Mynd: Bára Huld Beck

Eigendur sjávarútvegsfyrirtækja hafa fengið rúmlega 100 milljarða í arð á innan við áratug

Á tíu ára tíma­bili vænk­að­ist hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja um tæp­lega 500 millj­arða króna. Á sama tíma­bili hafa þau greitt um 70 millj­arða króna í veiði­gjöld. Eigið fé geirans var 297 millj­arðar króna í lok árs 2018.

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki högn­uð­ust um 43 millj­arða króna á árinu 2019. Það er um 60 pró­sent meiri hagn­aður en var af rekstri þeirra árið á undan þegar hann var 27 millj­arðar króna. Alls nemur hagn­aður fyr­ir­tækj­anna 197 millj­örðum króna á fimm ára tíma­bili, frá byrjun árs 2015 og út síð­asta ár. Á sama tíma hafa þau greitt 43 millj­arða króna í tekju­skatt.

Frá hruni nemur sam­an­lagður hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja 439 millj­örðum króna.

Reikn­aður tekju­skattur þeirra hækk­aði um 50 pró­sent milli ára og var níu millj­arðar króna í stað sex. Veiði­gjöld lækk­uðu hins vegar umtals­vert á milli ára og voru 6,6 millj­arðar króna, sem er 4,7 millj­örðum króna minna en þau voru árið áður.

Þetta kemur fram í Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte fyrir árið 2018 sem kynntur var á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum 2020 sem fór fram í morgun. Gagna­grunn­ur­inn inni­heldur rekstr­ar­upp­lýs­ingar úr 89 pró­sent sjáv­ar­út­vegs­geirans en fjár­hæð­irnar sem settar eru fram í honum hafa verið upp­reikn­aðar til að end­ur­spegla 100 pró­sent hans.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin áttu eigið fé upp á 297 millj­arða króna í lok árs 2018. Frá hruni og fram að þeim tíma batn­aði eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna um 376 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 10,3 millj­arða króna í fyrra. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 103,2 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hefur því vænkast um 479,2 millj­arða króna frá hruni.

Tekjur voru 280 milljarðar

Í gagna­grunn­inum kemur fram að tekjur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hafi vaxið um 33 millj­arða króna milli ára og verið 280 millj­arðar króna í fyrra. Þær hafa aldrei áður verið jafn miklar.

EBIDTA-hagn­aður þeirra, hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magns­gjöld og skatta, var 73 millj­arðar króna og jókst um 20 millj­arða króna. End­an­legur hagn­aður var, líkt og áður sagði 43 millj­arðar króna.

Stærsta sjávarútvegssamsteypa landsins er Samherji. Þorsteinn Már Baldvinsson er annar forstjóri hennar.
Stærsta sjáv­ar­út­vegs­sam­steypa lands­ins er Samherji. Þor­steinn Már Bald­vins­son er annar for­stjóri hennar.

Skuldir geirans hækk­uðu á milli ára í 415 millj­arða króna en þegar skuld­irnar eru reikn­aðar sem hlut­fall á móti EBITDA-hagn­aði lækka þær. Ný lang­tíma­lán umfram afborg­anir námu 15 millj­örðum króna. 

Þetta má að hluta rekja til þess að fjár­fest­ingar í sjáv­ar­út­vegi juk­ust milli ára. Þær námu 25 millj­örðum króna í fyrra en voru 18 millj­arðar króna árið áður.

Veiðigjöld lækkuðu umtalsvert

Veiði­gjöld voru 6,6 millj­arðar króna í fyrra, sem er 4,7 millj­örðum krónum minna en þau voru árið 2018. Samtals frá árinu 2011, og út síð­asta ár, greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn 69,9 millj­arða króna í veiði­gjöld.

Áætlað er að veiði­gjöldin muni hækka á þessu ári sam­kvæmt því sem kom fram í kynn­ingu á sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunn­inum.

Ný lög um veiði­gjald tóku gildi í byrjun árs 2019 þar sem meðal ann­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­stofns. Samkvæmt þeim er veiði­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veiði­ár­s.

Bein opin­ber gjöld sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem gagna­grunnur Deloitte nær yfir voru 19,4 millj­arðar króna í fyrra að veiði­gjöld­unum með­töldum. Það er tveimur millj­örðum krónum minna en árið 2018.

Þrjár blokkir halda á 43 prósent af kvóta

Í lok mars síð­ast­lið­ins héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins á tæp­lega 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, sam­kvæmt sam­an­tekt Fiski­stofu. Innan þessa hóps eru aðilar sem eru tengdir þótt þeir séu það ekki sam­kvæmt lögum um fisk­veið­ar. Brim, Sam­herji og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga eru fyr­ir­ferða­mestu útgerð­irn­ar. Þær halda á, einar og sér og ásamt félögum sem eig­endur þeirra eiga í, á tæp­lega 43 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Litlar breyt­ingar hafa verið á umfangi kvóta þeirra stóru útgerð­ar­hópa sem tengj­ast inn­byrðis án þess þó að verða tengdir aðilar sam­kvæmt lög­um. Þannig er Brim sú útgerð sem heldur á mestum kvóta, eða 10,13 pró­sent. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem á 43,97 pró­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­sent af öllum afla­heim­ild­um. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra og stjórn­ar­manns í Brim­i.

Til við­bótar heldur útgerð­ar­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,55 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög eru því með 15,19 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Samherja hf, er með næst mesta afla­hlut­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­sent. ­Út­gerð­­­­­ar­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­sent hans. Síld­­­­­ar­vinnslan, sem Sam­herji á beint og óbeint 49,9 pró­sent hlut í, er svo með 5,2 pró­sent afla­hlut­deild og Berg­ur-Hug­inn, í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, er með 2,3 pró­sent af heild­ar­kvóta til umráða. Auk þess á Síld­ar­vinnslan 75,20 pró­sent hlut í Runólfi Hall­freðs­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt er þessi blokk að minnsta kosti 17,1 pró­sent afla­hlut­deild.

Kaup­­­­fé­lag Skag­­­­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 5,5 pró­­­­sent heild­­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­­sent í Vinnslu­­­­stöð­inni í Vest­­­­manna­eyjum sem er með 4,5 pró­sent heild­­­­ar­afla­hlut­­­­deild. Þá á Vinnslu­stöðin 48 pró­sent hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­manna­eyj­um, sem heldur á 0,76 pró­sent af útgefnum kvóta.

FISK á til við­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­­ías Cecils­­­­son, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­­ar­kvóti þess­­­­ara þriggja rétt yfir ell­efu pró­sent, og er því undir 12 pró­­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­­greindir með öðrum hætti.

Sam­an­lagt eru þessir þrír hópar með yfir­ráð yfir rúm­lega 43 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Ísland­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár