D (18,7%): Háar tekjur, litlar áhyggjur af spillingu en telja efnahagsástand gott

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er. Hér að neðan er umfjöllun um kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enn stærsti flokkur lands­ins þótt fylgi hans hafi fallið hratt und­an­farin miss­eri og aldrei mælst jafn lágt í könn­unum MMR og það gerir nú um stundir. Þegar nið­ur­stöður kann­ana fyr­ir­tæk­is­ins í ágúst og sept­em­ber eru lagðar saman kemur fram að stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn mælist 18,7 pró­sent.

Flokk­ur­inn hefur sögu­lega verið mjög sterkur á meðal eldri kjós­enda. Þannig er staðan ekki lengur og virð­ist sem tölu­verður fjöldi þeirra sem til­heyra elstu ald­urs­hóp­unum hjá kjós­endum hans hafi nú leitað á önnur mið, aðal­lega til Mið­flokks­ins. Nú er stuðn­ingur við flokk­inn nokkuð dreifður milli ald­urs­hópa og eng­inn sér­stakur sem sker sig úr.

Sama má segja um stuðn­ing við flokk­inn milli lands­hluta. Mestur er stuðn­ing­ur­inn á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, þar sem 24,1 pró­sent kjós­enda seg­ist ætla að kjósa gamla turn­inn. Það vekur hins vegar athygli að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur minnst stuðn­ings í Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem hann sögu­lega hefur verið mjög sterkur. Þar hefur fylgni við flokk­inn dreg­ist hratt saman. Í maí sögð­ust til að mynda 26 pró­sent kjós­enda þar styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en nú er það hlut­fall 15,6 pró­sent.

Það sem helst ein­kennir kjós­enda­hóp Sjálf­stæð­is­flokks­ins er að stuðn­ingur við hann eykst merkj­an­lega eftir því sem tekjur hækka. Þannig nýtur flokk­ur­inn minnst stuðn­ings í hópi þeirra sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur, 11,9 pró­sent, og er með fjórða mesta fylgi allra flokka hjá þeim hópi. Stuðn­ing­ur­inn er hins vegar mestur hjá þeim sem eru með yfir 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í heim­il­is­tekjur, alls 25,4 pró­sent, og hjá þeim hópi er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn langstærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins.

Fyrri kann­anir MMR á ýmsum álita­málum mann­legrar til­veru hafa sýnt að kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa minnstar áhyggjur allra kjós­enda að spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­málum og minnstar áhyggjur allra að fátækt eða félags­legum ójöfn­uði. Þeir eru hins vegar lík­leg­astir allra til að telja efna­hags­stöð­una á Íslandi góða, en 87 pró­sent kjós­enda flokks­ins höfðu þá skoðun sam­kvæmt könnun sem fram­kvæmd var fyrr á þessu ári. Þá eru Sjálf­stæð­is­menn lík­legri en kjós­endur ann­arra flokka til að vera fylgj­andi veggjöldum.

Grein­ingin er hluti af stærri umfjöllun þar sem kjós­endur allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi eru teknir fyrir. Hún byggir á ítar­legum gögnum frá MMR úr könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur fram­kvæmt á fylgi flokka í ágúst og sept­em­ber 2019 auk fjölda ann­arra sér­tækra kann­ana um ýmis álita­mál sem MMR hefur fram­kvæmt á þessu ári. Hægt er að lesa heild­ar­um­fjöll­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár