gefið frjálst og sér­stak­lega eftir að heim­ilt var að veð­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lánum, þótt útgerð­ar­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóðin. Slík heim­ild var veitt árið 1997. Samhliða hefur eft­ir­lit með fram­fylgd laga um stjórn fisk­veiða lengi verið í lama­sessi. Það var til að mynda stað­fest í kol­svartri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem birt var í byrjun árs 2019. Þar gerði hún meðal ann­ars veru­legar athuga­semdir við að Fiski­stofa kann­aði ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deild­um, eða kvóta, væru í sam­ræmi við lög. Eft­ir­lits­að­il­inn sinnti ekki eft­ir­lit­inu.

Samkvæmt síð­ustu birtu tölum Fiski­stofu, sem gefnar voru út í lok apríl, héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins sam­tals á tæp­lega 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Sú tala hefur hækkað síðan þá. Þrjár stærstu blokk­irnar í sjáv­ar­út­vegi: Samherji/Síld­ar­vinnslan, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur/Brim og félög tengd Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga halda á meg­in­þorra þess kvóta, eða um 44 pró­sent alls úthlut­aðs kvóta.

Þetta hefur gerst á sama tíma og hagur útgerða heilt yfir – vöxtur á eigin fé þeirra ásamt útgreiddum arði – hefur vænkast gríð­ar­lega, nánar til­tekið um 480 millj­arða króna á ára­tug. Á sama tíma­bili greiddu útgerðir lands­ins 70 millj­arða króna í veiði­gjöld. Af virð­is­aukn­ing­unni sem varð í geir­anum fóru því tæp 13 pró­sent til eig­anda auð­lind­ar­innar en 87 pró­sent varð eftir hjá þeim sem fá að nýta hana.

Frumvarp Viðreisnar og annarra andstöðuflokka

Nokkrar til­raunir hafa verið gerðar til að taka á þess­ari miklu sam­þjöppun og brjóta upp hringa­mynd­anir í sjáv­ar­út­vegi

Fyrir um ári síðan, nánar til­tekið 6. des­em­ber 2019, lögðu til að mynda þing­menn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum: Viðreisn, Sam­fylk­ingu og Pírötum, fram frum­varp sem fól í sér kúvend­ingu á því kerfi sem er við lýði vegna nýt­ing­ar­réttar á fisk­veiði­auð­lind­inni.

Í frum­varp­inu fólust þrjár megin breyt­ingar. Í fyrsta lagi yrðu þeir aðilar skil­greindir sem tengdir sem eiga að minnsta kosti tíu pró­sent hluta­fjár í öðrum sem heldur á meira en eitt pró­sent kvóta. Sama átti að gilda um kröfur sem gerðu það að verkum að ætla megi að eig­andi þeirra hafi áhrif á rekstur aðila sem ræður yfir eitt pró­sent hluta­fjár eða meira. Samkvæmt gild­andi lögum þarf sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að eiga meiri­hluta í annarri útgerð til að hún telj­ist tengd, en eft­ir­lit með því hvað telj­ist tengdir aðilar hefur auk þess verið í lama­sessi.

Í öðru lagi gerði frum­varpið ráð fyrir að allir þeir sem ráða yfir eitt pró­sent heild­ar­afla­hlut­deildar þurfi að stofna hluta­fé­lag um rekst­ur­inn og skrá félagið á markað. Það myndi þýða, að óbreyttu, að 21 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki þyrftu að skrá sig á markað til við­bótar við Brim, sem er eina fyr­ir­tækið sem heldur á kvóta sem er skráð í dag.

Í þriðja lagi lagði frum­varpið til að settar yrðu tak­mark­anir við hluta­fjár­eign eða atkvæð­is­rétt ein­stakra hlut­hafa og tengdra aðila í útgerðum sem fara með átta til tólf pró­sent af kvóta. Í frum­varp­inu sagði að í slíkum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum ætti eng­inn aðili, ein­stak­lingur, lög­að­ili eða tengdir aðilar, að eiga „meira en tíu pró­sent af hlutafé, stofnfé eða atkvæð­is­rétti í við­kom­andi aðila. Þessu ákvæði er ætlað að koma í veg fyrir frek­ari sam­þjöppun eign­ar­að­ildar í allra stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var fyrstu flutningsmaður frumvarps um dreifðari eignaraðild á sjávarútvegsfyrirtækjum sem lagt var fram fyrir um ári síðan. Það frumvarp hefur síðan dagað uppi.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, var fyrstu flutn­ings­maður frum­varps um dreifð­ari eign­ar­að­ild á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum sem lagt var fram fyrir um ári síðan. Það frum­varp hefur síðan dagað uppi.

Frum­varpið, sem unnið var af þing­mönnum Við­reisnar sem fengu svo stuðn­ing úr hinum flokk­unum tveimur, fékk að ganga til atvinnu­vega­nefndar þar sem það var svæft.

Sex ár til að laga tengda aðila

Vegna þessa skap­að­ist nokkur þrýst­ingur á úrbætur og skipuð var verk­efna­stjórn sem fékk það hlut­verk að leggja til slíkar. Vinnu hennar var flýtt eftir að Sam­herj­a­málið svo­kall­aða, sem snýst um meintar stór­felldar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis lands­ins, var opin­berað.

Í febr­úar 2020 kynnti Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, drög að frum­varpi um breyttar skil­grein­ingar á því hvað telj­ist tengdir aðil­ar sem byggði á vinnu verk­efna­stjórn­ar­innar.

Í þeim drögum kom fram að þeir sem laga­breyt­ingin hefur áhrif á munu hafa fram á fisk­veiði­árið 2025/2026 til að koma sér undir lög­bundið kvóta­þak, eða sex ár.

Í til­­lög­un­um, sem voru fimm tals­ins, fólst að skil­­grein­ing á tengdum aðilum verði látin ná til hjóna, sam­­búð­­ar­­fólks og barna eða fóst­ur­barna þeirra, að ákveðin stjórn­­un­­ar­­leg tengsl milli fyr­ir­tækja leiði til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt sé fram á hið gagn­­stæða, að skil­­greint verði hvað felst í raun­veru­­legum yfir­­ráðum, að aðilar sem ráða meira en sex pró­­sent af afla­hlut­­deild eða 2,5 pró­­sent af krókafla­hlut­­deild skulu til­­kynna til Fiski­­stofu áætl­­aðan sam­runa, eða kaup í félagi sem ræður yfir hlut­­deild eða kaup á hlut­­deild og koma kaupin ekki til fram­­kvæmda nema sam­­þykki Fiski­­stofu liggi fyrir og að Fiski­­stofu verði veittar auknar heim­ildir til afla gagna.

Í til­­lög­unum var hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hlut­deild né kröfu um hlut­­fall meiri­hluta­­eignar í tengdum aðil­­um.

Oddný talaði ein fyrir breytingum á kvótaþaki

Þegar loka­skýrsla verk­efna­stjórn­ar­innar var birt í sumar kom í ljós að hann gerði engar til­lögur að breyt­ingum á kvóta­þaki eða kröfu um hlut­­fall meiri­hluta­­eignar í tengdum aðil­um í nýrri skýrslu verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni.

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem sat í nefnd­inni, gerði fyr­ir­vara við nið­ur­stöð­una og vildi að ákvæði laga um hámarks­afla­hlut­deild yrði breytt í sam­ræmi við þau ákvæði sem er að finna í lögum um skrán­ingu raun­veru­­legra eig­enda. Þar er miðað við 25 pró­­sent beinan eða óbeinan eign­­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­­legur eig­and­i.

Oddný Harðardóttir var fulltrúi stjórnarandstöðuflokka í verkefnastjórninni. Mynd: Johannes Jansson
Oddný Harð­ar­dóttir var full­trúi stjórn­ar­and­stöðu­flokka í verk­efna­stjórn­inni. Mynd: Johannes Jansson

Oddný tal­aði fyrir þess­ari breyt­ingu á vett­vangi nefnd­ar­innar, en hún hlaut ekki hljóm­grunn hjá hinum nefnd­ar­mönn­unum. Þeir voru Sigurður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi og áður bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks í Vest­manna­eyjum, Bryn­hildur Bene­dikts­dóttir, sér­fræð­ingur í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu, og Hulda Árna­dóttir lög­maður.

Og nú er komið fram frum­varp Páls Magn­ús­sonar. Í því er gert ráð fyrir að hlut­falls­leg eign útgerðar í öðrum sem halda á kvóta telji þegar reikn­aður er út sá kvóti sem blokkin heldur á en að kvóta­þakið verði áfram tólf pró­sent.

Útreikn­ingar Kjarnans sýna að verði frum­varp Páls að lögum myndi það knýja eina sjáv­ar­út­vegs­blokk til að selja lít­inn hluta af upp­söfn­uðum kvóta sínum, en gefa öðrum tæki­færi til að bæta mun meira við sig en t.d. ef stuðst væri við sömu við­mið og í lögum um raun­veru­lega eig­endur.

Samherji og samstarfsaðilar langstærstir

Sam­herj­a­sama­stæðan heldur á mestu kvóta á Íslandi. Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­sent hans.

Samherji á svo, beint og óbeint, 49,9 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. For­svars­menn beggja fyr­ir­tækja hafa ætið svarið það af sér opin­ber­lega að þau séu tengd og vísað í að eign­ar­hlutur Samherja í Síld­ar­vinnsl­unni sé eins lítið undir því marki sem gild­andi lög setja til að aðilar telj­ist tengdir.

Kjarn­inn greindi hins vegar frá því í frétta­­skýr­ingu 20. nóv­­em­ber 2019 að þegar Sam­herji kynnti sam­­stæðu sína erlendis á árum áður þá var Síld­­ar­vinnslan kynnt sem upp­­­sjá­v­­­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks birti vegna Sam­herj­­a­­máls­ins. Þá er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar.

Síld­­­­­­­ar­vinnslan með 5,2 pró­­­sent afla­hlut­­­deild og Berg­­­ur-Hug­inn, í eigu Síld­­­ar­vinnsl­unn­­­ar, er nú með tæp­lega 2,7 pró­­­sent af heild­­­ar­kvóta til umráða.

Auk þess á Síld­­ar­vinnslan 75,20 pró­­sent hlut í Run­ólfi Hall­freðs­­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt er þessi blokk með að minnsta kosti 17,5 pró­­­sent afla­hlut­­­deild.

Verði frum­varp Páls sam­þykkt mun hún þó ekki reikn­ast þannig heldur mun heild­ar­um­fang þess kvóta sem Samherji heldur á telj­ast tæp­lega 13,2 pró­sent. Samherji þyrfti því að losa sig við tæp­lega 1,2 pró­sent af þeim heim­ildum sem sam­stæðan heldur á á næstu tæpu sex árum.

Næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er félagið Kjálka­nes ehf. Á meðal helstu hlut­hafa þess er Björgólfur Jóhanns­son, hinn for­stjóri Sam­herja, og fjöl­skylda hans. Sami hópur á einnig útgerð­ar­fé­lagið Gjög­ur, sem heldur á 2,29 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­um. Ef sá kvóti er talin með ofan­greindu er ljóst að rétt undir fimmt­ungur (19,79 pró­sent) af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum lands­ins eru á höndum fyr­ir­tækja sem eru að ein­hverju leyti í eigu þeirra tveggja manna sem sitja í for­stjóra­stólum Sam­herja.

Engin bein áhrif á hina risana

Hinir tveir risarnir í íslenskum sjáv­ar­út­vegi: Brim og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, yrðu ekki fyrir neinum nei­kvæðum áhrifum af þessum breyt­ingum. Þvert á móti má færa rök fyrir því að svig­rúm þeirra til að safna að sér meiri kvóta auk­ist, sér­stak­lega þegar frum­varp Páls er borið saman við aðrar fram­komnar hug­myndir um aðgerðir gegn sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi.

Brim, eina útgerð­ar­fyr­ir­tækið sem skráð er á íslenskan hluta­bréfa­markað, heldur á 10,13 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem á 43,97 pró­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­sent af öllum afla­heim­ild­um. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra og stjórn­ar­manns í Brim­i.

Til við­bótar heldur útgerð­ar­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,55 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög eru því með 15,19 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Samkvæmt reikni­regl­unni í frum­varpi Páls myndi Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur reikn­ast með um 8,6 pró­sent afla­hlut­deild og gæti bætt við sig rétt um 3,4 pró­sent af heild­ar­kvóta án þess að reka sig upp í þakið.

Kaup­­­­fé­lag Skag­­­­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 5,5 pró­­­­sent heild­­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­­sent í Vinnslu­­­­stöð­inni í Vest­­­­manna­eyjum sem er með 4,5 pró­sent heild­­­­ar­afla­hlut­­­­deild. Þá á Vinnslu­stöðin 48 pró­sent hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­manna­eyj­um, sem heldur á 0,76 pró­sent af útgefnum kvóta.

FISK á til við­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­­ías Cecils­­­­son, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­­ar­kvóti þess­­­­ara þriggja rétt yfir ell­efu pró­sent, og er því undir 12 pró­­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­­greindir með öðrum hætti.

Verði frum­varp Páls að lögum myndi FISK skil­grein­ast með um 7,4 pró­sent afla­hlut­deild og getur bætt við sig veru­lega til að rekast upp í þakið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár