Reynsluboltar hætta á þingi

Forseti Alþingis, einn núver­andi ráð­herra og tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar ætla að hætta þing­setu eftir þetta kjör­tíma­bil. Enn er ekki komin dag­setn­ing fyrir haust­kosn­ingar.

Katrín Júlíusdóttir (13 ár á þingi), Einar K. Guðfinnsson (25 ár á þingi), Ögmundur Jónasson (20 ár á þingi), Páll Jóhann Pálsson (3 ár á þingi) og Sigrún Magnúsdóttir (3 ár á þingi) ætla að róa á önnur mið á næsta kjörtímabili.
Katrín Júl­í­us­dóttir (13 ár á þingi), Einar K. Guð­finns­son (25 ár á þingi), Ögmundur Jónasson (20 ár á þingi), Páll Jóhann Pálsson (3 ár á þingi) og Sigrún Magn­ús­dóttir (3 ár á þingi) ætla að róa á önnur mið á næsta kjör­tíma­bili. Mynd: Birgir Þór

Ekki er komin dag­setn­ing á kom­andi Alþing­is­kosn­ingar. Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafa báðir full­yrt að kosið verði í haust. Framundan eru for­seta­kosn­ingar, sem stefna í að verða sögu­legar, 25. júní og strax í kjöl­farið má búast við að kosn­inga­bar­átta flokk­anna fari á fullt. Sam­fylk­ing og Fram­sókn­ar­flokkur eru í for­manns­vand­ræðum, en kosið verður um nýja for­ystu í Sam­fylk­ing­unni á aðal­fundi í byrjun júní. Ekki liggur fyrir hvernig málum verður háttað hjá Fram­sókn­ar­flokknum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur nú verið í fríi í þrjár vikur og ekki liggur fyrir hvenær, eða hvort, hann snýr aftur á Alþingi.

Kveðja Alþingi

Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, gaf út í fyrra­dag að hann ætli að hætta á þingi eftir 20 ára þing­setu. Ögmundur sett­ist fyrst á þing árið 1995 og hefur verið full­trúi Alþýðu­banda­lags­ins og óháðra, Óháðra og síð­ast Vinstri grænna. Hann sat fyrir Reykja­vík, Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og síð­ast fyrir Kragann. Ögmundur sagði á síðu sinni í gær að tími væri til kom­inn að breyta um umhverfi. Hann ætli að halda áfram á þingi út kjör­tíma­bilið og taka svo að sér önnur verk­efni. Hann er fæddur árið 1948 og verður 68 ára 17. júlí næst­kom­andi.

Fleiri þing­menn, þar af tveir reynslu­miklir og einn núver­andi ráð­herra, ætla að hætta eftir þetta kjör­tíma­bil, eins og fram kom í úttekt Kjarnans í apríl. 

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar að hætta eftir 25 ára þing­setu. Einar var þing­maður Vest­fjarða árin 1991 til 2003 og síðan fyrir Norð­vest­ur­kjör­dæmi síðan 2003. Einar var vara­þing­maður Vest­fjarða fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn árið 1980, 1984, 1985, 1988, 1989 og 1990. Hann var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra árin 2005 til 2007, jafn­framt land­bún­að­ar­ráð­herra árið 2007 og síðan sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra árin 2008 til 2009. Einar var for­maður þing­flokks Sjálf­stæð­is­manna árin 2003 til 2005 og var svo settur for­seti Alþingis eftir síð­ustu kosn­ingar, vorið 2013. Hann er fæddur 1955 og verður 61 árs 2. des­em­ber.

Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og fyrr­ver­andi þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks, ætlar að láta gott heita. Sigrún hefur setið á þingi fyrir Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í þrjú ár, síðan 2013, og verið ráð­herra frá 2014. Sigrún var vara­þing­maður Reyk­vík­inga frá mars til apríl 1980 og frá apríl til maí árið 1982. Sigrún er fædd 1944 og verður 72 ára þann 15. júní.

Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi iðn­að­ar­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ætlar einnig að snúa sér að öðrum verk­efnum eftir þrettán ára þing­setu. Katrín hefur verið þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Kraganum síðan árið 2003. Hún er fædd árið 1974 og verður 42 ára þann 23. nóv­em­ber.

Páll Jóhann Pálsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist hafa fengið nóg af þing­mennsku og ætlar að róa á önnur mið eftir kjör­tíma­bilið. Páll sett­ist á þing 2013 fyrir Suð­ur­kjör­dæmi, eftir síð­ustu kosn­ingar, og hefur setið í þrjú ár. Hann er fæddur árið 1957 og verður 59 ára 25. nóv­em­ber.

Þá má nefna að tveir reynslu­miklir þing­menn féllu frá á kjör­tíma­bil­inu. Pétur Blöndal hafði setið á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík síðan árið 1995 og sat í 20 ár. Pétur fædd­ist 24. júní árið 1944 og lést 26. júní 2015, 71 árs að aldri. Guð­bjartur Hann­es­son sett­ist á þing fyrir Sam­fylk­ing­una í Norð­vest­ur­kjör­dæmi árið 2007 og var þing­maður í sjö ár. Hann var for­seti Alþingis árið 2009, félags- og trygg­inga­mála­ráð­herra og heil­brigð­is­ráð­herra árið 2010 og vel­ferð­ar­ráð­herra árin 2011 til 2013. Guð­bjartur fædd­ist 3. júní 1950 og lést 23. októ­ber í fyrra, 65 ára að aldri.

Margir óákveðnir með framhaldið

Í könnun Kjarnans voru allir sitj­andi þing­menn spurðir hvort þeir hyggð­ust gefa kost á sér áfram til Alþingis í kom­andi kosn­ingum. Flestir sögðu já, en þó nokkuð margir voru enn óákveðnir eða vildu ekki svara.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, vildu ekki gefa upp afstöðu sína í könn­un­inni, en Össur sagði skömmu síðar í við­tali við Eyjuna að hann ætli sér að halda áfram á þingi og það sama gerði Katrín skömmu síðar á Hring­braut.

Fleiri þing­menn sem vildu ekki svara hvort þeir hyggð­ust halda áfram á þingi voru Haraldur Ein­ars­son Fram­sókn­ar­flokki, Kristján L. Möller Sam­fylk­ingu og Vil­hjálmur Bjarna­son Sjálf­stæð­is­flokki.

Þeir sem voru óákveðnir varð­andi fram­haldið voru Birgir Ármanns­son, Brynjar Níelsson og Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir Sjálf­stæðs­flokki, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir Vinstri grænum, Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, Guð­mundur Stein­gríms­son og Róbert Marshall hjá Bjartri fram­tíð, Karl Garð­ar­son og Lilja Alfreðs­dóttir Fram­sókn­ar­flokki. Ekki náð­ist í Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, Illuga Gunn­ars­son, Jóhönnu Maríu Sig­munds­dóttur, Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni eða Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur í könnun Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár