Wall Street græðir á meðan Main Street blæðir

Ef þú ert millj­arða­mær­ingur, átt eignir, eða ert bara í góðri vinnu sem þú hélst í yfir­stand­andi kreppu og getur sinnt í inni­fötum af heim­ili þínu eru allar líkur á því að fjár­hagur þinn sé að batna í yfir­stand­andi kreppu.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur leitt til mesta sam­dráttar sem heim­ur­inn hefur upp­lifað í rúma öld. Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í bar­átt­unni við útbreiðslu veiruna, sem fela í sér veru­legar tak­mark­anir á frelsi fólks til vinnu, ferða­laga og ann­arra athafna sem þóttu áður sjálf­sagðar, skila því að ríki heims verða rekin í veru­legum halla á þessu ári, og í flestum til­fellum nær örugg­lega á hinu næsta líka.

Þessi staða hefur þó mis­mun­andi áhrif á fólk. Í Banda­ríkj­unum, sem lítur á sig sem leið­toga hins frjáls heims, átti sér stað verð­hrun á mörk­uðum í kjöl­far þess að for­seti lands­ins, Donald Trump, til­kynnti um að lokað yrði fyrir ferða­lög frá Evrópu til Banda­ríkj­anna þann 12. mars síð­ast­lið­inn. Fjórum dögum síðar lækk­aði S&P 500 vísi­talan banda­ríska um tólf pró­sent innan dags, sem er mesta dag­lega lækkun hennar frá því í októ­ber 1987. Þann dag féll hún um 20 pró­sent og dag­ur­inn hefur alla tíð síðan verið þekktur sem „Svarti mánu­dag­ur­inn“.

Þótt mark­að­ur­inn hafi verið fyrstur til að bregð­ast við þá fylgdi restin af efna­hags­kerf­inu í kjöl­farið. Fjöldi atvinnu­lausra í Banda­ríkj­unum var rétt undir tveimur millj­ónum í byrjun mars. Þann 9. maí, tveimur mán­uðum síðar, var fjöldi þeirra kom­inn yfir 20 millj­ónir.

Þá hafði hluta­bréfa­mark­að­ur­inn þegar jafnað sig. Og síðan þá hefur hann að mestu verið á fljúg­andi sigl­ingu. Þótt störfum í Banda­ríkj­unum hafi fjölgað nokkuð síð­ustu mán­uði þá voru enn 12,2 millj­ónir manna á atvinnu­leys­is­bótum þar í lok sept­em­ber.

Mismunandi áhrif á „Main Street“ og „Wall Street“

Þessi staða er yfir­fær­an­leg á mörg önnur vest­ræn sam­fé­lög. Launa­fólk, sér­stak­lega það sem vinnur í lágt laun­uðum þjón­ustu­störfum, er að fara verst út út far­aldr­inum en rík­asta fólkið, og mennt­aða milli­stéttin sem hélt vinn­unni, tekj­unum og getur unnið heima, er að hafa það enn betra en áður í fjár­hags­legu til­liti. Þeir hafa sparað sér kostnað við ferða­lög, veit­inga­staði og kaup á annarri vöru eða þjón­ustu sem þótti kannski hvers­dags­leg iðja í upp­hafi árs 2020, en er í dag fjar­lægður veru­leiki. Vaxta­lækk­anir og ákvörðun Seðla­banka Banda­ríkj­anna að lækka vexti niður í lítið sem ekk­ert og prenta áður óséð magn af pen­ingum sem er síðan dælt aftur inn í efna­hags­kerfin, hafa skilað þessum hópi, fjár­festum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum ódýr­ara láns­fjár­magni og þar með betri kjörum.

Sá munur er þó líka í Banda­ríkj­unum að þar er ekki jafn sterkt opin­bert vel­ferð­ar­kerfi og víða í Evrópu og margir eru með heil­brigð­is­trygg­ingu í gegnum atvinnu­veit­anda sinn. Lægra laun­aði þjón­ustu­starfs­mað­ur­inn sem missir vinn­una er því í mörgum til­vikum líka að missa aðgengi að fyrsta flokks heil­brigð­is­þjón­ustu, í miðjum heims­far­aldri. Hann er líka lík­legri en aðrir til að vera á leigu­mark­aði og að lifa frá launa­seðli til launa­seð­ils. Finni hann sér ekki fljótt lífs­við­ur­væri á ný er sú staða komin upp að við­kom­andi getur ekki greitt fyrir þak yfir höf­uðið, og hvað þá fyrir aðrar helstu nauð­synjar.

Donald Trump mælir ítrekað efnahagslegan árangur Bandaríkjanna eftir gengi hlutabréfamarkaða.
Donald Trump mælir ítrekað efna­hags­legan árangur Banda­ríkj­anna eftir gengi hluta­bréfa­mark­aða.

Sama á við um mörg smærri fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum, en nýlegar kann­anir benda til þess að eitt af hverjum sjö slíkum í land­inu hafi lokað fyrir fullt og allt vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þetta er það sem er kallað „Main Street“ í Banda­ríkj­unum. Neyt­endur og lítil fyr­ir­tæki sem hafa mörg hver séð kaup­mátt sinn hverfa á síð­ustu mán­uðum.

Lítill hluti á flest hlutabréfin

Hin hliðin er svo „Wall Street“, stærri fyr­ir­tæki og fjár­mála­heim­ur­inn sem umlykur þá götu í New York. Kreppan hefur verið góð við „Wall Street“ hingað til, sér­stak­lega þá sem eiga hluta­bréf í tækni­fyr­ir­tækj­unum sem eru þau verð­mæt­ustu í banda­rísku kaup­höll­inni.

Í Banda­ríkj­unum, líkt og á Íslandi, eiga rík­ustu pró­sentin þorra hluta­bréfa, sem hafa verið að hækka. Þar, líkt og hér, er hins vegar stór hluti almenn­ings líka bund­inn við gengi hluta­bréfa vegna hlut­deildar í líf­eyr­is­sjóðum. Því er staðan ekki það ein­föld að hluta­bréfa­hækk­anir gagn­ist bara þeim rík­ustu, þótt þeir taki auð­vitað lang­mest út úr því.

53 pró­sent af Banda­ríkja­mönnum eru þátt­tak­endur í hluta­bréfa­mark­aðnum þar, hvort sem það er beint eða í gegnum líf­eyr­is­sjóði eða ann­ars konar eft­ir­launa- eða söfn­un­ar­sjóði. Þegar ein­ungis er skoðað eign á hluta­bréfum hjá heim­ilum lands­ins þá sýna tölur að tíu pró­sent rík­asta mengið í Banda­ríkj­unum á 88 pró­sent þeirra. Ríkasta pró­sentið á um 50 pró­sent. Þetta eru afar svip­aðar tölur og við sjáum á Íslandi líka þegar eign almenn­ings á verð­bréfum er skoðuð.

Milljarðamæringarnir maka krókinn

Millj­arða­mær­ingar heims­ins hafa ein­fald­lega orðið rík­ari í krepp­unni. 

Samkvæmt nýrri úttekt sviss­neska bank­ans UBS þá juku þeir ein­stak­lingar sem eiga millj­arð dali eða meira eignir sínar um 27,5 pró­sent frá apríl og fram í júlí, eða þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn í heim­inum var í sinni fyrstu bylgju á vest­ur­löndum og á sama tíma og tugir millj­óna manna var að missa vinn­una eða að reyna að finna leiðir til að draga fram lífið á skertum fram­lögum úr opin­berum úrræðum.

Eignir þeirra eru nú metnar á 10,2 þús­und millj­arði dala, eða rúm­lega 1.400 þús­und millj­arða íslenskra króna. Til að setja það í sam­hengi þá eru ætluð útgjöld íslenska rík­is­ins á ári um þessar mundir um þús­und millj­arðar króna. Þessi hópur, sem telur 2.189 manns, á því saman um 1.400 sinnum árleg útgjöld vel efn­aðs ríkis með rúm­lega 360 þús­und íbúa.

Fjöldi ein­stak­linga sem á yfir millj­arð dali hefur líka aldrei verið stærri, og telur nú 2.189 ein­stak­linga.

V- eða K-laga endurreisn

Þegar menn­irnir tveir sem sækj­ast eftir því að verða næsti for­seti Banda­ríkj­anna, Joe Biden og Donald Trump, voru spurðir út í spár sínar fyrir efna­hags­legan við­snún­ing í kapp­ræðum þeirra á milli nýverið lýstu þeir nokkuð ólíkum veru­leika. Trump, sem hefur haft það að reglu að mæla efna­hags­legt heil­brigði eftir stöðu hluta­bréfa­mark­aða, sagði að Banda­ríkin væru að fara í gegnum V-laga end­ur­reisn. Í henni felst skörp kreppa (niður) en svo kröftug við­spyrna (upp) þegar botn­inum væri náð.

Joe Biden hefur sagt að framundan sé K-laga efnahagsleg endurreisn. Sem er ekki endurreisn fyrir alla.
Joe Biden hefur sagt að framundan sé K-laga efna­hags­leg end­ur­reisn. Sem er ekki end­ur­reisn fyrir alla.

Biden sagði allt stefna í K-laga end­ur­reisn. Í því felst að hluti lands­manna (þeir sem eiga eignir eða eru í góðri vinnu sem þeir héldu) munu upp­lifa efna­hags­legan upp­takt á sama tíma og hinir, sem misstu vinn­una og kaup­mátt­inn, halda áfram í átt að meira efna­hags­legu myrkri. Með öðrum orðum: ef ekki verður gripið í taumana til að stilla af efna­hags­batann þannig að hann dreif­ist víðar þá muni hann stór­auka ójöfnuð.

Hinir ríku, og þeir sem héldu sinni ágætis vinnu, verða rík­ari. En hinir verða mun fátæk­ari.

Það sem er gott fyrir General Motors...

Paul Krugman, nóbels­verð­launa­hafi í hag­fræði, pró­fessor í hag­fræði við Princeton-háskóla og pistla­höf­undur hjá The New York Times, bendir á það í pistli sem birt­ist á þriðju­dag að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn end­ur­spegli ekki endi­lega efna­hags­lega vel­sæld sam­fé­lags­ins. Þannig hafi Apple til að mynda verið verð­mætasta fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna árið 2019 en, samt unnu ein­ungis um 90 þús­und Banda­ríkja­menn hjá því. Virði Apple felst í tækni og mark­aðs­stöðu, ekki í því að vera með marga í vinnu við að búa til hluti. Til sam­an­burðar rifjar Krugman upp að á sjötta ára­tug síð­ustu aldar hafi General Motors verið verð­mætasta fyr­ir­tæki lands­ins. Þar hafi unnið um hálf milljón manna, sem myndi vera um 1,5 millj­ónir manna í dag, og flestir á góðum launum í flestum sam­an­burði. Full­yrð­ingar um að það sem væri gott fyrir Banda­ríkin væri gott fyrir General Motors, og öfugt, átti því betur við þá en um virð­is­mestu fyr­ir­tækin á hluta­bréfa­mark­aði í dag.

Margt svipað á Íslandi

Margt ofan­greint er yfir­fær­an­legt á Ísland þótt hér sé vit­an­lega mun öfl­ugra vel­ferð­ar­kerfi rekið til að grípa fólk sem missir heilsu eða vinnu en í Banda­ríkj­unum. Hér eru yfir 20 þús­und manns án atvinnu og þar af hafa á fjórða þús­und verið á atvinnu­leys­is­skrá í meira en 12 mán­uði. Allar spár gera ráð fyrir að atvinnu­leysið haldi áfram að vaxa næstu mán­uði og fær­ist nær 30 þús­und manns þegar fram líða stundir.

[Sumir hópar verða verr úti en aðrir. Þannig er atvinnu­leysi á meðal erlendra rík­is­borg­ara, sem knúðu áfram hag­vöxt­inn í ferða­þjón­ustu hér­lendis á síð­ustu árum með því að ganga í þau þjón­ustu­störf sem þar sköp­uð­ust, nú tæp­lega 23 pró­sent. Atvinnu­leysi í Reykja­nesbæ stefnir í 25 pró­sent. Alls eru 41 pró­sent atvinnu­lausra ein­ungis með grunn­skóla­menntun að baki og 27 pró­sent hafa lokið háskóla­prófi. Allt þetta fólk þarf að ganga í gegnum þreng­ingar. Hámark tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta er 456.404 krónur á mán­uði. Þegar þeim sleppir taka við grunnatvinnu­leys­is­bætur sem eru 289.510 krónur á mán­uði.

Á sama tíma eru þeir sem eiga eignir eða halda vinnu sinni hér­lendis að hafa það betra. Auka kaup­mátt sinn. Þar spila inn sömu öfl og í Banda­ríkj­unum. Miklar vaxta­lækk­anir hafa gert láns­fjár­magn ódýr­ara og því dregið úr fjár­magns­kostn­aði. Á sama tíma hefur hús­næð­is­verð hækkað, en flestir lands­menn eru með þorra eigna sinna bundnar í hús­næði. Þeir 200 millj­arðar króna sem Íslend­ingar eyddu í útlöndum í fyrra eru nú til notk­unar, eða sparn­aðar, hér­lendis.

Þá hefur hluta­bréfa­verð hér­lendis jafnað sig veru­lega frá því sem var í mars, í kjöl­far þess að far­ald­ur­inn skall af fullum krafti á Íslandi. frá 23. mars og fram til dags­ins í dag hefur OMX Iceland 10-vísi­talan, sem mælir gengi þeirra tíu félaga í kaup­höll­inni sem eru með mestan selj­an­leika á hverjum tíma, hækkað um 38 pró­sent.

Meg­in­þorri verð­bréfa sem eru í beinni eigu ein­stak­linga til­heyra þeim tíu pró­sentum lands­manna sem eru rík­ast­ir. Sá hóp­ur, tæp­lega 23 þús­und fjöl­skyld­ur, á 86 pró­sent allra verð­bréfa sem eru í beinni eigu ein­stak­linga.

Þeim sem lifa á undir 260 krónum á dag fjölgar

Þetta er ekki bara staðan í Banda­ríkj­unum, Íslandi eða innan ýmissa ann­arra vest­rænna efna­hags­kerfa. Þetta er líka staðan í alþjóða­kerf­inu í heild.

Fyr­ir­liggj­andi er að sára­fá­tækt í heim­inum mun aukast í ár í fyrsta sinn síðan 1998.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er talin muna, sam­kvæmt World Bank, ýta um 150 milljón manns til við­bótar í þann flokk þegar næsta ár er liðið, en til að telj­ast sára­fá­tækur þá þarftu að draga fram lífið fyrir ca. 260 krónur á dag, eða undir átta þús­und krónum á mán­uði. Til að setja þá aft­ur­för í frekara sam­hengi má nefna að frá byrjun árs 2015 og út árið 2017 þá komust 52 millj­ónir manns úr sárri fátækt. Allur sá ávinn­ingur er horf­inn aftur undir sára­fá­tækrar­mörkin. Og tæp­lega 100 millj­ónir manna til víð­bótar með honum.

Í stað þess að fjöldi sára­fá­tækra, sem var yfir 35 pró­sent af heims­byggð­inni í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins, færi í fyrsta sinn undir átta pró­sent íbúa jarðar er búist við því að hann auk­ist og verði allt að 9,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár