Teikning á stærð við post-it miða eftir Leonardo da Vinci seldist á 1,5 milljarða

Einungis eitt boð barst í Bjarn­ar­höfuð Leon­ar­dos þegar það var selt á upp­boði Christie's á fimmtu­dag. Teikn­ingin sem er frá um 1480 og agn­arsmá, sjö sentí­metrar á hvora hlið, seld­ist á metfé.

Listamaðurinn er sagður hafa sótt innblástur í þessa teikningu sína þegar hann málaði eitt af sínum frægustu verkum, Hefðarkonu með hreysikött.
Lista­mað­ur­inn er sagður hafa sótt inn­blástur í þessa teikn­ingu sína þegar hann mál­aði eitt af sínum fræg­ustu verkum, Hefð­ar­konu með hreysi­kött. Mynd: EPA

Lítil teikn­ing eftir Leonardo da Vinci, ein af örfáum sem enn er í einka­eigu, var boðin upp hjá Christie’s í London á fimmtu­dag. Til marks um smæð teikn­ing­ar­innar sem nefn­ist Bjarn­ar­höfuð, þá er hún aðeins minni en vin­sælasta stærð Post-it miða en teikn­ingin er sjö sentí­metrar á hvora hlið. Kaup­and­inn mun þurfa að reiða fram tæp­lega 8,9 millj­ónir punda fyrir mynd­ina, rúm­lega einn og hálfan millj­arð króna, sem er metfé fyrir teikn­ingu eftir Leonardo. Fyrra met var sett árið 2001 þegar teikn­ingin Hestur og knapi var seld hjá upp­boðs­hús­inu fyrir rúm­lega 8 millj­ónir punda.

Það verður seint sagt að sleg­ist hafi verið um mynd­ina sem talin er vera frá því um árið 1480 en í hana barst eitt boð úr upp­boðs­salnum. Fyrir upp­boðið hafði upp­boðs­húsið gefið út verð­mat sem var á bil­inu átta til tólf millj­ónir punda, eða 1,3 til tveir millj­arðar króna.

Verðið hefur rokið upp eftir sölu Salvator Mundi

„Þessi verð eru fárán­leg,“ er haft eftir Jean-Luc Baronií umfjöllun New York Times um teikn­ing­una en Baroni er list­muna­sali sem sér­hæfir sig í teikn­ingum gömlu meist­ar­anna. Sjálfur hefði Baroni metið virði mynd­ar­innar í kringum 250 millj­ónir króna. „Þetta snýst um að kaupa nafnið. Þetta hefur ekk­ert að gera með ástríðu fyrir góðum teikn­ingum.“ [links]

Samkvæmt grein á vef upp­boðs­húss­ins er teikn­ingin í hópi átta teikn­inga eftir Leonardo sem enn eru í einka­eigu og þær eru því sjald­gæf sjón á upp­boðum. Síðasta teikn­ing Leon­ar­dos til að vera boðin upp var áður­nefnd mynd, Hestur og knapi. Fágæti slíkra mynda kann því að ein­hverju leyti að skýra hátt verð­mat.

„Vissu­lega er þetta teikn­ing eftir Leonardo. En teikn­ingin er svo agn­arsmá,“ segir list­muna­sal­inn Baroni í sam­tali við New York Times. „Þetta er bara frí­merki.“ [adspot]

Allt frá því að mál­verkið Salvator Mundi varð dýrasta mál­verk sög­unnar þegar það var selt hjá Christie’s árið 2017 fyrir 450 millj­ónir Banda­ríkja­dala hafa nán­ast öll verk sem hafa ein­hverja teng­ingu við lista­mann­inn farið fram úr vænt­ingum upp­boðs­hald­ara. Árið 2019 var 17. aldar eft­ir­mynd Monu Lisu seld hjá Christies á tíföldu mats­verði. Myndin var seld á 2,9 millj­ónir evra en virði mynd­ar­innar hafði verið metið á bil­inu 200 til 300 þús­und. Á fimmtu­dag, sama dag og Bjarn­ar­höf­uðið var selt hjá Christies, þá seldi Sotheby’s 20. aldar eft­ir­mynd Monu Lisu fyrir hátt í 400 þús­und pund, um 68 millj­ónir króna, en fyrir upp­boðið hafði verkið verið metið á átta til tólf þús­und pund eða 1,5 til tvær millj­ónir króna.

Tengist einu þekktasta málverki Leonardos

Í texta upp­boðs­húss­ins um verkið er teikn­ingin sögð tengj­ast einu af fræg­asta verki Leon­ar­dos, mál­verks­ins Hefð­ar­kona með hreysi­kött sem er í eigu Czartoryski safns­ins í Kraká í Póllandi. Þar er því haldið fram að höfuð hreysikatt­ar­ins í mál­verk­inu sé að ein­hverju leyti byggt á höfði bjarn­dýrs­ins í teikn­ing­unni. Þrátt fyrir að Leonardo sé ann­ál­aður fyrir ein­stak­lega raun­sæja túlkun í verkum sínum þá hafi Cecilia Gall­erani, hefð­ar­kona mál­verks­ins, aldrei setið fyrir með hreysi­kött í fang­inu. Lista­mað­ur­inn hefur auk þess leyft sér að færa í stíl­inn því hreysi­kettir eru í raun mun minni en sá sem finna má í mál­verk­inu.

„Þrátt fyrir að hátt í ára­tugur skilji að gerð verk­anna Bjarn­ar­höfuð og Hefð­ar­kona með hreysi­kött, þá hlýtur Leonardo að hafa haldið svo mikið upp á teikn­ing­una að hann hafi á end­anum stuðst við hana við gerð mál­verks­ins,“ segir í lýs­ingu upp­boðs­húss­ins á teikn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár