Spice Girls að eilífu

Það eru 20 ár síðan smá­skífan Wannabe kom út og skaut Spice Girls lengst upp á stjörnu­him­in­inn. Fimm­menn­ing­arnir breyttu heim­inum, að minnsta kosti um stund.

Þótt það hljómi ótrú­lega þá eru tutt­ugu ár liðin frá því að fyrsta smá­skífa hljóm­sveit­ar­innar Spice Girls kom út og skaut þeim ræki­lega upp á stjörnu­him­in­inn. Lagið hét Wannabe og í stuttu máli sagt var það upp­hafið að bylt­ingu í tón­list­ar­heim­inum, alla­vega fyrir ungar stelpur um allan heim.

Það tók ekki nema nokkra daga fyrir lagið að verða gríð­ar­lega vin­sælt, og kom­ast í fyrsta sæti vin­sæld­ar­lista. Það var í sjö vikur í röð á toppi breska vin­sæld­ar­list­ans. Í heild­ina fór lagið í fyrsta sæti vin­sæld­ar­lista í næstum 40 löndum um allan heim. Það var bara byrj­unin að brjál­æð­inu og innan nokk­urra vikna nán­ast voru þær orðnar heims­frægar.

Sagan á bak við hljóm­sveit­ina er nokkuð þekkt. Þær voru meðal nokkur hund­ruð ungra kvenna sem svör­uðu aug­lýs­ingu feðganna Bob og Chris Herbert sem vildu stofna stúlkna­sveit. Fjórar þeirra sem end­uðu í hljóm­sveit­inni, Melanie Brown, Melanie Chishom, Victoria Adams, seinna Beckham, og Geri Halliwell, voru allar valdar í sveit­ina, ásamt fimmtu stúlkunni. Sú hét Michelle en fljót­lega kom í ljós að hún féll ekki inn í hóp­inn og Emma Bunton kom í stað­inn.

Þótt þær hafi vissu­lega verið settar saman af öðrum og þannig búnar til þá létu þær ekki auð­veld­lega að stjórn. Þær sættu sig ekki við að aðrir stjórn­uðu ferð­inni, og áður en þær höfðu gefið nokkuð efni út eða voru orðnar neitt þekktar los­uðu þær sig við feðgana. Það gátu þær vegna þess að þær höfðu aldrei skrifað undir samn­ing við þá. Þá kom til sög­unnar Simon Fuller, sem varð umboðs­mað­ur­inn þeirra og fylgdi þeim í gegnum mestu frægð­ina. Þær ráku hann reyndar á hátindi frægð­ar­innar, þegar þeim þótti hann far­inn að ráða ferð­inni of mikið. Geri Halliwell, sem stuttu síðar yfir­gaf hljóm­sveit­ina, hefur líkt tíma­bil­inu eftir að þær ráku hann og fóru að stjórna öllu sjálfar við „sex ára börn að keyra vöru­bíla.“

Árið 2007 voru hins vegar allir kall­aðir saman á ný, þar á meðal bæði Geri Halliwell og Simon Fuller. Þá fóru þær í tón­leika­ferð víða um heim, og sögðu þá að þetta yrði í síð­asta skipti sem þær kæmu saman. Þær stóðu reyndar ekki við það og komu saman allar fimm á Ólymp­íu­leik­unum í London árið 2012. Og núna - á 20 ára afmæl­inu, ætla þrjár af fimm að koma saman á ný undir nafn­inu Spice Girls GEM. GEM stendur fyrir Geri, Emma, Melanie B. en hinar tvær ætla ekki að láta sjá sig.

Réðu ferðinni sjálfar meira en fólk hélt

Mynd­bandið við lagið Wannabe, sem má sjá hér að ofan, var ágætt dæmi um það að fimm­menn­ing­arnir létu ekki vaða yfir sig. Það þótti svo ofboðs­lega óvenju­legt að yfir­menn hjá Virgin vildu henda því og láta taka upp nýtt mynd­band. Þær börð­ust hins vegar fyrir þessu skrýtna mynd­bandi og það sló alveg jafn mikið í gegn og lagið sjálft, á þess­ari gullöld tón­list­ar­mynd­banda sem þá ríkti.

Það voru líka þær sem börð­ust fyrir því að lagið yrði fyrsta smá­skífan þeirra. Þær voru alveg vissar á því að lagið ætti að vera fyrsta lagið þeirra, á meðan fyrr­nefndir yfir­menn hjá Virgin vildu að Say You'll be There yrði fyrsta smá­skífan, enda væri það sval­ara lag. Þær höfðu betur í þeirri bar­áttu líka.

Við vorum sífellt að reka okkur á hindr­anir, þú veist, það snérist allt um stráka. Strákar, strákar, strákar. Strákar selja plötur, strákar selja mynd­bönd, strákar selja tíma­rit og við sögðum bara kommon, það er kom­inn tími til að breyta til.

Femínismi fyrir byrjendur

Þótt þær köll­uðu það ekki femín­isma, þá kenndu Spice Girls heilli kyn­slóð stúlkna heilmargt um jafn­rétt­is­mál. Þær töl­uðu í sífellu um Girl Power, hug­tak sem verður ekki reynt að þýða hér, og það hafði veru­leg áhrif, þótt margir haldi því fram að um inn­an­tóman frasa hafi verið að ræða.

„Girl Power snýst um að sætta sig við sjálfan sig, hafa gaman og ef þig langar að vera í stuttu pilsi og wonderbra-brjósta­hald­ara, gerðu það en vertu örugg með þig og skemmtu þér vel,“ segir Victoria Beckham t.d. í við­tali snemma á ferl­inum. „Og ekki láta neinn annan stjórna lífi þínu því það eruð þið sem stjórnið ykkar lífi,“ bætir Emma Bunton við.

Líkt og kemur fram í heim­ild­ar­mynd­inni Giving you everyt­hing, sem gerð var þegar Spice Girls komu saman á ný árið 2007, þá var popp­brans­inn smekk­fullur af strákum og stráka­sveitum á þessum tíma. „Við vorum sífellt að reka okkur á hindr­anir, þú veist, það snérist allt um stráka. Strákar, strákar, strákar. Strákar selja plötur, strákar selja mynd­bönd, strákar selja tíma­rit og við sögðum bara kommon, það er kom­inn tími til að breyta til. Þetta snýst um stelpur, þetta er Girl power,“ segir Victoria Beckham í mynd­inni.

Þær töl­uðu fyrir og sungu um sjálf­stæði og vin­áttu og þær létu bara eins og þær vildu. Kysstu Karl Breta­prins og létu menn heyra það. Klæddust skrýtnum fötum, sem voru iðu­lega mjög efn­is­lítil.

Og núna, á tutt­ugu ára afmæli fyrstu smá­skíf­unnar, er lagið Wannabe orðið að ein­kenn­islagi nýrrar her­ferðar Sam­ein­uðu þjóð­anna, eins og sjá má hér að neðan.

Markaðssetning á sterum

Platan Spice kom út í nóv­em­ber 1996 og seld­ist í 31 milljón ein­tökum, sem er met. Aldrei hefur kvenna­sveit selt eins mörg ein­tök af plötu. Sömu sögu má segja af fyrsta lag­inu Wannabe. Platan seld­ist hraðar í Bret­landi en nokkur önnur frá því að Bítl­arnir voru og hétu. Næsta plata, Spiceworld, seld­ist í yfir 20 millj­ónum ein­taka og í heild­ina hafa þær selt yfir 80 millj­ónir ein­taka af plöt­unum sínum. Það er líka met – engin önnur kvenna­sveit hefur selt eins mikið. Þær eru líka á meðal mest seldu poppsveita í sög­unni.

Þá eru þær iðu­lega sagðar stærsta og vin­sælasta popp­fyr­ir­bærið frá Bret­landi á eftir Bítlunum. Eða voru það alla­vega þar til Adele kom til sög­unnar.

En þær settu líka met í mark­aðs­setn­ingu, sem seint verða slegin. Þær voru fárán­legt mark­aðs­afl, og ástæðan fyrir því var marg­þætt. Auðvitað spil­aði mikið inn í að þær voru vin­sælastar á meðal ungra barna, og það var kannski auð­velt að mark­aðs­setja gagn­vart þeim. Þær voru líka fimm, þær voru ólíkar, og það hjálp­aði til. Ungar stelpur völdu sína upp­á­halds eða þá sem þær tengdu mest við, og gælu­nöfnin sem þær höfðu hjálp­uðu líka til við þá teng­ingu. Varstu Sporty, Scary, Ginger, Baby eða Posh?

Dæmi um markaðssetninguna í kringum Spice Girls. Dúkkurnar voru bara toppurinn á ísjakanum.
Dæmi um mark­aðs­setn­ing­una í kringum Spice Girls. Dúkk­urnar voru bara topp­ur­inn á ísjak­anum.

Þótt ótrú­legt megi virð­ast þá voru það ekki þær eða mark­aðs­vélin þeirra sem fann upp á þessum gælu­nöfnum sem þær geng­ust svo mikið upp í. Það var Top of the Pops tíma­ritið sem bjó til gælu­nöfnin fyrir þær, og þær tóku þeim fagn­andi og not­uðu þau sér til hags­bóta. Mel B. hefur reyndar sagt að það hafi bara verið „latur blaða­maður“ hjá Top of the Pops sem nennti ekki að læra nöfnin þeirra sem hafi búið þetta til.

Dúkk­urnar sem má sjá hér að ofan voru bara topp­ur­inn á ísjak­anum. Þær gáfu út plötur og eins og tíðk­að­ist þá gáfu þær líka út smá­skífur. Þær gáfu út mynd­bands­spólur með mynd­bönd­unum sínum og við­tölum, og þær bjuggu til heila bíó­mynd sem heldur betur var hægt að selja út á.

Það var hægt að fá því­líkt úrval af fatn­aði, penna­veski, blý­anta, skóla­töskur, bolla, skó, mynda­vélar og svo fram­vegis. Næstum því allt mögu­legt var hægt að fá í Spice Girls útgáfu. Það er meira að segja búið að taka saman og gera sýn­ingu um allan varn­ing­inn sem til var. Þá er eftir að nefna allar bæk­urnar og mynda­albú­min sem hægt var að kaupa myndir í. Nú eða lím­miða­bæk­urnar, sem líka var auð­vitað hægt að kaupa lím­miða inn í.

Þær léku líka í svo mörgum aug­lýs­ingum að fljótt varð bakslag, fólki fannst þær vera að selja sig of mikið. Eins og Emma Bunton segir í áður­nefndri heim­ild­ar­mynd, þá hugs­aði hún með sér að hún hefði tekið upp fleiri aug­lýs­ingar en tón­list­ar­mynd­bönd. En þær völdu þetta sjálfar, og vildu að umboðs­mað­ur­inn Fuller gerði þær að eins miklum stjörnum og hægt var. Þetta var hluti af því.

Mark­miðið þeirra var nefni­lega alltaf að sigra heim­inn. Þær vildu verða þekkt nöfn á hverju heim­ili og frægar um allan heim. Það er óhætt að segja að þeim hafi tek­ist það, og að það sé enn þannig 20 árum seinna. Og þær verða áfram hluti af lífi kvenna um allan heim, kvenna sem nú eru á þrí­tugs- og fer­tugs­aldri. Þær konur munu halda áfram að syngja Wannabe í partýum og karókí á meðan þær lifa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár