Fjárlagafrumvarp afgreitt úr nefnd í sátt allra

Fjár­laga­frum­varpið fyrir næsta ár hefur verið afgreitt úr fjár­laga­nefnd í sátt allra flokka. Frá þessu er greint á RÚV. Stefnt er að því að önnur umræða um málið hefj­ist í kvöld.

Band­orm­ur­inn svo­kall­aði var einnig afgreiddur úr efna­hags- og við­skipta­nefnd í dag.

Breyt­ing­ar­til­lögur verða gerðar á fjár­laga­frum­varp­inu upp á tæpa þrettán millj­arða króna með því að setja aukið fjár­magn í heil­brigð­is­kerfið, lög­gæslu, sam­göngur og mennta­kerfið. Áfram er gert ráð fyrir afgangi af fjár­lögum upp á 24 millj­arða króna.

Á þing­fundi sem hófst klukkan þrjú voru greidd atkvæði um frum­varp um líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins, og málið er nú aftur komið til efna­hags- og við­skipta­nefndar.

Þá er alls­herjar- og mennta­mála­nefnd búin að leggja fram frum­varp um veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár