Mynd: Rakel Tómasdóttir

Ójöfn kreppa

Líklegt er að yfir­stand­andi efna­hag­skreppa komi til með að auka ójöfnuð á Íslandi, en hún hefur komið sér­stak­lega illa niður á tekju­minni hópum í sam­fé­lag­inu.

Inn­flytj­endur, konur og ungt fólk hafa fundið meira fyrir efna­hags­þreng­ingum síð­ustu mán­aða heldur en aðrir hópar sam­fé­lags­ins. Hrun í þjón­ustu­störfum og aukin heima­vinna hafa leitt til minni atvinnu­þátt­töku þess­ara þriggja hópa og auk­ins atvinnu­leysis. Sér­fræð­ingar hafa bent á að kreppan geti aukið ójöfnuð ef ekk­ert verði að gert, auk þess sem hætta er á félags­legri ein­angrun á meðal við­kvæmra hópa sam­fé­lags­ins.

Einangrun og atvinnuleysi innflytjenda

Samhliða upp­gangi ferða­þjón­ust­unnar á síð­ustu tíu árum hefur vægi inn­flytj­enda stór­auk­ist í grein­inni. Samkvæmt tölum frá Hagstofu voru starf­andi inn­flytj­endur þrisvar sinnum lík­legri til að starfa í ferða­þjón­ustu heldur en aðrir Íslend­ingar sem voru á vinnu­mark­aði.

Þar sem núver­andi kreppa hefur orðið sér­stak­lega þung fyrir ferða­þjón­ust­una og öðrum atvinnu­greinum þar sem inn­flytj­endur eru lík­legri til að vinna hafa þeir því verið í mun við­kvæm­ari stöðu á vinnu­mark­aði heldur en aðrir Íslend­ingar. 

Þetta sést glögg­lega í nýlegum vinnu­mark­aðs­tölum Hagstofu. Samkvæmt þeim hefur starf­andi inn­flytj­endum fækkað meira en öðrum starf­andi Íslend­ingum, þrátt fyrir að inn­flytj­endur séu aðeins um fimmt­ungur af vinnu­mark­aðnum. Ef tekið er til­lit til stærðar hópanna beggja hefur inn­flytj­endum á vinnu­mark­aði fækkað fimm sinnum meira en öðrum Íslend­ingum.

Í nýlegri skýrslu félags­mála­ráðu­neyt­is­ins er vikið sér­stak­lega að stöðu inn­flytj­enda, sem hefur versnað tölu­vert á síð­ustu mán­uðum. Inn­flytj­endur eru nú 40 pró­sent allra atvinnu­leit­enda á skrá hjá Vinnu­mála­stofnun, og er atvinnu­leysi meðal þeirra nú um 20 pró­sent. Skýrslan minn­ist einnig á að mikil hætta stafi af félags­legri ein­angrun inn­flytj­enda sem misst hafa vinn­una, þar sem þeir hafi jafnan minna tengsla­net en aðrir Íslend­ingar.

Aukin heimavinna gæti komið niður á konum

Kynja­hlut­fall þjón­ustu­starfa er einnig nokkuð ójafnt, sem leiðir til þess að núver­andi kreppa lendi þyngra á konur heldur en karla. Samkvæmt mæl­ingum Hagstofu hefur rúmur helm­ingur starfs­manna í ferða­þjón­ustu á síð­ustu árum verið kven­kyns, þótt hlut­fall þeirra á vinnu­mark­aðnum sé nokkuð undir fimm­tíu pró­sentum.

Konur eru í meirihluta þjónustustarfa, þrátt fyrir að vera í minnihluta á vinnumarkaði
Konur eru í meiri­hluta þjón­ustu­starfa, þrátt fyrir að vera í minni­hluta á vinnu­mark­aði

Til við­bótar við aukið vægi kvenna í þjón­ustu­störfum virð­ist aukin heima­vinna í kjöl­far far­sótt­ar­innar hafa slæm áhrif á stöðu kvenna á vinnu­mark­aði, Samkvæmt Herdísi Stein­gríms­dóttur, hag­fræði­dós­ent við Copenhagen Business School.

Í grein sem Herdís skrif­aði í Vís­bend­ingu í maí síð­ast­liðnum sagði hún lík­legt að aukin heima­vinna komi verr niður á fram­leiðni kvenna heldur en karla, þar sem þær eru lík­legri til að eyða meiri tíma í heim­il­is­störfum. Nýleg rann­sókn frá Banda­ríkj­unum rennir auknum stoðum undir þær grun­semdir, en kynja­halli á vinnu­tíma jókst þar í landi um 20 til 50 pró­sent á meðan for­eldrar þurftu í auknum mæli að sinna börn­unum sínum á vinnu­tíma í vor.

Herdís bendir einnig á að vís­bend­ingar um þessi áhrif hafa komið fram í fræða­sam­fé­lag­inu, þar sem greini­lega fækkun má sjá í fjölda inn­sendra fræði­greina sem skrif­aðar eru af konum í ár. Á sama tíma hefur inn­sendum greinum eftir karla fjölgað mikið, ef miðað er við síð­asta ár.

Teikn eru á lofti um auk­inn kynja­halla á vinnu­mark­aði í þess­ari kreppu, ef litið er á vinnu­markastölur Hagstofu. Samkvæmt þeim hefur atvinnu­þátt­taka kvenna á tíma­bil­inu mars-sept­em­ber minnkað meira en karla, ef miðað er við sama tíma­bil árið á undan. Sömu­leiðis hefur atvinnu­leysi auk­ist meira hjá konum heldur en körlum á sama tíma­bili.

Hér er aukning atvinnuleysis eftir kyni sýnd á tímabilinu mars-september í bankakreppunni 2009 annars vegar og í kórónukreppunni 2020 hins vegar.
Hér er aukn­ing atvinnu­leysis eftir kyni sýnd á tíma­bil­inu mars-sept­em­ber í banka­krepp­unni 2009 ann­ars vegar og í kór­ónu­krepp­unni 2020 hins vegar.

Þetta eru við­brigði við síð­ustu kreppu, þar sem atvinnu­leysi jókst mun meira hjá körlum heldur en hjá konum. Myndin hér fyrir ofan sýnir þá breyt­ingu á tíma­bil­inu mars til sept­em­ber, ann­ars vegar á milli áranna 2008 og 2009, en hins vegar á milli áranna 2019 og 2020. Á meðan atvinnu­leysi karla jókst næstum því tvö­falt meira en kvenna í hrun­inu 2008 er staðan þver­öfug núna, þar sem atvinnu­leysi kvenna hefur vaxið um 2,3 pró­sent, á meðan atvinnu­leysi karla jókst um 1,4 pró­sent.

Þyngra niður á yngra fólki

Í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar benti Friðrik Már Bald­urs­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskól­ann í Reykja­vík, svo á að yngri ein­stak­lingar finni einnig mun meira fyrir krepp­unni heldur en aðrir. Þessi mis­skipt­ing á einnig rætur sínar að rekja til sam­setn­ingar þjón­ustu­starfa, þar sem ungt fólk er mun lík­legra til að vinna í slíkum störfum en aðrir.

Því til stuðn­ings bendir Friðrik á vinnu­mark­aðs­tölur Hagstofu, sem sýna að atvinnu­leysi þeirra sem eru yngri en fer­tugt sé þrefalt á við þá sem eru yfir fimm­tugu á milli mars- og ágúst­mán­aðar. Munurinn er svo enn meiri ef ald­urs­hóp­ur­inn undir þrí­tugu er bor­inn saman við sex­tuga á eldri.

Ójöfn­uður milli ald­urs­bila hefur auk­ist á und­an­förnum ára­tugum á Vest­ur­löndum og hefur hluti ungs fólks í þjóð­ar­tekjum minnkað sam­hliða því. Samkvæmt Friðriki er lík­legt að þessi kreppa styrki þessa þróun enn frekar og breikkar þannig bilið milli yngri og eldri enn frekar. Þetta geti leitt til auk­ins ójafn­aðar þegar litið er til lengri tíma, þar sem lík­legt er að lægri tekjur ungs fólks dragi úr skóla­sókn þeirra.

Ólík síðustu kreppu

Samhliða því að kreppan hefur komið verr niður á tekju­lágum þjóð­fé­lags­hópum hafa vaxta­lækk­anir og kjara­samn­ings­bundnar launa­hækk­anir leitt til bættrar efna­hags­legrar stöðu ann­arra hópa vegna auk­ins kaup­máttar og hækk­andi eigna­verðs.

Þetta er ólíkt þró­un­inni í síð­ustu efna­hag­skreppu, sem bitn­aði verr á tekju­hærri hópum en þeim sem áttu minna á milli hand­anna. Þá varð einnig hrun á fast­eigna­mark­aði, sem leiddi til þess að eig­endur fast­eigna urðu fyrir mik­illi virð­is­rýrnun eigna sinna. Samhliða verð­lækkun fast­eigna og fækkun hátekju­starfa jókst tekju- og eigna­jöfn­uður hér á landi tölu­vert á árunum 2009 til 2011 og hefur hann hald­ist mik­ill síðan þá.

Þar sem núver­andi kreppa kemur verr niður á eigna- og tekju­minni hópum á meðan aðrir hópar finna fyrir kjara­bótum má þó búast við að ójöfn­uður muni aukast aftur á næstu árum, verði ekk­ert að gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár