Meina of feitum um vegabréfsáritun

Fólk sem á börn með sér­þarfir eða er of feitt getur fengið synjun um vega­bréfs­á­ritun sem inn­flytj­endur sam­kvæmt nýjum til­mælum banda­rískra stjórn­valda.

Donald Trump
Donald Trump For­set­inn hefur gert fækkun inn­flytj­enda að ein­kenn­is­merki sínu. Mynd: AFP

Banda­ríkin munu héðan í frá geta synjað fólki um vega­bréfs­á­ritun vegna hold­ar­fars þess og barna þeirra sem hafa sér­þarfir, sam­kvæmt nýjum til­mælum rík­is­stjórnar Donalds Trump.

Í til­kynn­ingu sem send var fyrr í þessum mán­uði biður Marco Rubio utan­rík­is­ráð­herra banda­rísk sendi­ráð að taka til­lit til þátta eins og offitu þegar lang­tíma vega­bréfs­á­rit­anir eru gefnar út, á þeim for­sendum að offita geti „kraf­ist dýrrar, tíma­frekrar umönn­unar.“

Þar er einnig beðið sendi­ráðum að meta hvort ein­hverjir á fram­færi umsækj­enda hafi „fötlun, lang­vinna sjúk­dóma eða aðrar sér­þarfir og þurfi umönnun“ að því marki að umsækj­and­inn geti haft skerta starfs­getu vegna þess.

KFF Health News greindi fyrst frá til­kynn­ing­unni. Ein­stak­lingur sem sá hana stað­festi inni­hald hennar við frétta­þjón­usut AFP.

Banda­ríkja­menn eru nú þegar ein feitasta þjóð heims, sem teng­ist þáttum eins og matar­æði og skorti á hreyf­ingu.

Um 40 pró­sent banda­rísku þjóð­ar­innar eru of feit, og er hlut­fallið að með­al­tali hærra í ríkjum sem kusu Trump.

Nýju leið­bein­ing­arnar munu eiga við um fólk sem sæk­ist eftir því að flytja til Banda­ríkj­anna en ekki útlend­inga í stuttum heim­sóknum.

Banda­ríkin hafa lengi litið til þess hvort ein­stak­lingur myndi verða „opin­ber byrði“ – það er að segja, reiða sig á opin­bert fé – áður en inn­flytj­endum er veittur aðgangur, þar á meðal þegar Banda­ríkja­menn sækj­ast eftir því að flytja maka sína til lands­ins.

En Trump hefur verið sér­stak­lega ákafur í að finna ástæður til að neita fólki um inn­göngu í landið í sam­ræmi við kosn­inga­lof­orð um að stemma stigu við fólks­flutn­ingum til Banda­ríkj­anna.

„Það er ekk­ert leynd­ar­mál að rík­is­stjórn Trumps setur hags­muni banda­rísku þjóð­ar­innar í fyrsta sæti,“ sagði Tommy Pigott, tals­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

„Þetta felur í sér að fram­fylgja stefnu sem tryggir að inn­flytj­enda­kerfi okkar sé ekki byrði á banda­rískum skatt­greið­endum.“

Rík­is­stjórn Trumps hefur fjár­magnað auknar aðgerðir í inn­flytj­enda­málum í því skyni að vísa óskráðum inn­flytj­endum úr landi í stórum stíl, jafn­vel þótt þeir hafi ekki framið aðra glæpi en brot á inn­flytj­enda­lögum.

Rubio hefur einnig reynt að aft­ur­kalla vega­bréfs­á­rit­anir fyrir fólk sem er talið ganga gegn utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna, þar á meðal vegna yfir­lýs­inga um Ísrael.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár