Íslandsbanki hagnast um 5,4 milljarða á Borgun en færir niður lán til Havila

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Friðrik Sophusson, formaður stjórnar bankans.
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, og Friðrik Soph­us­son, for­maður stjórnar bank­ans. Mynd: Íslandsbanki

Alls jókst virði hluta­bréfa og fjár­fest­inga í hlutafé hjá Íslands­banka um 74 pró­sent í fyrra. Eign bank­ans undir þeim lið, sem eru ann­ars vegar bréf skráð á markað og hins vegar óskráð bréf, fór úr 11,2 millj­örðum króna árið 2014 í 18,3 millj­arða króna í fyrra. Hækkunin er til­komin vegna virð­is­breyt­inga á eignum bank­ans og að mestu vegna hækk­unar á óbeinni eign hans í Visa Europe, í gegnum dótt­ur­fé­lag bank­ans Borgun. Alls skil­aði sú hækkun sér í 5,4 millj­arða króna hækkun á eigin fé Íslands­banka á síð­asta ári. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi bank­ans sem birtur var í morgun.

Lands­bank­inn, sem átti 31,2 pró­sent hlut í Borgun, seldi sinn hlut í fyr­ir­tæk­inu í nóv­em­ber 2014 á 2,2 millj­arða króna til félags í eigu stjórn­enda Borgunar og með­fjár­festa þeirra. Sá hlutur hefði verið marg­falt meira virði í dag, um fimmtán mán­uðum síðar, ef bank­inn hefði ekki selt hann.

Þótt Íslands­banki hafi hagn­ast vel á eign­ar­hlut sínum í Borgun þá er ekki jákvæð þróun all­staðar í eign­ar­safni bank­ans. Í árs­reikn­ingnum segir að „þróun mála og horfur í olíu­vinnslu hafa haft áhrif á stöðu bank­ans gagn­vart fyr­ir­tækjum í þjón­ustu við olíu­iðnað á hafi og hefur bank­inn bókað virð­is­rýrnun á þessa stöðu. Bankinn hefur í meira en tíu ár átt af og til hags­muni tengda norskum rekstr­ar­að­ilum þjón­ustu­skipa, en sú staða var í lok árs u.þ.b. 1% af útlána­safni bank­ans.“

Kjarninn hefur greint ítar­lega frá því á und­an­förnum vikum að Íslands­banki og Arion banki hafi lánað norska skipa­fyr­ir­tæk­inu Havila, sem á 27 skip sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó, háar fjár­hæðir á árunum 2013 og 2014. Havila rambar nú á barmi gjald­þrots og er í við­ræðum við kröfu­hafa sína um end­ur­skipu­lagn­ingu á skuldum. Félagið færði niður virði skipa­flota síns fyrr í þessum mán­uði um 21 millj­arð króna. Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur fallið úr um 115 dölum á tunnu í 32 dali frá sumr­inu 2014. Til að vinnsla á olíu í Norð­ur­sjó borgi sig er talið að verðið þurfi að vera um 60 dalir á tunnu.

Hagnaður bankans 20,6 milljarðar króna

Annars var árið í fyrra heilt yfir ágætt hjá Íslands­banka. Hagnaður bank­ans á árinu 2015 var 20,6 millj­arðar króna, eða 2,1 millj­arði krónum minna en bank­inn hagn­að­ist um árið áður. Ástæðan fyrir minni hagn­aði liggur aðal­lega í lægri ein­skipt­isliðum, eins og sölu á eignum, og í styrk­ingu krón­unnar. Hagnaður af reglu­legri starf­semi eykst hins vegar á milli ára um 1,4 millj­arða króna og var 16,2 millj­arðar króna í fyrra. Þá juk­ust útlán til við­skipta­vina um fimm pró­sent á árinu og þókn­ana­tekjur um 15 pró­sent. Eig­in­fjár­hlut­hall Íslands­banka var 30,1 pró­sent um síð­ustu ára­mót, en alls átti bank­inn þá 202,2 millj­arða króna í eigið fé. Arðsemi eig­in­fjár Íslands­banka lækk­aði þó á milli ára. Hún var 10,8 pró­sent í fyrra sam­an­borið við 12,8 pró­sent árið áður.

Bankinn er fyrstur stóru bank­anna þriggja til að birta reikn­ing sinn fyrir árið 2015 en hinir tveir, Arion banki og Lands­bank­inn, munu gera slíkt hið sama síðar í vik­unni. Arion banki mun birta á morgun, mið­viku­dag, og Lands­bank­inn á fimmtu­dag.

Hagnaður Íslands­banka hefur verið stöð­ugur und­an­farin fjögur ár. Samtals hefur bank­inn hagn­ast um 145,2 millj­arða króna frá árinu 2009.

Ætlar að greiða 10,3 milljarða króna í arð

Þótt að langt sé liðið frá hruni heldur hrein virð­is­breyt­ing útlána áfram að skila hagn­aði. Slík breyt­ing skil­aði alls 8,1 millj­arði króna í fyrra, eða um 40 pró­sent af hagn­aði bank­ans. Í til­kynn­ingu vegna árs­upp­gjörs­ins segir að þar af hafi 11,3 millj­arðar króna vegna end­ur­mats á fram­tíð­ar­sjóðs­streymi frá útlánum og 3,2 millj­arðar króna vegna gjald­færslu sem „sam­anstendur af almennri og sér­tækri virð­is­rýrnun útlána“. End­ur­skipu­lagn­ingu á lánum og kröfum sem bank­inn yfir­tók með miklum afföllum eftir hrunið er að sögn hans lokið og „fyrir vikið er ekki gert ráð fyrir árfram­hald­andi jákvæðum áhrifum á hagnað kom­andi ára“.

Íslands­banki er, líkt og hinir við­skipta­bank­arnir, einn stærsti skatt­greið­andi lands­ins. Alls greiddi bank­inn 5,9 millj­arða króna í tekju­skatt í fyrra og 2,9 millj­arða króna í svo­kall­aðan banka­skatt, sem búist er við að verði lagður niður í ár. Auk þess greiddi Íslands­banki sér­stakan sex pró­sent fjár­sýslu­skatt á hagnað umfram einn millj­arð króna og fram­lag í Trygg­ing­ar­sjóð inn­stæðu­eig­enda, til FME og umboðs­manns skuld­ara. Heild­ar­skattar og gjöld námu 10,8 millj­örðum króna sem er nán­ast sama upp­hæð og bank­inn greiddi árið 2014, þegar heild­ar­greiðslur voru 10,7 millj­arðar króna.

Íslands­banki er sem kunn­ugt er kom­inn að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins eftir að slitabú Glitnis afhenti hluta­bréf sín í honum sem hluta af stöð­ug­leika­fram­lagi sínu. Sá arður sem Íslands­banki ætlar að greiða á árinu 2016, um 10,3 millj­arðar króna, mun því renna óskiptur til rík­is­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár