Biden reynir að selja Bandaríkjunum að ríkisstjórnin geti gert mikilvæga hluti

Joe Biden hélt fyrstu stefnu­ræðu sína í gærkvöldi og fagnar 100 dögum í embætti Bandaríkja­forseta í dag. Hann hefur lagt fram tvo nýja efnahags­aðgerða­pakka á vikum sem samanlagt eru verð­metnir á 4 billjónir dollara.

Í dag eru 100 dagar liðnir frá því að Joe Biden tók við embætti Bandaríkja­forseta. Í gærkvöldi hélt hann sína fyrstu stefnu­ræðu frammi fyrir Banda­ríkjaþingi og fór yfir það sem hann hefur gert hingað til og hvert hann vill stefna.

Ræða Bidens var einnig söluræða, ef svo má segja, fyrir nýjasta efnahags­aðgerða­pakkann sem hann vill koma til framkvæmda. Um er að ræða aðgerðir sem stjórn Bidens kallar fjölskyldu­áætlun, American Families Plan. Útgjöldin sem fjölskyldu­áætluninni fylgja eru metin á 1,8 billjónir bandaríkja­dala, en ein billjón samsvarar þúsund milljörðum.

Þessi upphæð samsvarar því rúmlega 221 þúsund milljörðum íslenskra króna á gengi dagsins í dag. Þessi stjarnfræði­lega upphæð bætist ofan á þær áætlanir um innviða­uppbyggingu sem Biden kynnti í mars­mánuði og eru verð­metnar á 2,3 billjónir dala, sem samsvarar yfir 282 þúsund milljörðum íslenskra króna. New York Times tók í gær saman hvernig útgjöld þessara tveggja áætlana skiptast og má sjá þá greiningu hér.

Vert er að nefna að þessa áætlanir Bidens eru að bætast ofan á þær aðgerðir sem ríkis­stjórn Banda­ríkjanna hefur gripið til vegna faraldursins nú þegar, en þar um að ræða meira en 3 billjóna dala aðgerðir sem samþykktar voru í stjórnartíð Donalds Trump og fyrsta stuðnings­pakka Bidens, sem var verð­metinn á 1,9 billjónir og fól meðal annars í sér 1.400 dala ávísanir sem sendar voru til einstaklinga.

Ánægja hefur verið með þessar aðgerðir hjá stórum hluta almennings og segja stjórnmála­skýrendur vestanhafs margir hverjir að Biden sé að veðja á að viðhorf Bandaríkja­manna til hlutverks ríkis­stjórnarinnar í gangverki efnahags­lífsins gæti verið varanlega breytt eftir faraldurinn.

New York Times bendir á í frétta­skýringu sinni um áætlanir Bidens og ræðu gærdagsins að könnun síðasta haust hafi í fyrsta sinn í langan tíma sýnt fram á að fleiri Bandaríkja­menn en færri væru á þeirri skoðun að ríkis­stjórnin ætti að gera meira til þess að leysa vandamál landsins. Einnig hafi innviða­áætlun Bidens notið mikils stuðnings á meðal almennings, í skoðana­könnunum.

Fjölskyldu­áætlun Bidens felur bæði í sér ný útgjöld og skatta­afslætti til tekju­lægri og drjúgur hluti af fjár­magninu á að fara í aðgerðir til þess að auka aðgengi að menntun og umönnun barna.

Fréttaskýring Kjarnans um áhrif faraldursins á bandarískan efnahag

Stjórnmála­skýrendur Axios segja að þegar umfang áætlana Bidens sé skoðað heildrænt sjáist að hann sé að reyna að láta fólk finna fyrir ríkis­stjórninni í lífi sínu, sem björgunar­fleyi en ekki bara einhverju óskilvirku apparati sem flæki líf þeirra.

Skattahækkanir á þá ríkustu og hert skattaeftirlit til fjármögnunar

Biden sagði í ræðu sinni í gær að hann ætlaði sér ekki að auka skatt­byrðina á milli­stéttar­fólk í Banda­ríkjunum. Hann ætli að einbeita sér að því að láta tekju­hæsta fólkið í landinu greiða meira fyrir gangverk samfélagsins.

„Þegar þú heyrir einhvern segja að þeir vilji ekki láta hækka skattana á ríkasta 1 prósentið eða fyrirtæki, spurðu hann: Skattana hjá hverjum ætlar þú að hækka í staðinn?“ sagði Biden í ræðunni.

Á síðustu dögum hafa bandarískir fjöl­miðlar greint frá því hvernig Biden ætli sér að fjármagna fjölskyldu­áætlunina. Eins og Kjarninn fjallaði um síðasta föstudag leggur forsetinn meðal annars til miklar hækkanir á fjármagns­tekjuskatti þeirra sem hafa yfir 1 milljón dala í slíkar tekjur og sömuleiðis hækkun á tekju­skatt­prósentu efsta þreps, þannig að báðar prósentur verði 39,6 prósent.

Einnig leggur forsetinn til að fjár­veitingar til bandaríska skattsins, I.R.S. verði auknar verulega og eftirlit með skatta­brotum stóraukið í því skyni að fá meira í kassann. Biden horfir til þess að setja 80 milljarða dala fjár­festingu inn í skattinn og áætlanir hans gera ráð fyrir að það skili alríkinu að minnsta kosti 700 milljörðum dala í tekjur, umfram það sem sett er í að bæta skatta­eftirlitið.

Þessar nýjustu áætlanir Biden-stjórnarinnar bætast ofan á áform sem þegar höfðu verið kynnt, meðal annars um að hækka fyrirtækja­skatta úr 21 prósenti upp í 28 prósent og áform sem Banda­ríkin standa í stafni fyrir um að ná saman við önnur ríki heims um alþjóð­lega fyrirtækja­skatta til þess að koma í veg fyrir að fyrirtæki taki út hagnað sinn á lágskatta­svæðum.

„Wall Street byggði ekki þetta land“

Það þarf því ef til vill ekki koma á óvart að í samantekt vefmiðilsins Vox, þar sem álits­gjafar miðilsins lögðu mat á það hverjir væru „sigurveg­arar og taparar“ út frá því hvað Biden boðaði í ræðu sinni, var Wall Street talin á meðal tapara.

„Það eru góðir karlar og konur á Wall Street, en Wall Street byggði ekki þetta land. Miðstéttar­fólkið byggði upp landið og verkalýðs­félög byggðu upp miðstéttina,“ sagði Biden í ræðunni í gærkvöldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár