GDS2017: Vímuefnanotkun eftir aldri

Fyrr á þessu ári fékk ég nokkra félaga frá hinum ýmsu löndum í heim­sókn. Þetta voru skyn­samir, mennt­aðir og lög­hlýðnir menn á fimm­tugs­aldri með mis­mun­andi menn­ing­ar­bak­grunn og tón­list­arsmekk. Saman voru þeir á leið á tón­list­ar­há­tíð í sveitum Bret­lands. Þótt ég vissi að þeir ættu það til að fá sér í glas, vissi ég líka að sumir þeirra höfðu sóst í breið­ari hóp vímu­efna og ákvað ég því að spyrja þá hvort þeir ætl­uðu að taka ein­hver önnur vímu­efni á hátíð­inni. Ég ákvað að segja þeim frá hækk­andi styrk á MDMA pillum und­an­farin ár (200-300 mg) og að þeir ættu að passa sig, jafn­vel láta skoða styrk­leika þeirra, ef þeir hefðu það í huga. Þeir horfðu hissa á mig og sögð­ust vera allt of gamlir fyrir örvandi efni. Cholesterol, hár blóð­þrýst­ingur og aukið magaum­mál gerði notkun kóka­íns eða örvandi efna í töflu­formi of áhættu­sama og stressandi. Ég skil sagði ég, þannig bara bjór? Já eig­in­lega, sögðu þeir, en með því að taka lít­inn skammt af sveppum á sér­stökum til­efnum, má kalla fram góða vellíðan og orku fyrir kvöldið. Í alvöru? Spurði ég. Já, sögðu þeir, smá­skammta víma (e. low dose trip) er með betra vali á vímu­efnum fyrir okkur gaml­ingj­ana, öruggt, kunn­ug­legt og skemmti­legt.

Þeir voru ekki að þessu til að finna teng­ingu við innri mann­eskju eða til að fá ofskynj­anir, heldur til að hafa smá áhrif á skyn­færin sín. Þegar það kemur að ofskynj­un­ar­lyfjum, sem og flestum vímu­efnum, skiptir skammta­stærðin öllu. Það er auð­velt að gleyma því að flest hefð­bundin ofskynj­un­ar­lyf, ásamt því að virkja 5HT2 við­taka heil­ans (ser­otonin við­taka), eykur einnig losun monoa­mines (boð­efnin dopa­mine og nora­drena­line) eins og örvandi vímu­efni gera. Því er ekki óal­gengt að fólk sem tekur of mikið af ofskynj­un­ar­efnum fari á bráða­mót­tök­una vegna hræðslu við hraðan púls og aukna örvun sem það bjóst ekki við.

Nýlega hefur orðið aukn­ing í að taka mjög litla skammta (micro-dos­ing) af LSD til að auka frammi­stöðu í vinnu og skap­andi hugsun (eitt­hvað sem GDS2017 ætlar meðal ann­ars að ein­beita sér að í ár) og því teljum við mik­il­vægt að skoða betur notkun á mjög litlum skömmtum (micro-dos­ing) af ofskynj­un­ar­efnum til skemmt­unar. Þannig ef þú ert byrj­aður að grána, hárið byrjað að þynn­ast og þú sækir frekar í gömlu plöt­urnar en dans­tón­list, þá viljum við heyra frá þér!

Endilega taktu þér tíma í heims­ins stærstu gagna­söfnun um vímu­efna­notkun hér.

Þýðing: Baldur Jón Gúst­afs­son, Fulltrúi Global Drug Survey á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár