Íslensk kona lést úr COVID-19 sjúkdómnum

Íslensk kona lést á Land­spít­al­anum í gær úr COVID-19, sjúk­dómnum sem nýja kór­ónu­veiran veldur.

Íslensk, eldri kona lést á Land­spít­al­anum í gær úr COVID-19, sjúk­dómum sem nýja kór­ónu­veiran veldur. Frá þessu greinir sonur hennar á Facebook.

Í frétt á vef Land­spít­al­ans segir að konan hafi verið lið­lega sjö­tug og glímt við langvar­andi veik­indi.

[adspot]

Þetta er annað and­látið af völdum COVID-19 hér á landi en karl­maður frá Ástralíu, sem var á ferða­lagi um Ísland, lést á heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsavík fyrir rúmri viku. Bráða­birgða­nið­ur­stöður krufn­ingar leiddu í ljós að hann var með lungna­bólgu en ódæmi­gerð ein­kenni.

Maðurinn var á fer­tugs­aldri.

Um hádeg­is­bil í gær höfðu 588 smit verið greind hér á landi. Þá lágu þrettán sjúk­lingar á Land­spít­al­anum vegna sjúk­dóms­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár