Faraldurinn í faraldrinum

Ef hægt er að líkja heims­far­aldri COVID-19 við hvirf­il­byl má líkja far­aldri ópíóða­fíknar við lofts­lags­breyt­ingar: Þær ger­ast hægt og bít­andi en stundum í stökkum og eru stór­hættu­legar.

Fylgi­fiskar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins eru svip­aðir um allan heim. Atvinnu­leysi hefur stór­auk­ist, fólk hefur haf­ist við í ein­angrun í lengri tíma og örvænt­ing gerir vart við sig. Við þessar aðstæður eykst hættan á ann­ars konar far­aldri í far­aldr­inum: Ópíóða­fíkn og dauða af völdum þess­ara lyfja sem áttu að lina þján­ingar en auð­velt er að ánetj­ast og missa algjör­lega tökin á öllum þáttum lífs­ins.

Í Vestur-Virginíu í Banda­ríkj­unum und­ir­býr fólk sig fyrir aðra bylgju far­ald­urs. Ekki af völdum nýju kór­ónu­veirunnar heldur vegna taum­lausrar og lífs­hættu­legrar notk­unar ópíóða­lyfja. Dauðs­föllum af hennar sökum hafði farið fækk­andi.

Í ítar­legri frétta­skýr­ingu breska blaðs­ins Guardian kemur fram að 95 hafi lát­ist af völdum COVID-19 í Vestur-Virginíu síð­ustu þrjá mán­uði. Til sam­an­burðar lét­ust þar tæp­lega þús­und manns af of stórum skammti eit­ur­lyfja árið 2018 – fyrst og fremst opíóða og metam­fetamíns.

Vanda­málið er ekki nýtil­komið í rík­inu. Það hefur verið við­var­andi í um tvo ára­tugi og haft áhrif á alla þætti sam­fé­lags­ins. Talið er að um 600 þús­und manns hafi lát­ist í Banda­ríkj­unum vegna ofnotk­unar á ópíóðum síð­ustu tutt­ugu árin.

Mor­fín­skyld verkja­lyf, svo­kall­aðir ópíóðar, voru mark­aðs­sett sem krafta­verka­lyf við hvers kyns verkjum er þau komu á markað á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, m.a. hið alræmda OxyContin fyr­ir­tæk­is­ins Purdue Pharma. Lyfið reynd­ist sér­lega ávana­bind­andi og talið eiga stærstan þátt í þeim ópíóða­far­aldri sem geisað hefur í Banda­ríkj­unum.

The Guardian hefur eftir Mike Brumage, fyrr­ver­andi yfir­manni lyfja­eft­ir­lits Vestur-Virginíu, að til­fellum ofskammta af ópíóðum fari „snar­fjölg­andi“ og að vart verði aftur snúið. „Þegar flóð­bylgja COVID-19 hjaðnar þá verðum við skilin eftir með sömu félags­legu aðstæður sem urðu til þess að ópíóða-far­ald­ur­inn hófst á sínum tíma. Og þessar aðstæður munu vara lengi.“

Heil­brigð­is­yf­ir­völd í um þrjá­tíu ríkjum Banda­ríkj­anna, m.a. Kentucky, Flórída, Texas og Colorado, hafa und­an­farið til­kynnt um fjölgun dauðs­falla af völdum ópíóða­notk­unar. Banda­ríska lækna­fé­lagið seg­ist hafa „gríð­ar­legar áhyggjur“ vegna þessa.

Síðustu mán­uði hefur heil­brigð­is­starfs­fólk þurft að ein­beita sér að COVID-19. Úrræði sem fólk sem átt hefur við fíkni­sjúk­dóma að stríða hefur nýtt, hefur verið ýtt til hliðar. Þá hafa sótt­varn­ar­að­gerðir ýmsar, svo sem útgöngu­bönn og ferða­tak­mark­anir orðið til þess að margir hafa ekki getað sótt sér þá hjálp sem þeir hefðu þurft á að halda. Aðhaldið sem sam­skipti við annað fólk veitir hefur ekki verið til staðar. Og þeir sem verst eru settir, fátækir og jafn­vel heim­il­is­lausir, hafa ekki getað nýtt sér fjar­fund­ar­búnað – þeir eiga oft hvorki tölvu né síma.

Sér­fræð­ingar í fíkni­efna­málum segja í grein Guardian að aðgerðir til að stöðva COVID-19 hafi verið nauð­syn­legar þó ýmis­legt mætti úfæra með öðrum hætti. Þeir benda svo á mun­inn á við­brögðum stjórn­valda við COVID og við ópíóða­far­aldr­inum. Þegar veira sé á ferð sé hægt að finna fjár­muni til aðgerða en í far­aldri ópíóða­notk­unar hafi engir pen­ingar verið til.

Emily Walden, sem fer fyrir aðgerð­ar­hópi sem berst gegn ávís­unum lækna á ópíóða­lyfin, bendir á að á meðan banda­rísk stjórn­völd hafi sett 6 trilljónir doll­ara í aðgerðir vegna COVID hafi sama stjórn, rík­is­stjórn Donalds Trump, sett 6 millj­arða dala í bar­átt­una gegn ópíóða­far­aldr­inum á fyrstu tveimur árum kjör­tíma­bils­ins. Á þessum tveimur árum hafi álíka margir dáið vegna ofskömmt­unar lyfj­anna og hafa dáið vegna COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár