Frakkar glíma við fordæmalausa þurrka

Draga hefur þurft úr orku­fram­leiðslu í frönskum kjarn­orku­verum vegna þess að kæli­vatn sem fengið er úr ám hefur verið of heitt. Talið er að ástandið muni vara í það minnsta í tvær vikur í við­bót.

Árfarvegur Esteron árinnar, sem er skammt frá Nice í suðurhluta Frakklands, þornaði upp í hitanum og þurrkinum sem ríkt hefur í landinu á síðustu vikum. Þessi mynd er frá því í lok júlí.
Árfar­vegur Esteron árinnar, sem er skammt frá Nice í suð­ur­hluta Frakk­lands, þorn­aði upp í hit­anum og þurrkinum sem ríkt hefur í land­inu á síð­ustu vikum. Þessi mynd er frá því í lok júlí. Mynd: EPA

Frakkar glíma nú við mestu þurrka í sögu lands­ins og hefur sér­stakur við­bragðs­hópur verið settur á lagg­irnar vegna ástands­ins. Nú þegar er vatn skammtað í rúm­lega 100 sveit­ar­fé­lögum í land­inu og tank­bílar flytja vatn til þeirra svæða þar sem bók­staf­lega ekk­ert er eftir í krön­unum.

Óttast er að ástandið muni hafa veru­leg áhrif á upp­skeru í land­bún­að­ar­hér­uðum lands­ins sem mun auka á vand­ann í fram­boði mat­væla á heims­vísu sem hefur verið við­var­andi eftir inn­rás Rússa í Úkraínu, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. Áætlanir gera ráð fyrir að korn­upp­skera í land­inu, sem að mestu er nýtt til fóðr­unar búpen­ings, verði 18,5 pró­sentum minni í ár en í fyrra, sam­kvæmt franska land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu. Talið er að þurrk­arnir muni vara í það minnsta tvær vikur í við­bót.

Í yfir­lýs­ingu frá Élis­at­beth Borne, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands, segir að þurrk­arnir séu þeir verstu í sögu lands­ins. Úrkoma hefur verið með minnsta móti í land­inu og hita­bylgjur sem gengið hafa yfir landið á síð­ustu vikum hafa auk þess aukið vatns­notkun umtals­vert. Þar af leið­andi hafa vatns­birgðir í land­inu þrotið. Í yfir­lýs­ingu sinni hvatti Borne Frakka til þess að aðgætna í notkun sinni á vatni.

Hefur áhrif á orkuframleiðslu í landinu

Hita­bylgj­urnar hafa einnig áhrif á orku­fram­leiðslu í land­inu. Orku­fyr­ir­tækið EDF sem rekið er af hinu opin­bera hefur þurft að draga úr orku­fram­leiðslu í nokkrum af kjarn­orku­verum sínum vegna þess að vatn sem fengið er úr ám og notað er til kæl­ingar í orku­ver­unum hefur verið of heitt til þess að það nýt­ist sem skyldi.

Greint er frá því í umfjöllun New York Times að neyð­ar­á­stand ríki í meira en helm­ingi af hér­uðum Frakk­lands og að fólki hafi verið meinað að vökva garða og þvo bíla sína sökum vatns­skorts­ins. Þá hafa bændur ekki geta vökvað hluta af rækt­ar­löndum sínum. Síð­ast­lið­inn júlí var sá úrkomuminnsti júlí­mán­uður í land­inu í rúm­lega 60 ár en í mán­uð­inum mæld­ist 9,7 milli­metra úrkoma. Til sam­an­burðar var með­al­úr­koma í Reykja­vík á árunum 1991 til 2020 rétt rúm­lega 50 milli­metrar.

Haft er eftir Christophe Céchu, ráð­herra orku­skipta í Frakk­landi, að þurrk­arnir sem nú ganga yfir væru af óþekktri stærð­argráðu. „Vegna lofts­lags­breyt­inga þurfum við að venj­ast atburðum sem þessum,“ sagði Céchu.

Veðurfar einnig haft áhrif víðar í álfunni

Víðar í Evrópu hafa miklir hitar haft áhrif á vatns­bú­skap. Júlí­mán­uður hefur ekki verið eins þurr á Englandi síðan árið 1935 og hefur íbúum þar verið bannað að nota garðslöngur og þeir því ekki getað þvegið bíla sína eða vökvað garða.. Sömu sögu er að segja frá Spáni en vatns­notkun hefur til dæmis verið tak­mörkuð í syðsta hér­aði lands­ins, Andalúsíu.

Árið í ár er eitt það þurrasta í sögu Ítalíu og lík­legt er talið að það verði einnig það heitasta í sög­unni. Sökum þurrkanna hefur saltur sjór úr Adría­hafi flætt upp ánna Pó sem ógnar upp­skeru í land­bún­að­ar­hér­uðum Pódals­ins sem stað­sett eru næst hafi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár