70 prósent atvinnulausra hafa verið án vinnu í hálft ár eða lengur

Alls voru níu af hverjum tíu störfum sem aug­lýst voru í júlí­mán­uði eru tengd átaks­verk­efnum þar sem ríkið greiðir þorra launa fólks eða reynslu­ráðn­ingar. Það kemur í ljós í haust, þegar ráðn­inga­styrkir renna út, hvort um fram­tíð­ar­störf verði að ræða.

Flest störf sem orðið hafa til í sumar tengjast ferðaþjónustutengdri starfsemi. Atvinnulausum innan þess geira fækkaði um 22 til 25 prósent í síðasta mánuði.
Flest störf sem orðið hafa til í sumar tengj­ast ferða­þjón­ustu­tengdri starf­semi. Atvinnu­lausum innan þess geira fækk­aði um 22 til 25 pró­sent í síð­asta mán­uði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hafa 8.836 manns verið atvinnu­lausir í lengri tíma en sex mán­uði, en það eru 70 pró­sent þeirra 12.537 sem voru atvinnu­lausir í lok síð­asta mán­aðar. Þeir sem höfðu verið án atvinnu í meira en ár voru 5.361, eða um 43 pró­sent allra atvinnu­lausra. Til sam­an­burðar voru þeir sem höfðu verið án atvinnu í meira en ár í lok júlí í fyrra 2.854. Þeim hefur því fjölgað um 88 pró­sent á milli ára.

Þetta mál lesa út úr ítar­efni sem fylgir nýrri skýrslu Vinnu­mála­stof­unnar um vinnu­mark­að­inn í júlí 2021 og birt var í vik­unni.

Vinnu­mála­stofnun gerir ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem hafa verið án atvinnu í yfir 12 mán­uði muni fara minnk­andi næstu mán­uði, en stofn­unin spáir því að atvinnu­leysi haldi áfram að drag­ast saman í ágúst­mán­uði.

Heild­ar­at­vinnu­leysi lækk­aði í júlí mán­uði og mælist nú 6,1 pró­sent. Það hefur ekki verið lægra frá því áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á snemma árs í fyrra, en til sam­an­burðar mæld­ist atvinnu­leysi 11,4 pró­sent í febr­úar síð­ast­liðnum.

Ástæður þess að atvinnu­leysið hefur minnkað svona hratt eru aðal­lega tví­þættar. Annars vegar er um árs­tíða­bundna sveiflu að ræða, en störfum fjölgar mikið á sumrin á Íslandi þegar háanna­tíma mann­afls­frekasta atvinnu­vegar þjóð­ar­innar, ferða­þjón­ustu, gengur í garð. Þegar ferða­mönnum fer að fækka á ný með haustinu má ætla, miðað við þróun fyrri ára, að störfum í ferða­þjón­ustu­geir­anum fækki sam­hliða.

[adspot]Hins vegar hafa svo­kall­aðir ráðn­inga­styrkir verið greiddir út í tengslum við atvinnu­átakið Hefjum störf sem var sett af stað í mars á þessu ári. Þá var mark­miðið að skapa allt að sjö þús­und tíma­bundin störf í sam­vinnu við atvinnu­lífið, opin­berar stofn­anir, sveit­ar­fé­lög og félaga­sam­tök. Ráðgert var að kostn­að­ur­inn myndi nema 4,5 til fimm millj­örðum króna þegar átakið var kynnt.

Kjarninn greindi frá því í frétt um miðjan júlí að um fimm þús­und umsóknir um ráðn­inga­styrki hefðu verið afgreiddar og að heild­ar­greiðslur í tengslum við átakið á þeim tíma hefðu numið 1,4 millj­arði króna.

Kemur í ljós í haust hvort um framtíðarstörf sé að ræða

Nokkrar teg­undir styrkja eru í boði. Samkvæmt yfir­liti yfir styrk­ina á heima­síðu Vinnu­mála­stofn­unar geta fyr­ir­tæki fengið styrk sem nemur allt að 307.430 krónum á mán­uði að við­bættu mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, sam­tals tæp­lega 343 þús­und krónur, í sex mán­uði ef fyr­ir­tækið ræður starfs­mann sem hefur verið á atvinnu­leys­is­skrá í að minnsta kosti einn mánuð. Lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki með færri en 70 starfs­menn geta fengið enn hærri styrk. Ef slíkt fyr­ir­tæki ræður atvinnu­leit­anda sem hefur verið á atvinnu­leys­is­skrá í að minnsta kosti ár fær það styrk sem nemur fullum mán­að­ar­launum að hámarki tæp­lega 473 þús­und krónum að við­bættu mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, sam­tals rúm­lega 527 þús­und krónur.

Til að setja umfang þessa átaks í ein­hvers­konar sam­hengi þá greindi Vinnu­mála­stofnun frá því í nýj­ustu skýrslu sinni um vinnu­mark­að­inn að 89 pró­sent allra aug­lýstra starfa í júlí­mán­uði hafi verið átaks­verk­efni eða reynslu­ráðn­ingar.

Ráðn­inga­styrkir þeirra sem voru ráðnir á slíkum strax í upp­hafi renna út í októ­ber, skömmu eftir kom­andi kosn­ingar. Þá á eftir að koma í ljós hversu mörgum þeirra sem hafa verið ráðnir á slíkum styrkjum verði haldið í vinnu þegar atvinnu­rek­endur þurfa að fara að greiða laun þeirra í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár