Krefur yfirvöld um betri upplýsingar um faraldurinn á erlendum tungum

„Við erum ekki öll almanna­varnir ef upp­lýs­ing­arnar ná ekki til okkar allra,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir í bréfi til for­sæt­is­ráð­herra, þar sem þess er kraf­ist að bætt verði úr upp­lýs­inga­miðlun um far­ald­ur­inn til aðfluttra íbúa á Íslandi.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar hefur sent bréf til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra þar sem þess er kraf­ist að úrbætur verði gerðar á því hvernig mik­il­vægum upp­lýs­ingum varð­andi kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn miðlað til þeirra íbúa á Íslandi sem hafa annað móð­ur­mál en íslensku.

„Þegar þetta bréf er ritað, að morgni 5. ágúst, er ekki enn búið að upp­færa upp­lýs­ingar á pólsku á vefnum www.covid.is. Þar er ennþá fjallað um tíma­bilið frá 15. júní til 31. ágúst; sam­komu­bann er fyrir fleiri en 500 mann­eskjur, 2 metra reglan er val­frjáls og engar upp­lýs­ingar er að finna um notkun á and­lits­grímum,“ segir í bréfi Sól­veigar Önnu, sem félags- og barna­mála­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra auk land­læknis fengu einnig afrit af.

Sólveig Anna segir að stjórn­völd eigi að tryggja á að „bestu mögu­legu upp­lýs­ingar um almennar smit­varnir og við­mið almanna­varna hverju sinni ber­ist hratt og örugg­lega til allra þátt­tak­enda í sam­fé­lag­inu“ en að sá mis­brestur hafi verið á vinnu­brögðum upp­lýs­ingateymis stjórn­valda að „oft og einatt hefur fólk með annað móð­ur­mál en íslensku þurft að bíða dögum saman eftir þýð­ingum á nýj­ustu upp­lýs­ingum á vefnum.“

„Aðflutt fólk á Íslandi telur hátt í 50.000 mann­eskjur. Þær eru virkir þátt­tak­endur í íslensku sam­fé­lagi og þar af leið­andi ómissandi hlekkur í virkum smit­vörnum almenn­ings. Þessu hlut­verki sínu getur fólk þó ekki gegnt nema með greiðum upp­lýs­ingum um smit­varnir. Einnig vil ég benda á að hátt í 15.000 ferða­menn með erlent móð­ur­mál dvelj­ast hér á landi hverju sinni í sumar. Margir þeirra dvelja á stöðum og njóta þjón­ustu aðflutts vinnu­afls á ferða­lögum sínum um landið. Okkur öllum ætti því að vera ljóst hversu mik­il­vægt er að tryggja greiðan aðgang að upp­lýs­ingum á erlendum tungu­málum,“ segir í bréfi Sól­veigar Önnu.

Ekki allir almannavarnir ef ekki allir fá skilaboðin

Þess er kraf­ist fyrir hönd Eflingar að stjórn­völd „geri gang­skör að því að tryggja skil­virk­ari vinnu­brögð við birt­ingu mik­il­vægra upp­lýs­inga á erlendum tungu­málum“ í tengslum við far­ald­ur­inn á vef sínum og í gegnum aðra miðla.

Einnig er bent á það í bréf­inu að góð leið til að ná betri árangri væri að senda mik­il­vægar smit­varn­ar­upp­lýs­ingar í tölvu­pósti til þeirra sem eru í tengslum við aðflutt fólk, m.a. almenn félaga­sam­tök og verka­lýðs­fé­lög.

„Við erum ekki öll almanna­varnir ef upp­lýs­ing­arnar ná ekki til okkar allra,“ segir Sólveig Anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár