Páley skipuð lögreglustjóri á Norðurlandi eystra

Dóms­mála­ráð­herra hefur skipað Páleyju Borg­þórs­dóttur í emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra. Páley hefur frá 2015 verið lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum.

Páley Borgþórsdóttir
Páley Borg­þórs­dóttir

Dóms­mála­ráð­herra hefur skipað Páleyju Borg­þórs­dóttur í emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra frá og með 13. júlí næst­kom­andi. Hæfn­is­nefnd sem skipuð var til að fara yfir og meta hæfni umsókna um emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra mat Páleyju hæf­asta umsækj­enda.

Páley hefur frá árinu 2015 gegnt emb­ætti lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum. Hún lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði árið 2002. Hún var lög­lærður full­trúi hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu í Vest­manna­eyjum frá 2002 til 2007 og starf­aði sem lög­maður frá 2007 til 2014.

Fimm umsóknir bár­ust dóms­mála­ráðu­neyt­inu um stöðu lög­reglu­stjóra á Norð­ur­landi eystra.

Umsókn­ar­frestur rann út 25. maí. Halla Bergþóra Björns­dóttir sem gegndi starfi lög­reglu­stjóra á Norð­ur­landi eystra tók nýverið við stöðu lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir sem gegndi þeirri stöðu tók við sem rík­is­lög­reglu­stjóri af Haraldi Johann­es­sen.

Eft­ir­taldir sóttu um emb­ættið á Norð­ur­landi eystra:

Arn­fríður Gígja Arn­gríms­dóttir, aðstoð­ar­sak­sókn­ari hjá emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara.

Halldóra Kristín Hauks­dótti, lög­maður hjá Akur­eyr­arbæ.

Hreiðar Eiríks­son, lög­fræð­ingur hjá Fiski­stofu.

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum.

Sigurður Hólmar Krist­jáns­son, sak­sókn­ar­full­trúi og stað­geng­ill lög­reglu­stjóra á Norð­ur­landi vestra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár