Stofnar frið­ar­ráð Banda­ríkja­for­seti er stjórn­ar­for­maður Board of Peace, nýs frið­ar­ráðs sem hann stofn­aði í dag. Mynd: AFP

„Slæmir hlutir“ muni gerast

Banda­ríkin hafa safnað mesta lofther í Miðaust­ur­löndum frá innrásinni í Írak. Forsetinn hótar stríði.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hvatti í dag Íran til að gera „mark­verðan“ samning á sama tíma og gríðarleg hernaðar­uppbygging Banda­ríkjanna á sér stað í Miðausturlöndum samhliða hótunum um aðgerðir.

„Það hefur sannað sig í gegnum árin að það er ekki auðvelt að gera mark­verðan samning við Íran. Við verðum að gera mark­verðan samning, annars gerast slæmir hlutir,“ sagði Trump á stofn­fundi „Friðar­ráðsins“, framtaks hans til að tryggja stöðug­leika á Gaza.

Hann varaði við því að stjórn hans „gæti þurft að ganga skrefi lengra“ án samkomu­lags og bætti við: „Þið munuð komast að því á næstu líklega 10 dögum.“

Ummæli Trumps komu skömmu eftir að Benjamin Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels, sendi Íran sína eigin viðvörun og sagði: „Ef ajatollarnir gera mistök og ráðast á okkur, munu þeir fá svar sem þeir geta ekki einu sinni ímyndað sér.“

Viðræður í bið

Viðvaranirnar voru gefnar út nokkrum dögum eftir að Banda­ríkin og Íran héldu aðra umferð viðræðna með milli­göngu Óman, að þessu sinni í Genf, þar sem Banda­ríkin reyna að koma í veg fyrir að Íran komi sér upp kjarnorku­sprengju, sem Íran segist ekki sækjast eftir, og Íran leitar eftir afléttingu bandarískra refsiaðgerða.

Karoline Leavitt, fjölmiðla­fulltrúi Hvíta hússins, varaði við því í gær að það væru „margar ástæður og rök sem hægt væri að færa fyrir árás á Íran“.

„Það væri mjög skynsamlegt af Íran að gera samning við Trump forseta.“

Trump hefur ítrekað hótað hernaðar­aðgerðum gegn Íran, fyrst vegna fjölda­morðs á mótmælendum í síðasta mánuði og síðar vegna kjarnorku­áætlunar landsins.

Yfirmaður kjarnorku­mála í Íran sagði í dag að „ekkert land geti svipt Íran réttinum“ til kjarnorku­auðgunar.

Fyrri tilraun til samninga­viðræðna fór út um þúfur þegar Ísrael gerði óvæntar árásir á Íran í júní síðastliðnum, sem hóf 12 daga stríð þar sem Banda­ríkin tóku stuttlega þátt til að sprengja starfs­stöðvar írönsku kjarnorku­áætlunarinnar.

Herinn tilbúinn um helgina

Viðbúnaður bandaríska flug­hersins í Miðausturlöndum er sá mesti frá árinu 2003, þegar Banda­ríkin réðust inn í Írak, samkvæmt samantekt Wall Street Journal. Þar segir að Trump hafi enn ekki tekið ákvörðun.

Írönsk stjórn­völd segja að flug­móðurskip Banda­ríkjanna sé vissulega öflugt, en enn öflugri séu vopnin sem sendi það á hafsbotn.

CNN og CBS greindu frá því í gær að bandaríski herinn yrði tilbúinn til að hefja árásir á Íran strax um helgina, þótt Trump hafi að sögn ekki tekið endanlega ákvörðun enn.

The Wall Street Journal greindi á sama tíma frá því að Trump hefði verið kynntir hernaðar­legir valkostir hans þar sem „allir voru hannaðir til að valda hámarks­skaða“, þar á meðal herferð til að „drepa fjölda íranskra stjórn­mála- og herforingja, með það að markmiði að steypa stjórninni af stóli“, sögðu ónefndir bandarískir embættis­menn við blaðið.

Abbas Araghchi, utan­ríkis­ráðherra Írans, sagði eftir nýjustu viðræðurnar að Teheran hefði samþykkt „leið­beinandi megin­reglur“ með stjórninni í Washington, en JD Vance, vara­forseti Banda­ríkjanna, sagði að Íran hefði ekki enn samþykkt ófrávíkjanlegar kröfur Trumpstjórnarinnar.

„Við viljum ekki stríð,“ staðhæfði Masoud Pezeshkian, forseti Írans, í gær, en gaf í skyn að Íranar gæti ekki látið undan kröfum Banda­ríkjanna.

Í ljósi vaxandi viðvarana skipaði Pólland í dag öllum ríkis­borgurum sínum í Íran að „fara þegar í stað“.

Þýskaland flutti á meðan hermenn frá norður­hluta Íraks og minnkaði viðveru sína í það lágmark sem nauðsynlegt er til að halda herstöð sinni þar starf­hæfri, og vísaði til spennu á svæðinu.

Rússland kallaði eftir stillingu og talsmaður Kremlar sagði: „Við erum nú vitni að fordæma­lausri stig­mögnun spennu á svæðinu, en við vonum samt að stjórnmálalegar og diplómatískar leiðir og samninga­viðræður muni áfram ráða för í leitinni að lausn.“

Heræfingar og sýning valds

Íran hefur krafist þess að viðræður við Banda­ríkin takmarkist við kjarnorku­málið, þótt Trumpstjórnin hafi áður þrýst á um að eldflauga­áætlun Teheran og stuðningur við vopnaða hópa á svæðinu yrðu á borðinu.

Banda­ríkin hafa á meðan verið að byggja upp herafla sinn nálægt Íran, þar á meðal herskip, orrustu­þotur og eldsneytis­áfyllingar­flugvélar, og lagt grunninn að mögulegri lang­varandi herferð gegn Íran – ef Trump gefur skipunina.

Stríðs­mála­ráðuneyti Banda­ríkjanna hefur sent annað flug­móðurskip á svæðið, en það fyrra, USS Abraham Lincoln og nærri 80 flugvélar þess, var staðsett um 700 kílómetra frá írönsku ströndinni á sunnudag, samkvæmt gervihnatta­myndum.

Íran hefur reynt að sýna eigið hervald, en íslamska byltingar­varðliðið hélt heræfingar fyrr í vikunni í Hormús­sundi.

Íranskir stjórn­málamenn hafa ítrekað hótað að loka sundinu, sem er mikilvæg alþjóðleg flutnings­leið fyrir olíu og gas.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Enginn ætti að fara í stríð. Fara ætti í þjóðaratkvæðagreiðslu ef einhverju stórmenninu dytti það í hug. Þó gæti sálfræðiþjónusta verið betri.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár