Stefnt að frekari tilslökunum eftir 2-3 vikur

Sótt­varna­læknir segir að með sama áfram­haldi sé stefnt að því að gera frek­ari til­slak­anir á tak­mörk­unum hér inn­an­lands eftir um 2-3 vikur. Útbreiðsla far­ald­urs­ins sé að aukast erlendis og því ekki tíma­bært að hans mati að losa um aðgerðir á landa­mær­unum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Enn eru að grein­ast nokkur til­felli af kór­ónu­veirunni inn­an­lands á hverjum degi, oft­ast milli 2-6 dag­lega. Virkum smitum í heild hefur fækkað hægt en örugg­lega og sömu­leiðis þeim fjölda sem er í sótt­kví hverju sinni. „Þetta er það sem við getum búist við að sjá áfram, nokkra ein­stak­linga að grein­ast á hverjum degi og litlar hóp­sýk­ingar,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Nokkuð stöð­ugur fjöldi er einnig að grein­ast við landa­mærin þrátt fyrir tölu­verða fækkun far­þega. Þar grein­ast nú dag­lega allt frá engum og upp í sex. En hlut­fall far­þega með virkt smit fer vax­andi. Þórólfur sagði að í júní og júlí hafi 0,03 pró­sent far­þega verið með virkt smit en síð­ustu þrjár vikur hefur hlut­fallið verið 0,3 pró­sent. Vaxandi útbreiðsla far­ald­urs­ins erlendis er lík­leg­asta skýr­ingin.

60 pró­sent þeirra sem grein­ast á landa­mærum eiga lög­heim­ili á Íslandi.

Þórólfur benti á að útbreiðsla kór­ónu­veirunnar í nálægum löndum fari vax­andi og tók hann Danmörku, Noreg og Bretland sem dæmi. Í hans huga þýði þetta auknar líkur á því að veiran ber­ist hingað til lands. Hann und­ir­býr nú minn­is­blað til heil­brigð­is­ráð­herra varð­andi til­lögur að aðgerðum við landa­mærin en núgild­andi reglur sem fel­ast í tveimur sýna­tökum með nokk­urra daga sótt­kví á milli, gilda til 15. sept­em­ber. Þórólfur vildi ekki fara í smá­at­riðum ofan efni minn­is­blaðs­ins en ítrek­aði það sem hann hafi áður sagt um að ekki sé rétt að aflétta sam­tímis aðgerðum á landa­mærum og inn­an­lands því það gæti skapað tölu­verða hættu á útbreiðslu veirunnar á ný.

„Mín afstaða hefur í raun ekk­ert breyst frá síð­asta minn­is­blaði. Það er áfram mitt hlut­verk að benda á ýmsar útfærslur og sótt­varnir og þá áhættu sem felst í því að grípa til þeirra aðgerða. Svo þurfa stjórn­völd að meta það í ljósi heild­ar­hags­muna. Þannig að ég er enn á þeim nótum. Held að við eigum ekki að breyta miklu núna á meðan erum að feta okkur áfram hér inn­an­lands.“

[links]Staðan erlendis hafi versnað frá því hann sendi ráð­herra síð­ast minn­is­blað um aðgerðir á landa­mærum. Í sam­tölum við kollega sína í Evrópu hafi hann kom­ist að því að allir standi frammi fyrir svip­uðum spurn­ingum og þær snú­ist aðal­lega um hvað eigi að gera á landa­mær­unum. Ein­hverjir séu að íhuga tvö­falda skimun með sótt­kví á milli líkt og gert er hér á landi. Hins vegar benti hann á að ytra sé ekki verið að rað­greina veiruna eins ítar­lega og hér er gert til að kom­ast að upp­runa hennar. Því er ekki alltaf vitað hvort að aukn­ing í smitum sé út frá sömu veiru­af­brigð­unum inn­an­lands eða hvort ný afbrigði séu að koma inn erlendis frá.

Tak­mark­anir inn­an­lands sem tóku gildi nýverið gilda til 27. Sept­em­ber. Í þeim felst að 200 mega koma saman og var eins metra regla tekin upp í stað tveggja metra áður. „Eins metra reglan er mjög mik­il­væg og kannski sú mik­il­væg­asta í okkar sam­skiptum í því að hefta útbreiðslu veirunnar,“ sagði Þórólfur.

Hann vill sjá árangur á hverju skrefi í aflétt­ingu tak­mark­ana áður en næstu skref verða tekin en að ef allt gangi vel sé stefnt að því að slaka enn frekar á tak­mörk­unum inn­an­lands eftir 2-3 vikur.

Þá greindi Þórólfur frá því á fund­inum að hann hefði nú sent heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað um að stytta fjórtán daga sótt­kví sem fólk inn­an­lands þarf að fara í ef það hefur orðið útsett fyrir veirunni. „Ég held að að gögn og rann­sóknir sýni að við getum stytt þessa sótt­kví með sýna­töku á sjö­unda degi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár