Ofönduðu í mörgum reifum – MAST ítrekað borist ábendingar um bæinn

Mat­væla­stofnun hefur ítrekað fengið ábend­ingar vegna drasl­ara­gangs og van­hirðu dýra á bæ í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi. Bóndanum hefur verið gef­inn frestur þar til í nóv­em­ber til að gera úrbætur.

Í mörgum reifum
Í mörgum reifum Kindur þarf að rýja reglu­lega en það hefur bónd­inn sem um ræðir ekki gert líkt og sjá má á þess­ari mynd. Að auki virð­ist eitt­hvað fast, mögu­lega plast, á kvið kind­ar­innar. Mynd: Aðsend

„Þegar á hlaðið var komið blöstu við mér kindur sem voru í nokkrum reifum. Flest féð var greini­lega ómeð­höndlað, t.d. hvað varðar orma­lyf. Þær voru svartar að aftan af skít. Það er hásumar og átak­an­legt að sjá þær ofanda í hit­anum vegna mjög slæmrar van­hirðu.“

Þannig lýsir ein­stak­lingur sem lætur sig vel­ferð dýra miklu varða aðkomu að bæ í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi nýverið. Hann segir ástandið hafa verið jafnslæmt á bænum í fyrra. „Þetta verður að stöðva og ljóst er að dýrin eru sann­ar­lega i neyð hjá þessum eig­anda.“

Illa hirtKind­urnar við bæinn eru í mörgum reifum og að auki margar ataðar eigin skít.

Sig­ur­borg Daða­dóttir yfir­dýra­læknir hjá Mat­væla­stofnun (MAST) segir í skrif­legu svari til Heim­ild­ar­innar að und­an­farin miss­eri hafi ítrekað borist ábend­ingar um þennan til­tekna bæ. Flestar snúi þær að drasl­ara­gangi, lélegri umhirðu „og nú síð­ast því sem þú lýsir“.

Árið 2021 komu að sögn Sig­ur­borgar tvær ábend­ingar, báðar sam­hljóða og voru um sama efni, þ.e. drasl­ara­gang og plast­mengun. „Farið var í eft­ir­lit og það sann­reynt, en MAST gerði þá ekki athuga­semdir varð­andi dýrin sjálf,“ segir hún. Fram komi í gögnum að Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands hafði afskipti af ábú­anda vegna drasl­ara­gangs enda falli það undir þeirra mál­efna­svið.

„Verið er að bregð­ast við þess­ari ábend­ingu og tekið verður á málum sam­kvæmt verk­lagi um beit­ingu þving­ana.“
Sig­ur­borg Daða­dóttir,
yfir­dýra­læknir

Árið 2022 barst ein ábend­ing um bæinn og fjall­aði hún um van­hæfi bónd­ans og almennt umhirðu­leysi. Enn á ný var farið í eft­ir­lit, „en ekki tókst að sann­reyna umkvört­un­ar­efnið, ekk­ert fé var aðgengi­legt til að skoða enda það allt úti og fjarri bæ,“ segir Sig­ur­borg.

Ákveðið var þá að fylgja mál­inu eftir með reglu­bundnu eft­ir­liti þegar fé væri á húsi.

Í ár var farið í slíkt eft­ir­lit og nokkur frá­vik voru skráð er varða dýra­vel­ferð. Frestur bónd­ans til úrbóta renni út í nóv­em­ber.

„Tvær ábend­ingar bár­ust í lok júlí, og voru þær sam­hljóða, fjöll­uðu um drasl­ara­gang og almennt umhirðu­leysi auk van­hæfi bónda,“ segir yfir­dýra­læknir. „Verið er að bregð­ast við þess­ari ábend­ingu og tekið verður á málum sam­kvæmt verk­lagi um beit­ingu þving­ana, sem geta verið dag­sektir, að láta vinna verk á kostnað eig­anda og síð­asta úrræðið er að vörslu­svipta ef mild­ari þving­unar­úr­ræði duga ekki.“

Drasl­ara­gangurKindur við bæinn áttu erfitt í hit­anum í júlí.

 Eigandi ber ætíð ábyrgð á sínum dýrum, en MAST hefur eft­ir­lit með að eig­andi fari að lögum og reglu­gerðum, útskýrir Sig­ur­borg. Alþekkt sé að orma­hreinsa þurf sauðfé reglu­lega. Bændur leiti upp­lýs­inga og leið­bein­inga hjá sínum dýra­læknum og fá  við­eig­andi lyf hjá þeim. „Eigendum ber einnig að kalla til dýra­lækni vegna veik­inda eða meiðsla hjá dýrum sínum, dýra­lækn­ir­inn metur hvað rétt sé að gera í hverju til­viki. Mast beitir aðeins þving­unum þegar eig­andi fram­kvæmir ekki skyldur sínar.“

Jafnmargar tilkynningar í ár

Nokkuð hefur verið fjallað um sam­bæri­leg mál, þar sem almenn­ingur hefur bent á van­hirðu dýra, í fréttum síð­ustu mán­uði. Sig­ur­borg segir hins vegar að ekki virð­ist vera fjölgun milli ára á ábend­ingum er varða sauðfé. Á fyrstu sjö mán­uðum síð­asta árs var skráð 41 ábend­ing er varðar með­ferð á sauðfé og á sama tíma­bili í ár voru til­kynn­ing­arnar 40.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár