„Loftslagsváin fer ekki í sumarfrí“

Ungmenni á Íslandi halda áfram að fara í verk­fall fyrir lofts­lagið þrátt fyrir COVID-19 far­aldur og sum­ar­frí. Greta Thunberg hvetur jafn­framt áfram til mót­mæla.

Ungmenni mótmæla aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum.
Ungmenni mót­mæla aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum. Mynd: Bára Huld Beck

Ungt fólk á Íslandi heldur áfram að mót­mæla aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum hvern ein­asta föstu­dag á Aust­ur­velli klukkan 12. Verk­fallið – eins og mót­mælin eru kölluð – er inn­blásið af hinni sænsku Gretu Thunberg en hún hefur vakið heims­at­hygli fyrir bar­áttu sína í lofts­lags­málum.

Greta sagði á Instagram-reikn­ingi sínum í síð­ustu viku að lofts­lags­váin færi ekki í sum­ar­frí, „svo við höldum áfram að mót­mæla“.

For­svars­menn verk­falls­ins á Íslandi segja í sam­tali við Kjarnann að þau hafi tekið pásu á meðan sam­komu­bannið stóð yfir. „Við byrj­uðum aftur í miðjum júní, og mæt­ingin hefur verið sú sama eins og fyrir COVID-19.“ Fólk haldi sig þó fjær hvort öðru en áður.

[adspot]

Á Facebook-síðu verk­falls­ins kemur fram að nýj­ustu tölur Gallup sýni að fleiri Íslend­ingar en nokkru sinni fyrr hafi áhuga á – og áhyggjur af – umhverf­is­málum en þó fari losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda enn vax­andi.

„Við viljum sýna stjórn­völdum að almenn­ingur sé með­vit­aður um alvar­leika máls­ins og vilji rót­tækar aðgerðir.

Stjórn­völd hafa sett sér aðgerð­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum til árs­ins 2030 og gera meðal ann­ars ráð fyrir kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2040. Við viljum styðja við bakið á þeim aðgerðum, en betur má ef duga skal. Núver­andi aðgerða­á­ætlun er ekki í sam­ræmi við mark­mið um að halda hlýnun innan 1,5 gráðu á heims­vísu og við krefj­umst aðgerða sem eru lík­legar til að skila þeim árangri,“ segir á síðu verk­falls­ins.

Vilja að Ísland taki af skarið

Ljóst sé að stór­auka þurfi fjár­fram­lög til lofts­lags­að­gerða. Milli­ríkja­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál (IPCC) reikn­ist til að verja þurfi 2,5 pró­sent af heims­fram­leiðslu til lofts­lags­mála á ári til árs­ins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. Núver­andi áætlun sé upp á 0,05 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu á ári næstu fimm árin.

Þau krefj­ast þess að Ísland taki af skarið, hlusti á vís­inda­menn, lýsi yfir neyð­ar­á­standi og láti hið minnsta 2,5 pró­sent af þjóð­ar­fram­leiðslu renna beint til aðgerða tengdum umhverf­is­málum. Þar verði atvinnu­lífið einnig að axla ábyrgð og til þess verði við­horfs­breyt­ing að eiga sér stað.

Ekki sé nóg að almenn­ingur taki ábyrgð á sínum gjörðum heldur þurfi á því að halda að stjórn­völd, fyr­ir­tæki og félög taki þátt og breyti við­horfi og hegðun sinni. „Við viljum afdrátt­ar­lausar aðgerðir. Núna. Fyrir kom­andi kyn­slóðir. Fyrir lofts­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár