Donald Trump og Anthony Fauci. Mynd: EPA

„Skunkurinn í lautarferðinni“ yfirgefur Hvíta húsið

Hann leiddi banda­rísku þjóð­ina í gegnum far­aldra HIV, inflú­ensu, ebólu og COVID-19. Hans stærsta orr­usta var þó ef til vill af allt öðrum toga: Við for­set­ann fyrr­ver­andi, Donald Trump.

Seint að kvöldi 23. sept­em­ber árið 2020 stóð Anthony Fauci loks í stof­unni heima hjá sér í Washington. Dagurinn hafði byrjað fyrir klukkan sex um morg­un­inn og um hann miðjan hafði hann setið fyrir svörum þing­nefndar í þrjár klukku­stundir. Umræðu­efnið var COVID-19. Eftir það tók hann þátt í opnum umræðu­fundi á net­inu um far­ald­ur­inn.

En þótt það sé áliðið er vinnu­degi Faucis langt í frá lokið. Hann á enn eftir að lesa yfir 200 tölvu­pósta sem bíða hans. „Ég þarf svo að vakna klukkan 3 í nótt,“ segir hann við blaða­mann sem er kom­inn heim til hans á þessum ókristi­lega tíma til að taka við­tal við mann­inn er nýverið hafði prýtt for­síðu tíma­rits­ins Time sem hafði valið hann einn af áhrifa­mestu mönnum ver­aldar.

23. sept­em­ber var ekk­ert óvenju­legur vinnu­dagur á tímum far­sótt­ar­innar. Langt í frá. Þannig vann Fauci mán­uðum saman. Var vak­inn og sof­inn, í bók­staf­legri merk­ingu, yfir vel­ferð banda­rísku þjóð­ar­innar og heims­byggð­ar­innar allrar.

Það ætti ekki að koma á óvart þegar fólk á níræð­is­aldri greinir frá því að það hygg­ist láta af störfum. En það þóttu engu að síður tíð­indi þegar mað­ur­inn sem hefur unnið hjá Smit­sjúk­dóma- og ónæm­is­fræði­stofnun Banda­ríkj­anna (NIAID) frá árinu 1968 og stýrt henni í 38 ár, í tíð sjö for­seta, sagð­ist ætla að láta af emb­ætti í des­em­ber – „hefja nýjan kafla“. Hann mun sam­hliða hætta sem ráð­gjafi Joes Biden for­seta í vörnum gegn smit­sjúk­dómum og annarri aðsteðj­andi heilsu­far­sógn.

Það er hins vegar engin hætta á því að hinn stál­hrausti Fauci setj­ist alfarið í helgan stein. Hann ætlar sér að ferð­ast, skrifa og halda áfram að hvetja ungt fólk til starfa í þágu hins opin­bera. „Svo lengi sem ég er heilsu­hraustur, sem ég er, svo lengi sem ég er fullur orku, sem ég er, og svo lengi sem ég hef ástríð­una, sem ég hef, þá vil ég halda áfram að gera hluti þótt það verði ekki í opin­beru starfi,“ sagði Fauci, sem er 81 árs, í við­tali við New York Times fyrir nokkrum vikum. Þá gaf hann í skyn að starfs­lokin væru nærri en lýsti þeirri ákvörðun sinni svo yfir fyrir nokkrum dögum. Starfið hafi verið ein helsta gæfa lífs hans.

Biden hrósar Fauci í hástert fyrir vel unnin störf í þágu lands og þjóðar. „Hann hefur veitt styrka leið­sögn með visku og inn­sæi að vopni,“ sagði for­set­inn er tíð­indin voru kunn­gerð. „Vegna starfa sinna hefur hann bjargað manns­lífum í Banda­ríkj­unum og víðar um heim.“

Fauci hefur auð­vitað verið þekktur í heimi vís­ind­anna í ára­tugi. Og þótt hann hafi áður staðið í ströngu í bar­áttu við far­aldra (og stjórn­mála­menn) var það ekki fyrr en far­aldur COVID-19 skall á að hann varð, líkt og okkar eigin sótt­varna­læknir Þórólfur Guðnason, dag­legur gestur á sjón­varps­skjánum – mað­ur­inn sem þótti lík­leg­astur til að leiða Banda­ríkja­menn með vís­indin að vopni í gegnum skafl­inn. Hrein­skipt­inn læknir og ónæm­is­fræð­ingur, fæddur á aðfanga­degi jóla, alinn upp í Brooklyn-hverfi New York, með ára­tuga reynslu.

Er hann tók við emb­ætti sótt­varna­læknis vest­an­hafs sat repúblikan­inn Ronald Reagan í stóli for­seta. Og síð­asti for­set­inn sem hann mun veita ráð­gjöf, ef áform hans halda, verður demókrat­inn Joe Biden.

Fauci fékk risa­vaxið verk­efni í fangið fljót­lega eftir að hann tók við Smit­sjúk­dóma­stofn­un­inni. Á níunda ára­tugnum hóf áður óþekktur sjúk­dómur að breið­ast út í Banda­ríkj­unum og víðar. Þetta var HIV sem veldur alnæmi (AIDS). Hann var í fyrstu útbreiddastur meðal sam­kyn­hneigðra karl­manna og lenti Fauci á þessum tíma upp á kant við mann­rétt­inda­hópa sem börð­ust fyrir auk­inni ákefð í leit að með­ferðum við honum. Hann varð síðar virtur banda­maður þeirra.

Eitt hans helsta afrek, að hans eigin mati og ann­arra, var að þróa og setja á stofn alþjóð­legt verk­efni, PEPFAR, til að berj­ast gegn útbreiðslu HIV. Talið er að verk­efnið hafi bjargað yfir 20 millj­ónum manns­lífa. Þetta gerði hann í valda­tíð George W. Bush sem sæmdi hann for­seta­orðu árið 2008.

Það er af nógu að taka úr tíð Fauci í emb­ætti sótt­varna­læknis. Árið 2001 var hann í brúnni er árásir og ótti við frek­ari árásir með milt­is­brandi skók Banda­ríkin líkt og fleiri ríki, m.a. Ísland. Árið 2009 varð far­aldur svínaflensu og nokkrum árum síðar blossuðu upp far­aldrar ebólu og zika-veirunnar. Fauci var ekki bund­inn við skrif­borð þessi ár heldur sinnti einnig sjúk­lingum, m.a. sjúk­lingum sem smit­aðir voru af ebólu.

Fauci varð hins vegar goð­sögn í lif­anda lífi í COVID-far­aldr­inum. Klæddur stutt­erma­bol í sjón­varps­við­tölum, yfir­veg­aður og stað­reynda­mið­aður. Eig­in­leikar sem við Íslend­ingar þekkjum af góðu frá okkar sótt­varna­lækni.

Hann átti að veita Donald Trump for­seta ráð­gjöf, líkt og fyrri for­setum, en óhætt er að segja að stundum hafi þeir ekki verið á sömu blað­síðu. Sumir myndu kannski jafn­vel ganga svo langt að segja að þeir hefðu ekki verið í sömu bók. Fauci þurfti ekki aðeins að glíma við skæða, nýja veiru, heldur for­seta sem fór marg­sinnis með fleipur, gaf sam­sær­is­kenn­ingum byr undir báða vængi og ógn­aði jafn­vel heilsu þjóðar sinnar með kol­röngum full­yrð­ingum.

Trump var seinn til að grípa til aðgerða til varnar veirunni og tal­aði þær svo gjarnan niður. Fauci þurfti því marg­sinnis að leið­rétta Trump – þótt hann færi yfir­leitt fínt í það. „Ég gat ekki stokkið fyrir framan hljóð­nem­ann og ýtt honum frá,“ sagði Fauci spurður um þetta allt saman í við­tali við vís­inda­tíma­ritið Science í miðjum far­aldr­inum árið 2020. „Mér þykir það leitt, ég er ekki að reyna að grafa undan for­set­anum. En það er eitt­hvað til sem heitir raun­veru­leiki.“

Fauci var nær daglega í viðtölum, stundum oft á dag, er COVID-faraldurinn stóð sem hæst.
Fauci var nær dag­lega í við­tölum, stundum oft á dag, er COVID-far­ald­ur­inn stóð sem hæst.

Raun­veru­leik­inn er oft ekki aug­ljós í fíla­beinsturnum og reyk­fylltum bak­her­bergjum. Þetta minnti Fauci aðgerðateymi Hvíta húss­ins, sem skipað var til að fást við COVID-far­ald­ur­inn, á þegar stjórn­völd með Trump í broddi fylk­ingar gáfu út ótíma­bærar yfir­lýs­ingar um að allir sem vildu gætu farið í COVID-próf. Þetta var á tímum sem slík próf voru enn af skornum skammti og heil­brigð­is­starfs­menn og stofn­anir þegar undir gríð­ar­legu álagi. Ekki bætti úr skák þegar rangar upp­lýs­ingar um aðgengi að prófum voru aug­lýstar.

Fauci not­aði reynslu sína af sam­skiptum við aðgerða­hópa í upp­hafi HIV-far­ald­urs­ins í nálgun sinni á málið. „Ef þú vilt raun­veru­lega vita hvað er í gangi þá áttu að tala við fólkið sem er í skot­gröf­unum,“ sagði hann. „Þannig að þegar því var haldið fram að prófin væru svarið og að allir sem vildu gætu farið í próf þá þýddi það að ég var í sím­anum langt fram á nótt að tala við fólkið á gólf­inu, fólk sem var að vinna á gjör­gæslu­deildum í New York, Chicago, New Orleans, Seattle og Los Angeles. Ég gerði þetta reglu­lega og það sem þetta fólk sá í skot­gröf­unum var ekki alltaf það sama og rætt var í fund­ar­her­bergjum.“

Fauci fær sprautu af bóluefni Moderna gegn COVID-19 í desember árið 2020.
Fauci fær sprautu af bólu­efni Moderna gegn COVID-19 í des­em­ber árið 2020.

Fauci fékk hins vegar oft bágt fyrir en hélt þó ótrauður sínu striki enda starf hans að veita stjórn­völdum ráð­gjöf í heilsu­fars­legum þreng­ingum og hvika hvergi frá vís­ind­unum. Hann er þekktur fyrir að kunna að stíga fín­legan jafn­væg­is­dans á milli stjórn­mála og vís­inda. „Ég er sá sem hikar ekki við að segja for­set­anum og vara­for­set­anum það sem þeir vilja ef til vill ekki heyra,“ sagði hann í við­tali árið 2020. Hann við­ur­kenndi að það væri sann­ar­lega fólk í Hvíta hús­inu sem ætti erfitt með að kyngja stað­reyndum um ástandið eins og hann lýsti því á fundum aðgerðateym­is­ins. „Þá fékk ég við­ur­nefnið skunk­ur­inn í laut­ar­ferð­inni.“

Honum var bent á að vera jákvæð­ari, að það væri t.d. jákvætt þegar smitum fækk­aði á ákveðnum svæðum. Það er rétt, sagði hann en benti svo á að engum sigri væri náð á meðan hver bylgjan á fætur annarri risi hátt á öðrum. „Landið er einn skógur í þessu sam­bandi og þegar það geisa eldar á ein­hverjum svæðum í skóg­inum er hann allur í hættu.“

Samvinna hans og for­seta Banda­ríkj­anna hefur yfir­leitt verið góð. En það breytt­ist nokkuð snögg­lega í tíð Donalds Trump á valda­stóli þótt Fauci hafi, jafn­vel eftir að Trump fór úr emb­ætti, lítið sagt um þeirra per­sónu­legu sam­skipti. Þeir hitt­ust reyndar ekki í fyrsta skipti fyrr en Trump hafði verið þrjú ár í emb­ætti og ný og skæð veira, „nýja kór­ónu­veiran“ eins og hún var kölluð, stakk upp koll­inum.

Trump hót­aði því oftar en einu sinni næstu mán­uð­ina á eftir að reka hann og ýjaði nokkrum sinnum að því opin­ber­lega, þótt hann hefði reyndar vart vald til slíks. Í stað þess grófu ein­stak­lingar sem unnu náið með for­set­anum stöðugt undan Fauci.

Þannig ýtti Trump undir gagn­rýni á störf Faucis sem stóð í eld­lín­unni, með mann­inn í Hvíta hús­inu fyrir framan sig að hella olíu á eld­inn. Hann var sak­aður um athygl­is­sýki, að hefta frelsi fólks af nauð­synja­lausu og þar fram eftir göt­unum. Honum og fjöl­skyld­unni bár­ust ítrekað líf­láts­hót­anir svo hann þurfti – og þarf reyndar enn – stranga örygg­is­gæslu allan sól­ar­hring­inn.

Hann er langur list­inn yfir ágrein­ings­efni Fauci og Trump.

Dæmi:

Trump sagði snemma í far­aldr­inum að kór­ónu­veiran myndi „fyrir krafta­verk“ hverfa – án bólu­efna.

Fauci sagði að það að sleppa veirunni lausri án aðgerða myndi kosta „gríð­ar­lega mörg“ manns­líf.

Trump kall­aði veiruna í upp­hafi „Kína-veiruna“ enda sann­færður um að hún hefði verið fundin upp á rann­sókn­ar­stofu í Whuan.

Fauci benti strax á að engar vís­inda­legar vís­bend­ingar væru um að veiran hefði verið búin til á rann­sókn­ar­stofu.

Í apríl árið 2020 viðr­aði Trump þá hug­mynd á blaða­manna­fundi að fólk drykki sótt­hreinsi­efni til að verja sig gegn COVID-19.

„Almátt­ugur,“ seg­ist Fauci hafa hugsað og ótt­ast afleið­ingar þess að svo valda­mik­ill maður setti fram slíkar rang­færslur. Hann ótt­að­ist að fólk myndi gera „hættu­lega“ og „heimsku­lega“ hluti.

HIV mótaði allt hans líf

Fauci segir HIV hafa mótað allt hans líf og starf til þessa dags. Hann sinnti sjálfur fólki með alnæmi á fyrstu árum far­ald­urs­ins, eign­að­ist í þeim góða vini sem hann sá svo veikj­ast alvar­lega og deyja áður en gagn­leg með­ferð við sjúk­dómnum kom nokkrum árum seinna. „Áfallastreita. Það er það sem það er,“ náði hann með erf­ið­is­munum að segja, grát­klökkur, í heim­ild­ar­mynd um HIV er hann var spurður hvaða áhrif þessir tímar höfðu á hann.

„Ég hef aldrei hitt jafn góða mann­eskju,“ segir Peter Staley, einn ötul­asti bar­áttu­maður rétt­inda hinsegin fólks á níunda ára­tug síð­ustu aldar, um kynni sín af Fauci hin seinni ár. Staley sótti oft mjög hart að Fauci á árum áður, mót­mælti hástöfum aðgerða­leysi stjórn­valda fyrir utan vinnu­stað hans en segir hann þó alltaf hafa verið til­bú­inn að hlusta.

Handtakið Fauci, stendur á mótmælafána fólks sem var vantrúað á að kórónuveiran væri jafn skaðleg og sóttvarnalæknirinn héldi fram.
Hand­takið Fauci, stendur á mót­mæla­fána fólks sem var van­trúað á að kór­ónu­veiran væri jafn skað­leg og sótt­varna­lækn­ir­inn héldi fram.

Daginn sem þau gleði­tíð­indi bár­ust í nóv­em­ber árið 2020 að fyrsta bólu­efnið gegn COVID-19 hefði sam­kvæmt rann­sóknum 90 pró­sent virkni gegn alvar­legum veik­indum hélt Fauci blaða­manna­fund. Það var þó ekki til að ræða um COVID heldur nið­ur­stöður rann­sókna á verk­efni sem hann hefur farið fyrir og stutt með ráðum og dáð í langan tíma. Verk­efnið var að gera lyf sem kemur í veg fyrir að fólk smit­ist af HIV-veirunni. Og þennan dag, sama dag og Pfizer kynnti jákvæðar nið­ur­stöður á bólu­efni gegn COVID-19, greindi Fauci frá því að til­raunir sýndu að lyfið cabotegravir veitti konum góða vörn gegn því að smit­ast af HIV-veirunni.

„Ég vildi að heim­ur­inn vissi, með fullri virð­ingu fyrir því ótrú­lega ástandi og álagi sem við vorum undir vegna COVID, stæði bar­áttan við HIV enn,“ sagði Fauci í við­tali um þetta nokkru síðar.

Eftir löngu vinnu­dag­ana í far­aldr­inum fór Fauci heim til sín, í húsið sitt í Washington-borg sem hann hefur átt og búið í allt frá árinu 1977. Hann hafði átt þetta hús í átta ár er hann gift­ist hjúkr­unar- og lífsið­fræð­ingnum Christine Grady. Þau hjón eiga þrjár upp­komnar dætur.

Á milli ferða­laga sem Fauci hyggst taka eftir starfs­lokin hjá hinu opin­bera, má gera ráð fyrir að hann dvelji löngum stundum í hús­inu með stóra garð­inum við skriftir. Því að þeim hyggst hann ein­beita sér. En það gætu orðið gárur á því frið­sæla lífi sem hann sér fyrir sér. Enn standa að honum spjótin. Þingmenn Repúblikana­flokks­ins ætla ekki að sleppa af honum tak­inu strax.

„Það er gott að vita að þegar Fauci sest í helgan stein hefur hann nægan tíma til að koma fyrir þingið og deila eið­svar­inn því sem hann vissi um Wuhan-rann­sókn­ar­stof­una, og síbreyti­legar leið­bein­ingar í far­aldr­inum á hans vakt sem urðu til þess rangar kvaðir voru settar á almenn­ing í Banda­ríkj­unum,“ sagði full­trúa­deild­ar­þing­mað­ur­inn Steve Scalise í yfir­lýs­ingu er Fauci til­kynnti um áformuð starfs­lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár