Hillary Clinton For­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins á í ímynd­ar­vanda. Mynd: Shutterstock

Hvernig varð Hillary Clinton einn hataðasti stjórnmálamaður sögunnar?

Einn hataðasti stjórn­málamaður sögunnar tekst á við forseta­fram­bjóðanda sem mikill meirihluti telur óhæfan. Hvernig varð Hillary Clinton, sem mælist vera einn sann­söglasti fram­bjóðandinn, hataðri en aðrir?

Flestir eru sammála um að Donald Trump sé einn versti og vanhæfasti forseta­fram­bjóðandi í sögu Banda­ríkjanna. Nýleg könnun Gallup sýndi til dæmis að 67% skráðra kjósenda telja hann skorta þá persónu­legu eigin­leika, stjórnunar­hæfileika og skapgerð sem nauðsynleg er í embætti forseta. 

Engu að síður hefur munurinn á stuðningi við hann og Hillary Clinton sjaldan verið minni, nú þegar rétt innan við vika er til kosninga. Kannanir síðustu daga sýna að forskot Clinton á landsvísu hefur ýmist horfið eða skroppið saman í 1–3% og í nýjustu könnun LA Times er Trump með 4% forskot. 

Í könnunum  LA Times hefur fylgi Trump reyndar alltaf mælst meira en hjá öðrum og Clinton er enn með nokkuð sann­færandi forskot í nógu mörgum af vígvallar­ríkjunum, „battleground states“, þar sem munurinn á fram­bjóðendunum er minnstur, til að vera nokkuð örugg um sigur. Tölfræðigúrúið Nate Silver telur til dæmis að Hillary eigi enn yfir 70% líkur á 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakjör í BNA 2016

ErlentForsetakjör í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?

Á dögunum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þingmaður Pírata, úr ræðustól á Alþingi að Donald Trump Bandaríkja­forseti væri fasisti. Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðis­flokksins andmælti því, og nokkrir aðrir sömuleiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vefsíðan Slate viðtal sem blaða­maðurinn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræðinginn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svipuðum slóðum og fasistar eða nasistar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár