Skipstjórnarmenn hjá Samherja segjast „án málsvara og stéttarfélags“

Sautján skip­stjórar og stýri­menn hjá Samherja gagn­rýna eigið stétt­ar­fé­lag harð­lega fyrir að hafa staðið að lög­reglu­kæru á hendur skip­stjóra Júlíusar Geir­munds­sonar og segja umfjöllun um málið gefa ranga mynd af líf­inu til sjós.

Togarinn Júlíus Geirmundsson.
Togarinn Júlíus Geir­munds­son. Mynd: Af vef Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Sautján skip­stjórar og stýri­menn hjá Samherja hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem þeir segja umræðu um COVID-19 smit um borð í tog­ar­anum Júlíus Geir­munds­syni hafa skaðað ímynd sjó­manna­stétt­ar­innar. Auk þess segja þeir „afleitt“ að þeirra eigið stétt­ar­fé­lag hafi ákveðið að kæra sinn eigin félags­mann, skip­stjóra tog­ar­ans, til lög­reglu.

„Fyrir vikið erum við skip­stjórn­ar­menn án málsvara og stétt­ar­fé­lags um þessar mundir um allt það er varðar aðbúnað og vinnu­lag um borð í fiski­skipum. Félagið okkar hefur dæmt sig úr leik í þeirri umræðu,“ segja skip­stjórn­endur Samherja og bæta við að það hljóti að vera eins­dæmi að stétt­ar­fé­lag fari þá leið að kæra eigin félags­mann og ein­ungis einn eða tveir menn hjá félag­inu komi að þeirri ákvörðun.

Nokkur stétt­ar­fé­lög stóðu saman að lög­reglu­kæru á hendur Hrað­frysti­hús­inu Gunnvör, útgerð Júlíusar Geir­munds­sonar, og kröfð­ust einnig sjó­prófs í mál­inu. Það voru Verka­lýðs­fé­lags Vest­fjarða, Sjó­manna­fé­lag Íslands, Sjó­manna­sam­band Íslands, VM - félag vél­stjóra og málm­tækni­manna auk Félags skip­stjórn­ar­manna.

„Öllum er ljóst að mál Júlíusar Geir­munds­sonar hefði alltaf farið þá leið sem það fór, þ.e. til lög­reglu og svo í [s]jópróf. Stétt­ar­fé­lög ann­arra í áhöfn­inni hefðu örugg­lega farið þá leið til að leita réttar skjól­stæð­inga sinna. Félag skip­stjórn­ar­manna tók af þeim „ómakið“ af ein­hverjum und­ar­legum ástæðum,“ segir í yfir­lýs­ingu skip­stjórn­ar­mann­anna, sem birt­ist á vef Samherja í dag.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að skip­stjórn­ar­menn­irnir ætli ekki að leggja mat á mál skip­stjóra Júlíusar Geir­munds­sonar, sem sé for­dæma­laust á for­dæma­lausum tímum og þarfn­ist ítar­legrar skoð­unar, en sé í sínum rétta far­vegi.

Umfjöllun gefi ranga mynd

Skip­stjórn­ar­menn­irnir vilja samt koma því á fram­færi að við­töl sem hafi birst í sjón­varpi eftir sjó­prófin í mál­inu og umfjöllun í bæði fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum gefi kol­ranga mynd af raun­veru­leik­anum til sjós.

„Varpað hefur verið upp þeirri mynd að hrein­lega sé farið illa með menn til sjós og að þeir séu rétt­litlir eða rétt­lausir um borð. Slíkar rang­færslur er eitt­hvað sem við getum ekki sætt okkur við, því ekk­ert er fjær sanni,“ segja skip­stjórn­ar­menn­irnir.

Þeir segja margt hafa breyst til sjós síð­ustu ár og ára­tugi og allt hafi það verið batn­aðar og allar slíkar breyt­ingar stuðli að því að „skila ánægðri áhöfn heilli heim til fjöl­skyldu og vina að lok­inni veiði­ferð.“

Gullin regla í hávegum höfð

„Þú færð engu áorkað á íslenskum vinnu­mark­aði árið 2020 með hót­unum eða her­valdi, hvorki í landi né á sjó. Lög­fræð­ingur stétt­ar­fé­laga sjó­manna og þar með talið lög­fræð­ingur Félags skip­stjórn­ar­manna ýjaði samt að því í sjón­varps­við­tali mánu­dag­inn 23. nóv­em­ber sl. að að sú væri raunin til sjós. Það er fjar­stæða,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þar segir einnig að skip­stjóri eða stýri­maður reki engan til vinnu ef við­kom­andi treysti sér ekki til þess. Það sé hin gullna regla sem sé í hávegum höfð til sjós.

„Líf okkar sjó­manna verður alltaf öðru­vísi en þeirra sem vinna í landi. Við erum fjarri sjúkra­húsi og lækn­is­þjón­ustu, slökkvi­liði og lög­reglu. Ef eitt­hvað bjátar á þurfum við oft að treysta á okkur sjálfa til að leysa þau vanda­mál sem upp koma. Það reynum við alltaf að gera eftir bestu vit­und, með öryggi áhafnar og skips að leið­ar­ljósi. Og það gerum við með allri þeirri aðstoð sem okkur býðst. Sú aðstoð fer stöðugt vax­andi, þökk sé örum tækni­fram­förum og mark­vissri upp­bygg­ingu fjar­heil­brigð­is­þjón­ustu. Okkur er mjög umhugað um heill og heil­brigði allra í áhöfn­inni. Áhöfnin er ein órofa liðs­heild. Hótanir og her­vald koma þar hvergi við sögu,“ segja skip­stjórn­endur hjá Samherja einnig, í yfir­lýs­ingu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár