Flest slagorð í þessari kosningabaráttu gætu gengið fyrir hvaða flokk sem er

Eiríkur Rögn­valds­son segir fæst slag­orð stjórn­mála­flokk­anna hafa ein­hverja sjálf­stæða merk­ingu enda geti verið erfitt að leggja áherslu á eitt­hvað mál í slag­orði sem verður svo ef til vill ekki kosn­inga­mál. Slagorð Sós­í­alista skarar fram úr að hans mati.

Eiríkur er prófessor emeritus í íslenskri málfræði.
Eiríkur er pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði. Mynd: Kjarninn/Samsett

Ef slag­orð flokk­ana fyrir kom­andi kosn­ingar eiga eitt­hvað sam­eig­in­legt þá er það að vera helst til inn­an­tóm auk þess sem þau ná illa að ein­kenna flokk­ana sem flagga þeim, þó finna megi á því und­an­tekn­ingar. Þetta segir Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði en Kjarninn leit­aði til Eiríks og bað hann um álit á slag­orðum flokk­anna.

„Eitt sem mér fannst eft­ir­tekt­ar­vert þegar ég skoð­aði þetta var að þó nokkur af þessum slag­orðum gætu í sjálfu sér verið slag­orð hvaða flokks sem væri,“ segir Eiríkur og nefnir til dæmis slag­orð Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Mið­flokks­ins og Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokks­ins.

Slagorð þess­ara flokka, í sömu röð og þeir voru taldir upp, fyrir kom­andi kosn­ingar eru eft­ir­far­andi: „Það skiptir máli hver stjórnar“, „Betra líf fyrir þig, þína fjöl­skyldu og kom­andi kyn­slóðir“, „Gefðu fram­tíð­inni tæki­færi“, „Það sem við segj­umst ætla að gera, gerum við!“ og „Gegn spill­ingu - Beint lýð­ræði - Verndum nátt­úr­una“.

Flest slagorðin ganga fyrir alla flokka

Eiríkur segir slag­orðin vekja upp spurn­ingar um hvaða til­gangi þau þjóni. Hann segir nokkur slag­orð þess­arar kosn­inga­bar­áttu vera þess eðlis að ekki allir flokkar myndu taka þau orð­rétt upp og nefnir í því sam­hengi slag­orð Flokks fólks­ins, „Fólkið fyrst, svo allt hitt“, og Fram­sókn­ar­flokks­ins, „Fram­tíðin ræðst á miðj­unni“. Vissu­lega geti slag­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins virst vísa til Mið­flokks­ins, bendir Eiríkur á, þó svo að Mið­flokk­ur­inn stað­setji sig ekki beint á miðj­unni. Þá telur hann að ekki myndu allir flokkar flagga því orð­færi sem birt­ist í slag­orði Sjálf­stæð­is­flokks­ins en flokk­ur­inn styðst við slag­orðið „Land tæki­fær­anna“.

Eitt slag­orð í þess­ari kosn­inga­bar­áttu stendur öðrum framar, að mati Eiríks, slag­orð Sós­í­alista­flokks­ins sem er „Skilum rauðu“. „Mér finnst það alveg bera af þessum slag­orðum. Að því leyti að þarna er verið að taka þennan þekkta frasa „skilum auðu“ og bæta R-inu fyrir framan. Bæði er þetta ein­kenn­andi og passar vel fyrir flokk­inn og svo líka eitt­hvað sem maður tekur virki­lega eftir sem mér finnst nú ekki hægt að segja um margt af hinu,“ segir Eiríkur.

Slagorð Pírata, „Lýðræði – ekk­ert kjaftæði“, er annað slag­orð sem gæti kannski ekki komið frá hvaða flokki sem er að mati Eiríks. „Maður sér ekki fyrir sér að margir aðrir flokkar myndu nota orð eins og „kjaftæði“ í sínum slag­orðum. Það er svo­lítið óhefð­bundið sem á vænt­an­lega ágæt­lega við Pírata.“

„Báknið burt!“ dæmi um gott slagorð

Að mati Eiríks eru slag­orðin flest ekk­ert sér­stak­lega tengd stefnu flokk­anna sem nota þau. „Þau eru flest ekk­ert sér­stak­lega tengd stefnu flokks­ins. Það er ekk­ert sér­stak­lega ein­kenn­andi og það er spurn­ing hvernig á að leggja út af því. Einn mögu­leik­inn er sá að stefnan er óskýr. Annar mögu­leik­inn er að stefnan sker sig svo ekk­ert mjög úr stefnu ann­arra flokka. Þriðji mögu­leik­inn er að segja að það er bara svo erfitt að búa til svona frasa, eitt­hvert svona slag­orð sem er lýsandi.

Spurður að því hvort slag­orðin geti virkað fyrir flokk­ana til að vinna kjós­endur á sitt band seg­ist Eiríkur ekki hafa trú á því. „Það eru til ein­hver gömul slag­orð sem hafa verið notuð áður sem hafa haft kannski ein­hver áhrif eins og til dæmis „Báknið burt!“ sem að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur oft notað. Það er eitt­hvað sem er dálítið gott finnst mér að því leyti að þetta er stutt, ein­falt og lýsandi,“ segir Eiríkur og spyr í kjöl­farið hvort það þurfi þurfi að búa til nýtt slag­orð fyrir hverjar kosn­ingar.

Snúið að semja gott slagorð

Það getur verið vanda­samt verk að semja gott og smellið slag­orð fyrir kosn­inga­bar­áttu. Eiríkur bendir á að flokk­arnir þurfi til að mynda að passa sig á því að það sé ekki auð­velt að snúa út úr slag­orði þeurra. „Það er frægt dæmi fyrir löngu, árið 1979, þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var með „Leift­ur­sókn gegn verð­bólgu“, en and­stæð­ing­arnir sneru því upp í „Leift­ur­sókn gegn lífs­kjörum“. Það var eig­in­lega miklu betra slag­orð því það stuðlar. Þannig að það eig­in­lega sner­ist gegn flokknum og það má auð­vitað passa sig á því.“

Líkt áður segir getur það verið snúið að smíða gott slag­orð. Að mati Eiríks myndu slag­orðin ef til vill höfða meira til fólks ef þau töl­uðu meira inn í sam­tím­ann. Það geti hins vegar verið vara­samt fyrir flokk­ana sem þurfa að vera til­búnir með slag­orð í tæka tíð fyrir kosn­ingar. „Þá eru þeir kannski búnir að búa til slag­orð um eitt­hvað sem þeir halda að verði kosn­inga­mál en verður svo ekk­ert kosn­inga­mál,“ segir Eiríkur.

„Í raun og veru eru þessi slag­orð þeirra meira eins og eitt­hvað logo, þetta er bara merki, ein­hvern veg­inn hluti af merki flokks­ins en hefur enga sjálf­stæða merk­ingu, bara til að ein­kenna flokk­inn,“ segir Eiríkur og bendir á að það þurfi ekki endi­lega að vera slæmt frá sjón­ar­hóli flokk­anna. Þrátt fyrir að það geti virst ómögu­legt við fyrstu sýn að meta hvaða flokkar eru með hvaða slag­orð, þá læri fólk að tengja slag­orð við við­kom­andi flokk og þá fá þau kannski eitt­hvert gildi að mati Eiríks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár